Sunnanfari - 01.05.1894, Síða 6

Sunnanfari - 01.05.1894, Síða 6
86 af sér bláu gleraugum og best ef hann þá lánaði Hannesi þau tíma og tíma, því við það mundu báðir vinna. Öll kvæði Einars eru örstutt og er auðséð að hann gerir sér far um að segja alt með sem tæstum orðum og fclla burt alt sem ekki beinlínis hjálpar til að skíra aðalhugsunina. Þau eru því flest þaulhugsuð, og margt í þeim svo vel sagt, að fæstir munu hlaupa svo fram hjá því að þeir ekki Iæri það og muni. Formið er ifirleitt þítt eins og hugsanirnar, en ekki hefur Einar jafnmikið vald ifir kvcðandi og Hannes. Smákvæðin: »Vorvísur«, »Eptir barn« og »Umjólin« eru mjög lipur og þíðleg. »Endurminníngar«, kveðið eftir Gest heitinn Pálsson er ágætt kvæði, ein hin bestu eftirmæli sem ég man eftir á Islensku. »Siglíng lífsins« er ekki jafngott kvæði og þau sem ég nú hef nefnt. Það er svo oft búið að segja okkur að við séum að flækjast á völtum skeiðum á lífsins hafi að flestir munu hafa haft þá líkíngu í huganum laungu áður en þeir lásu þetta kvæði. Undarlegt er það, að Einar, sem annars hefur auðvitað vandað svo mjög valið á kvæðunum, skildi ekki geta feingið af sér að skera niður brúðkaupskvæðin. Ég fæ þó ekki betur séð en að þau séu að öllu leiti ómcrkilcg og lík öðrum þessháttar kvæðum. Eitt af tækifæris- kvæðunum er gott: »Minni Vcsturhcims«. Það hefur á allan hátt verið reint að slá til hljóðs firir kvæðum Hannesar og er það að ímsu leiti fétt. En því þá ckki eins firir kvæðum Einars? Hér getur ekkert annað á milli skilið en persónulegt vin- feingi, því, að því er ég þekki hugarfar hinna hraustu dreingja og hárprúðu snóta Isalands, mun jafnvel fleirum, sem báðar bækurnar lesa niður í kjölinn, þikja vænna um kvæði Einars. Alt til þessa tíma hafa islensku skáldin geingið ótrauðlega fram í því að stirkja með kveðskap sínum kirkjukreddurnar og guðstilbeiðsluna; flest þcirra hafa ort meira cða minna af sálmum, dírðlegum lofsaungum, trúarljóðum og heitu bænakvaki. Var það óþarfi firir okkur Islendínga að braska svo mjög í því að fá sálmabókina níju, því vel hefði mátt nota ljóð- mæli skáldanna í kirkjunum í stað sálmabóka. Reindar kemur fram í sumum kvæðum Kr. Jónssonar megn efagirni, en hann biður líka oft sem besti prestur. Jón Olafsson er í firstu kvæðum sínum sanntrúaður maður, en alkunnugt er að hann hefur nú firir laungu snúið baki við kirkjunni og orþodoxiunni og geingið vel fram í því að fletta ofanaf hjátrúnni og vana- kreddunum. I kvæðinu »Opið bréf til séra Jóns Bjarnasonar«, sem er merkilegt kvæði og vert eftir- tektar, hefur hann skírt frá trúarskoðunum sínum. Þeir Hannes og Einar láta reindar trúna liggja milli hluta; kvæði Hannesar: »Kirkjan brennur« snír sér að kirkjunni en ekki trúnni. Þó má sjá það af kvæð- um þeirra að báðir eru þeir »aþeistar« (guðleisíngjar). Þetta kemur fram í kvæði Hannesar »Sisturlát« og hjá Einari í »Endurminníngar« og sömuleiðis í »Sjötta ferð Sindbaðs«, þótt ofur hóglega sé í sakirnar farið. Mörgum löndum vorum, sem þikjast vera góðir menn og guðhræddir, mun þikja þetta ljótt og líklcga rángt að tala svo bert um það. En guðleisið á marga filgismenn, einkum meðal mentaðra manna, út um heim allan og eins meðal okkar Íslendínga, þótt svo sárfáir þori opinberlega að gángast við þeirri lífs- skoðun, sem það biggist á, og alstaðar á það fleiri hjörtu en opinbera játendur. Svo mun það og verða meðan þeir, sem völdin hafa, stjórnir ríkjanna, sem veita embætti öll og opinberar síslanir halda hlífi skildi ifir guðstrúnni og kreddunum, en hleipidómar meðal almenníngs gera það óheppilegan þröskuld ( vegi þeirra, sem leita eftir alþíðuhilli. (meira). Þorstcinn Gíslason. Ný rítgjörö um íslenzka málfræði. Nokkrir danskir vísindamenn hafa nýlega gefið út safn af málfræðislegum ritgjörðum, til virðíngar við Vilhelm Thomsen háskólakennara, og er ein þeirra eptir Dr. phil. Finn Jónsson, um meðferð á útlendum orðum í norrænum kveðskap að fornu fari. Rit- gjörðin er 26 síður i stóru áttablaðabroti og fremur þur, eins og títt er urn samskonar ritgjörðir, en allmerkileg í raun og veru. Flest af orðum þeim, sem höf. drepur á eiga rót sína að rekja til hebresku (manna nöfn og staða) og svo til grisku eða latnesku. Sum eru aptur keltnesk að uppruna og fáein rómönsk. Fyrst og fremst drepur höf. á uppruna orðanna og rannsakar svo hjóðgildi þeirra, áherzlu o. s. frv. Eg efa ekki að ritg. sé vel af hendi leist, það sem hún nær, en þó hefir höf. sézt yfir að minnast á orðið taura, sem kemur fyrir i Laufás-Eddu og auðsjáanlega er dregið af latneska orðinu Ihesaurus. I niðurlagi greinar sinnar gefur höf. í skyn, að hann kunni einhvern tímann seinna að rita um öll útlend orð, sem komin eru inn í (forn)íslenzkuna , og væri æskilegt að þessháttar ritgjörð yrði gefin út sem allra fyrst, því þessi hluti norrænnar málfræði hefir orðið mjög útundan enn sem komið er, eptir því sem eg veit bezt. ÓI. Dav. Íslendíngar í Dansk Biograflsk Lexikon vii. 1893. I. Hansen-Holmsted: J. P. Havstein amt- maður, bls. 171—72, séra Arni Helgason, bls. 289—90, Jón landlæknir Hjaltalín, bls. 458—60, Oddur læknir Hjaltalín, bls. 460, Olafur biskup Helgason, bls. 461—62, þorsteinn Elias Hjaltalín íslenzkur málari, sem ílendist i þýzkalandi, bls. 462. Dr. Kr. Kaalund hefir ritað um alla þessa nenn nema málarann. Um hann hefir F. J. Meier ritað. Af útlendum mönnum, sem sérstaklega koma Islandi við eða sögu þess má nefna Lud- vig biskup Harboe, bls. 84—B7 og Einglendínginn Ebenezer Henderson, bls. 338—39. Hann ferðaðist um alt ísland 1814—15 og breiddi út. 5000 Biblíur og jafnmörg Nýatestamenti meðal almennings. Ól. Dav.

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.