Sunnanfari - 15.01.1901, Blaðsíða 6

Sunnanfari - 15.01.1901, Blaðsíða 6
( til þeirrar breytingar. Hinu einu held eg fram, að þegar einangrun þjóðarinnar er til fulls um garð gengin, þá liljóti þjóðbúningurinn að líða undir lok. Alveg eins hlýtur að fara raeð íslenzku nafna- tiihögunina. Henni er eins farið og þjóðbún- ingnum að því leyti, að hún er leifar af menn- ingu, sem annarstaðar er undir lok liðin. Sama tilhögunin hefir verið á Norðurlöndum með bændafólki. En hún hefir horfið fyrir samgöng- unum eða er að hverfa. Því meira sem menn- ing bænda hefir farið vaxandi og samneyti þeirra við aðrar stéttir innlendar og útiendinga, því ver hafa þeir eðlilega farið að kunna öllum greinar- mun, sent gerður hefir verið á þeim og öðrurn siðuðum mönnum. Með öðrum þjóðum eru ekki aðrir nefndir skírnai nöfnunum' einum að jafnaði — auk villimanna — en börn og lægstu undirtyllur. Sú stétt eða sú þjóð, sem notar skírnarnöfnin eingöngu, er ósjálfrátt. talin undir- tyllustétt eða undirtylluþjóð í menningarlöndum heimsins. Og þá íslenzku tilhögun að ncfna fólk syni og dætur feðra sinna skilja fæstir út- lendingar nema eftir langa útlistun. Afieiðingin hefir orðið sú, að íslenzkar konur í öðrum lönd- um og margir íslenzkir karlmenn hafa neyðst til að kalla sig þar öðrunt nöfnum en lieima fyrir. Ekki liggur í augum uppi, að hverju leyti slikt er virðulegra fyrir þjóðerni vort en hilt, að sernja sig í þessu efni að sið annarra menningarþjóða. Ekki getur heldur hjá því farið, að það verði ofan á, þegar einangruninni er af létt. Til eru þeir, sem setja það fyrir sig, að með þvi að taka upp æítarnöfn séu Islendingar að apa eftir Dönum. Auðvitað nær sú viðbára engri átt, stafnr eingöngu af því, að sjóndeildarhringur þeirra er svo lítill þær stundirnar, sem þeir korna með hana, að þeirn finst þá Danmörk vera öll veröldin. Með þeirri breytingu semdum vér oss ekki að sið Dana sérstaklega, heldur hins siðaða heims yfirleitt. Surnir vitna og til Rússa og Grikkja til stuðnings íslenzku nafnatilhöguninni. En það er hvorttveggja, að ættarnöfn eru altíð með þeim þjóðum, og svo hafa þær alls ekki þann sið, að nefna menn skírnarnöfnunum ein- um, heldur skírnar- og föðurnöfnunum. Ogþeg- ar þessara þjóða menn koma til annara landa, semja þeir sig ávalt að sið annara í þessu efni. Einkennileg bending þess, í hverja átt vér stefnum í þessu efni, er það, að annar þeirra löggjafa, sem flutti á alþingi frumvarp það, sem minst er á hér að framan, nefnir nú og ritar börn sín — syni og dóttur — föðurnafni sjdlfs sín. Og svo stendur á því, að eftir er hann gerðist flutningsmaður frumvarpsins dvaldi hann árum sarnan með fjölskyklu sína í öðru landi. Við það hefir manninum sýnilega snúist hugur. Og því fer fjarri, að eg geti þess honum til á- mælis. Á sama hátt mundi flestum Islending- urn — öðrum en óvenjulegum þrákelknisseggjum — hafa snúist hugur í hans sporum. Presturinn. Eftir Conan Dovle. (Frh.), Andlitið á honum var eins og á manni, sem int hefirafhendi örðuga skyldu. Hann efndi það, sem hann hafði sagt, þegar hann fór. Jafnskjótt sem menn fóru að hópa sig þarna inni kvöldið eftir, var hann kominn upp á tunnuna og farinn að lesa, jafn-þulbaldalega og áður, hvern kapítulann á fætur öðrum. Þeir hlógu að honurn, æptu að honum, beittu öllum brögðum — nema líkamlegu ofbeldi ■— til þess að fæla htnn frá þessu. En það tókst ekki. Brátt urðu þeir þess varir, að hann hagaði sér eftir ákveðnum reglum. Þegar alt var kyrt og hljótt, eða þegar viðræður manna voru sæmilegar, þá hælti hann að lesa. En jaftt- skjótt sem einhver fór að blóta eða guðlasta, þá tók hann til 'aftur og hélt áfram fjórðung stundar; svo þagnaði hann og þagði, þangað til einhver gaf honum aftur tilefni til að byrja. Annað kvöldið var lestrinum haldið áfram, án þess nokk- urt hlé yrði á að kalla mætti, því að andstæðing- ar hans voru enn þá nokkuð óvarkárir í orðum. En samt hafði þeim farið fram frá því sem verið hafði kvöldinu áður. Elías B. Hopkins hélt þessari baráttu áfram rneir en mánrtð. Kvöld eftir kvöld sat hann með bókina <

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.