Sunnanfari - 01.06.1912, Qupperneq 3

Sunnanfari - 01.06.1912, Qupperneq 3
43 hyggnari og vitrari maður en Danir hafa alment viðurkent, og stýrði meistaralega með viðsjálli skipshöfn vondan sjó framan af rik- isstjórnarárum sínum. Eitt af merkisvið- burðunum í stjórnartíð hans var stjórnarbótin lil handa íslandi, og án efa hefir liann sjálfur sett metnað í það mál. Friðrik VIII. og önnur börn Kristjáns IX. feingu uppeldi, sem var að nokkru leyli danskt og að nokkru leyti þýzkt. Friðrik var því ekki fremur en faðir hans danskur í stór- danskri merkingu. Enda er svo að sjá sem hann hafi tekið það í föðurarf að vilja fram hag og hlut lands vors, og líkt og hann sett metnað í það, að vjer ættum yfir sem bezt- um kostum að búa og yfir sem mestum sæmdum að sitja. Oss mun það öllum í fersku minni að Frið- rik konungur, er hann var hjer heima 1907, þrátt fyrir ódyljandi gremju margra danskra stórmenna, sem með honum voru, talaði marg- sinnis um y>bœði ríkin sína. Mörg, ef ekki flest, af þeim stórmennum eru nú gengin fyrir ætternisstapa i stjórnmálalífinu, enn orð konungs lifa enn. þessi orð konungs sýna oss, að hann hafi í raun rjettri verið langt á undan samtíðarmönnum sínum.' Af góðu þeli konungs til vor var án alls efa af hans hendi stofnað til milliríkjanefndar- innar 1907, því að Friðriki konungi var það tvímælalaust eitthvert allramesta áhugamál að fá skipað sambandi Islands og Danmerkur á sem hagkvæmastan hátt fyrir íslendinga, og á þá leið, að rjettur og metnaður landsins og þjóðarinnar yrði sem mestur. Nefndarmenn vorir höfðu víst öflugasta stoðina og athvarfið þar sem konungur var. Það er varla efa- samt, að hefðu þeir haldið því fram með nægri festu, að lálið væri ósamið þá um ut- anríkismál vor og hermál, mundu þeir með fylgi konungs hafa fengið það fram, og þó feingið haldið öllum kostum milliríkja frum- varpsins, enda óþarfi af íslenzku nefndar- mönnunum að stinga npp á forseta hæstaréttar öana sem oddamanni í gerð milli Dana og íslendinga tmi, livað væri sammál og sjermál. Góð orð og einlægan vilja þakkar þjóðin íslenzka nú Friðriki konungi og tekur vilja hans og konunglegt orð fyrir verk, sem hann ætlaði að framkvæma, en gat ekki framkvæmt fyrir misskilinni mótspyrnu »bræðranna« dönsku. Og hún þakkar honum það að hann einn, af mörgum, sem yfir oss hafa ríkt, hefur ekki verið í efa um það, að hann væri konungnr hins íslenzka ríkis, jafnt sem liins danska, og þorði að standa við það. Annar maður, Kristján X. Friðriksson, hefur nú tekið við stjórn beggja ríkjanna, og öll íslenzk þjóð óskar, að hann megi stjórna þeim sem bezt. Enn við vitum, hverju við sleppum, en ekki hvað við hreppum, og — mundi ekki þjóð vor heimta Friðrik konung úr Helju, ef hún gæti það? En hann er nú horfinn, er vildi oss bezt. Sonur hans, er tekið hefur við ríkisstjórn, er enn ungur maður og á langa starfslíð fyrir höndum. Verði liann oss hagstæður í orði, vilja og verki, óska honum hjer allir góðs, og þá mun hann verða langlífur hjer í land- inu sem faðir hans og afi. Hamingjan skjóti honum þvi i brjóst að feta í fótspor feðra sinna oss til handa, og veiti honum þrek og vitsmuni lil þess að fylla þær kröfur tímans og komandi kynslóða, sem guð ljeði þeim vilja og vit, en ekki aldur, til. Jr'jóíWilíiir er sagt, að nú sé látinn, fullra 63 ára gamall. V ísur Jónasar Ilall^rímssonar iiiii fráfall Sunnanpóstging. Pósturinn er sálaður sunnan, syrgir bæði halur og nunnan, af pvi hann var allra ánægja, utan lands og innan »að segja«,’) »Fóta gat ei fram róið árum«,1 2) forar hlandsins sökk hann i bárum. Liggur þar í leðju á botni. »Lifir dygð þó fjöræðar þrotni#.3) 1) »að scgja« orðatlllæki Jóns leklors Jónssonar. 2) Ur kvæði eptir Arna biskup Helgason, i Sunnanpósti. 3) Úr erfiljóðum einum, er Þórður Sveinbjörnsson lieiir kveðið.

x

Sunnanfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.