Sunnanfari - 01.06.1912, Síða 6
46
manna um íslenzk lög að fornu og langt
fram eptir öldum. Og um þann lær-
dóm ber öll þessi bók vitni. En auk
þess er bókin rituð á viðfeldnu máli, og
sumstaðar bregður jafnvel fyrir „gullald-
ar" máli.
Lögrétta á Öxarárþingi
í gamla daga.
Bólu-Hjálmarssaga
Simonar Dalaskálds og Brynjólfs
frá Minnanúpi er mesta merkisrit,
þegar á alt er litið, og á Eyrar-
bakkaprentsmiðjan lieiður skilið
fyrir að liafa geíið liana út. Ef
eg man rétt, þá hefir A. B. í Þjóð-
ólfi lýst henni heppilega: að hún
væri í raun og veru vísindalegar
rituð en mart af því, sem þeir, er
kölluðu sig sjálfir »vísindamenn«
hér á landi, nú rituðu. í þessa
bók verður án efa mart sótt í fram-
tíðinni, því að hér eru hókfærð
munnmæli og sögusagnir margar í
fyrsta sinni.
Frá Jóni I’orkelssyni á Sunnan-
fari að skila því, að í formála sög-
unnar er það, sem hann hefir til
hennar lagt, langtum betur þakkað
en Jón á skilið. Frá Jóni slafar
þar ekkert, nema réttarhöldin í
málum Hjálmars, og er afskriplir
þeirra í raun réttri að þakka Ein-
ari Þorkelssyni.
I bók þessari er sumt ekki lausl
við að vera klúrt, en eigi að síður
er sagan svo merkileg, að Kirkju-
blaðið getur hennar sem góðrar
hókar.
t*cir kaupendur, sem ekki fá
Sunnanfara með skilum eru vin-
samlegast heðnir að gera aðvart
um það á afgrciðslunni Lindar-
götu 41. Talsími 244.
Mynd þessi fylgir 1. hepti Alþingisbókanna, sem
nýlega er út komið í Sögufélaginu. Félagið hefir léð
Sunnanfara myndina, enda þykir ritstjórn blaðsins lík-
legt, að fleirum en þeim, sem kost eiga á að eignasl
Alþingisbækurnar, muni þykja gaman að sjá, hvernig
þeir gömlu komu sér fyrir á Alþingi. Sætin eru hnausar.
2- oi ö
rf »5 •<
§ 3 •'
= p
O: 3 —
2 3
c g
2*1
e
3 O:
,.vu«'anna SUnna,}
Sæti lögmar.ns sunnan og austan
Sæti höfuðsmanns.
Sæti lögmanns norðan og vestan.
° Uvetuu uuuV'W^
g, ,s*«ó
! §
g* o I
.E - c
<
n