Austri - 14.04.1917, Síða 2

Austri - 14.04.1917, Síða 2
2 4USTRI Siglingarmar. Ritstjóri blaðsins »ís.lendingur« á Akureyri hefir tjáð oss í sím- tali, að frétt hafi borist um það íil Rvíkur frá Khöfn, að eftir um- ræður í enska þinginu um sigl- íngateppuna, hafi ráðaneytið ný- lega lýst því yfir, að siglingar danskra skipa verði ekki eftirleið- is hindraðar ineð viðkomuskyldu í brezkri höfn. í*es« hefði mátt vænta að Bret- ar létu oss íslendinga sæta sömu kjörum. Hvers eigum vér að gjalda framar Dönum? — Eftirþví sem skeytið (í síðasta hl-) um ferð »Gull- foss« hermir, er honum bannað— íslenzka skipinu — að flytja ís- lendinga frá Ivhöfn til íslands, en »íslandi« — danska skipinu — er leyft það. Skeytið segir »sérkreddu« Englendinga valda þessu. Sú »sér- kredda« bitnar á Eimskipafélagi tslands og íslendingum. Vérhljót- um að hafa óbeit á slíkum »kreddum«, sem í fljótu bragði eru líkastar því að runnar væru undan rifjum sameináða gufu- skipafélagsins, og engin bót verður fundin, eins og málið nú horfir Tið. — »Gullfoss«. Þegar fréttist um fararleyfi hans símaði bæjarfógetinn hér stjórn Eimskipafélagsins f.!h. bæjarstjórn- axinnar áskorun um að láta »Gull- foss« koma við á Austurlandi samkvæmt áætlun, á leiðinni frá Khöfn. Kaupmannafélagið hér sím- aði samskonar áskorun. Bæjarfógetanum barst svar Eim- skipafélagsstjórnarinnar svohljóð- andi: »Landsstjórnin Utur svo á, sem leyfi »Gullfoss« til ferðar frá Kaup- mannahöfn sé bundið því skil- yrði, að hann fari beint til Reykja- víkur, án viðkomu annarsstaðar. Mundi því tilgangslaust og valda ruglingi að gera tilraun til breyt- ipga á því nú. Eimskipafélags- stjórnin er sömu skoðunar.« Skeyti þetta bendir á að sótt hafi verið um fararleyfi fyrir »Gullfoss« tiL ákveðins staðar á landinu, o: Reykjavíkur. Er það næsta undarlegt. Hitt er ótrúlegt að Bretar hafi fundið upp á þvi, að miða fararleyfið við ákveðna hofn á landinu; það líka verið einkennileg x>sérkredda«. — Lik- iegra er að landssijórnin — eða umboðsmaður hennar — hafi beð- ið um faraneyfið til Rvíkur; að ;miðað hafi verið við Rvik eina, en ekki landið, eins og þó hefði átt að vera. Bendir þetta á að atjórnin sjái ekki né viti um aðra staði á landinu en Reykjavik, og miði alt við hana; er það einfald- ara en þörf ætti að vera fyrir þre- falda stjórn. »Betur sjá augu en auga«, væri gott að sannaðist á þriggja herra stjórninni, og þá mundi hún sjá, að ílestir staðir á landinu hafa farið meir varhluta af siglingun- um nú að undanförnu en Reykja- vík. Yér verðum að vænta þess, ai V í i r 1 v s i n g Við undirrituð hjón lýsum þvi hér með yfir, að með því að við höfum fengið stjórnarlegt (konunglegt) leyfi til nafnbreytingar fyrir fósturbarnið okkar, sem jafnframt ber sömu skyldur og rétiindi, sem væri hún okkar skilgetin dóttir, ber hér eftir að nefnast og skrifast: Guðrún Sigurveig Pétursdótlir. Sejðisfirði 11. aprít 1917. Helga 4 r n a d 611 i r. Petur J é h a n n s s o n. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ stjórnin gefi oss Austfiirðingum auga, engu síður en öðrum lands- hlutum, að þrír menn verði eigi einsýnir á hag alþjóðarinnar. — Eftir því sem fyrir liggur, litur svo út að stjórnin hafi ekki gefið mkkur svo mikið sem hornauga er hún sótti um fararleyfi »Gull- foss«, og mun f>að leiða til þess að vér gefum henni ekki hýrt auga eftirleiðis, nema henni þókn- ist að upplyfla sínu augliti yfir oss og gefa gaum fleirum en Reyk- víkingum. »LagarÍ08s« hefir nú fengið fararleyfi, eins og símskevti í siðasta blaði ber með sér. — Ekki er enn neitt um það frétt, hvort hann fari einnig til Reykjavikur; sennilegt að for hans verði beint hingað til Austur- og Norðurlands. Ófrétt er og um það, hvenær hann fer af stað. Um Páskana fréttist að hann væri enn óferðbúinn. Eins og getið var um í símskeyti hér í blaðinu fyrir nokkru síðan, verður Ingvar Þorsteinsson skip- stjóri á »Lagarfossi«. Hann stýrði strandferðabátnum »ísafold« og síðar »Kristjáni IX.« er Ásgeir Pétursson átti Bólað hefir á nokkurri óánægju með skipstjóravalið á »Lagarfoss«. Þykir mönnum, sem von er, það miklu skifta að vel sé vandað til valsins, og verður tilræ't um »Goðafoss«-ætintýrið í því sam- bandi. — »Austri« hefir ekki viljað leggja neitt til þess máls hingað til, en að fengnum upplýsingum þykir rétt að geta þess að val skip- stjóra á skip Eimskipafélagsins fellur undir starfsvið útgerðarstjóra samkvæmt lögum félagsins. Enda eðlilegast, þar sem hér stendursvo á, að hann hefir sérþekkingu á að byggja. En ábyrgð verðurhann að bera á vali sínu. Nýtur Nielsen trausts Eimskipafélagsstjórnarinn- ar í þessu efni sem öðrum. Hann hefir nú valið þann af þeim, sem kostur var á, er hann telur hæf- astan. Um fáa var að velja, og sumir íslenzkra skipstjóra — t. d. Guðmundur’ Kristjáansson — öfá- anlegir. Jón Erlendsson, yfirstýri- mann á »Gullfoss«, vill Nielsen gera að góðum skipstjóra, en vill að hann sé enn um hríð stýri- maður. Jón fiefir aflað sér álits flestra eða allra, sem hafa kynst honum, og mnndi það mörgum kærl að vita hann i skipstjóra- stöðu hjá Eimskipafélaginu. Ingvar Þorsteinsson er þektur að dugn- aði, en ekki hefir hann þótfreglu- maður að sama skapi. En full- yrt er að skipstjórastaðan á »Lag- arfossk sé veitt honum með skil- yrði um algerða reglusemi, og verður að treysta því, meðan ekki er önnur reynsla á fengin. — Pað er ofur eðlilegt að hluthöfum í Eimskipafélaginu sé ant um, að skipstjórarnir séu ábyggilegir reglu- menn, og þeir eiga lika að krefj- ast þess. Og af þvi, sem á undan er gengið með »Goðafoss«, er það enn réttmætara að hluthaíar láti sig varða um skipstjóravál á skip sín. Eins og -nönnum má Ijóst vera af framanrituðu, er órétt — það sem margir hafa gert — að ásaka stjórn Eimskipafélagsins fyr- ir skipstjóravalið á »Lagarfoss«. Siglingahorfurnar hafa nú batnað talsvert siðan hafnbannið dundi yfir í byrjun febrúar s. 1. Vegurinn til Ameríku er oss íslendingum enn opinn og fær, þegar vér höfum heimt skip vor. Skipakaup landsstjórnarinnar o. fl. hafa og komið til sögunnar. Það var því gott útlit fyrir að vér mundum bjargast sæmilega, ef nýjar hindranir ekki kæmu fyrir. — En þegar Bandaríkin komust í tölu ófriðarþjóðanna, koin nýtt alvarlegt atriði til sögunnar. Þótt Ameríkumenn ekki hindri sigling- ar vorar þangað vestur, né setji oss neina afarkosti, þá er óséð hversu örugg sú leiðverður. Und- irferli Þjóðverja (kafbátahernaður- inn) er þegar orðið næsta viðtækt og iskyggilegt. Ófagnaðursá getur einnig náð til Ameriku, svo ekki verði þar óhult siglingaleið fyrir undirferli, og auk þess eru vík- ingaskipin, þessar grímuklæddu þýzku óvættir, sem læðast með sakleysissvip um höfin og svíkjast að hverju skipi, sem á vegi verð- ur óviðbúið, og er jafnvel sagt að nýjasta víkingaskipið sé svo vel að vopnum búið, að mætt geti hverju einu herskipi sem sé. Þótt nú virðist svo, sem ,að ýmsu leyti óvænkist hagur Þjóð- verja i stríðinu, fer þvi fjarri að siglingahættan sé að nokkrum mun minni en áður, né að vænta megi skjötra endalykta ófriðarins. Það er þvi full ástæða fyrir oss að vera sívakandi á verði fyrir örðugleikum af völdum hans, og láta engrar hagsýni né úrræða ó- freistað til þess að halda velli fyrir skorti og dýrtíð í landinu. Færeylngum hefir nú bæzt dálítið i búið við komu »í»lands« þangað. Hefir sennilega hálfur farmur skipsins, að minsta kosti, verið þeim ætlað- ur, en fremur skamt mun það hrökkva. — Sennilegt er, eftir þvi sem frézt hefir af Lögþingi þeirra um frumvarpadráp Amtmansliðs- ins, að Danir ætli nú :;ð sýna rögg af sér og sjá um aðílutninga til eyjanna að einhverju leyti. En eigi mun Færeyingum þykja trygt útlitið í þeirri átt, fyrst þeir halda enn fram hugmjmd sinni um ís- landsviðskifli, eins og getið er um i skeyti því frá »Tingakrossur«, er birtist í siðasla blaði. — »íslandsstefna« Færeyinga er fyllilega þess verð að henni sé gaumur gefinn. — Það er eðli- legt að Færéyingar vilji leitast fyrir um sölu á afurðum sinum og innkaup nauðsynja, utan ófrið- arsvæðisins, sé þess nokkur kost- ur, og .þar sem ísland liggur þeim næst og þeir geta hæltulaust beint siglingum þangað, er það ofur skiljanlegt að þeir hafi snúið liug sinum í þá átt. Hitt er undarlegt og óskiljanlegt, að Danir skuli vilja aftra þeim viðskifta við ís- land, loka fyrir þeim eina sund- inu, utan ófriðarsvæðisins, sem þeim er fært. — Að hve miklu liði íslandssam- bandið getí orðið Færeyingum er enn óséð, en einkar eðlilegt væri það, að meira viðskiftasamband myndaðist milli Eæreyja og ís- lands en verið hefir, þar sem ekki er nema nálega sólarhringsferð á milli. Og i framtiðinni er það vel hugsanlegt að Færeyingar geti með mestu liagræði beint flestum grein- um viðskifta sinna til íslands. Sjávarafurðir sínar gætu þeir senni- lega selt hér allar, og frá Reykja- vik mundu þeir geta fengið flest- ar nauðsynjar sínar og þangað væri þeim einkar hentugl að sigla. Það er ekki talið ósennilegt að ísland (Reykjavik) geti í framtíð- inni orðið millistöð Ameríku og Evröpulandanna, að vörur þær, sem keyptar eru í Ameríku, verði lagðar upp í Reykjavík úr Ame- ríkuskipunum (sbr. greinina »Dan- mörk og ísland« í 3. tbl. Austra þ. á.) og svo fluttar aftur þaðan til annara Evrópulanda. — Þegar svo væri komið, væru að minsta kosti tekin af öll tvimæli um það hvert Færeyingum kæmi bezt að sækja nauðsynjar sínar. En þóít eigi rætist þessi spá, hafa íslendingar fullgikla* ástæðu til að veita fylsla athvgli »íslands- stefnu« Færeyinga, og engu síður fyrir það, þótt hún sé alvarlegur þyrnir í augum Dana.

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/141

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.