Öldin - 30.12.1891, Blaðsíða 1

Öldin - 30.12.1891, Blaðsíða 1
 ÖLDIN, au Ioelandic VVeekly Eecord of Current Events and Contemporary Thought. Subscr. Price $1,50 a year. Ouafsson & Co. Puhlishers. Advertising Rates: 1 inch single column: 1 month; 3 mo’s; t> nio’s; 1 vear $1,00; $2,50; $4,50; $8,oa Adr.: Box 635, Winnipeg, Man. WINNIPEG, MAN., MIÐKUDAG, 80. DESEMBER. 1891. Eftir 1. Jan. næstkomandi verðr „ÖLT)IN“ e n ir u m o manui send, sem ekki hetir horgað hana. Ef ÖLDIN hættir að koma ti! þín með nýárinu, þá gættu þess, að það er af því að þú heíir ekki borgað hana, eu ekki af því að hún haldi ekki atrani að lconia ut. Jú, ÖLDIN heldr áfrani ftð koma út, og ef þú vilt að hún haldi áfram að koma til þín, þú borgaðu hana. I>ú hetir peninga númi, borgaðu þá Öldina fyrir alt árið. Ef þú borgar að eins einn eða tvo árs- fjórðunga, þá áttu ekkert víst að þú hatii' peninga þá, þegar þar að kemr, tM að endrný.ja áskrift þína. J>ví er bezt að borga nú, svo þú þurf- ir ekki að hugsa urn það á ný fyrri en næsta haust. A’ ÝJ Á It S G ./ Ö V 1 N til kaupendu vorra vonum vór að geti orðið tilhúin svo tímanléga, að hún geti orðið seud út í næstu viku. Að eins þeir kaupendr, sem hafa borgað hedan ártjang, fá. hana. F R É T T 1 It. ÚTLÖND. — Páfinn (nb. sá í Róm) liggr fyr- ir dauðanum og er honum ekki hug- að líf. — Á aðfangadag íói’ traui þing- mannskosning í Waterford á írlandi. Kosinn var Redmond, þingmannsefni Parnellinga. Inn nafnkunni þingskör- ungr Mr. Davitt var í kjöri af hendi McCarthyinga. en. náði eigi kosning. Þessi úrslit komu öllum á óvænt. Þetta er ið eina skifti, sem Parnell- ingar hafa komið nokkrum aí sín- um flokki að, síðan þeir klofnuðu frá aðalþingflokknum írska. bandaríkin. — Tvö sv kíki. Það er nu talíð víst, að á komanda ári immi bætast tvö ný ríki við tölu Bandaríkjauna, og aukast þá tvær stjörnur nýjar í stjörnufánann. Það cr mælt að báð- um flokkum, samveldismönnum og sérveldismönnum, hafi komið saman um að taka Arizona og Oklohama í ríkja tölu. New Mexiko og Itah heflr og mjög verið um talað að gera að ríkjum. En líarrison forseti setr sig á móti þyí. Þykir þjóðernið ó- enska of-ríkt í Mexico, og Mormön- ar of-fjölmennir í Utah. CANADA. c. I- lt. FÉLAOm or að lata hyggja sér dálítinn flota—(> skip — af „hvalbökum". Þeir sem hafa lesið 1. bl. af „Öldinni11 vita, hvers kyns skijj það eru. Þessi skip á að smíða í West Súperior, Wis. llvert þeirra á að verða 420 feta langt, 45 feta breitt. og. 25 fet á dýpt. Þau eiga að rúma meira og verða hraðskreiðari en allir eldri hvalhakar Islaiids-fréttir. Eftir isl. blöðunum. — Austfirðingafjóiíðunur var gerðr að sérstöku amti á alþingi 1889 með lögum, sem staðfesting náðu 11. Júlí | árið eftir. Samkvæmt því skyldi Norðr- | Múlasýsla og Suðr-Múlasýsla verða | amt sér með sérstöku amtsráði, en j einn og sami maðr skyldi amtmaðr j vera í norðramti og austramti, að | sínu leyti eins og nú er' í vestramt- j inu og suðramtinu. Eignir allar og j sjóðir skyldu aðskilin eí’tir ákveeðum I landshöfðingja, og hvort amtsráð stýra málurn síns amts út af fyrir sig með fullu sjálfsforræði. Amtmaðr skyldi mæta í amtsráði aústfirðiuga. Norðr- Þingeyjarsýsla skvldi kjósa um það (sýslunefndin þar), hvort Inin vildi heyra til uorðramti eða austramtinu. Jafnframt þessu var sú breyting ger á öllum amtsráðum landsins, að í stað þeas að áðr sátu í þeim einir tveir menn í hverju, auk amtmanns, skulu j nú sitja í þeim einn fulltrúi úr hverri amtsins sýslu, kosinn af sýslunefnd. j Með þessu veröa amtsráðin verulegt j fjórðungs-fulltiúaþing, til að stýra j fjórðungsmálum. Iíitstjöri þessa blaðs var höfundr þessara laga og kom þeim fram á þingi. Nú heíir Norðr-Þingeyjarsýsla kosið sér að eiga sálufélag með Austflrðing- um, og hettr nu landshöfðingi kveð- ið á uin skifting amtanna, og á hún fram að fara með nýári 1892. Skift- ast þá allar eignir, sjóðir og skuldir og skuldbindingar milli amtanna. Jafn- aöarsjóðr skiftist þannig, að norðr- amtið lilýtr 1<> tuttugustu og sjöundu hluti, en austramtiö 11 af sjóðnum, og skuldir, er á honum hvíla nú, greiðist af ömtunum í sama lilutfalli. Amtsbókasafnið á Akreyri verðr norðramtsius eign. Búnaðarsjóðnum verðr skift svo. að noröramtið fær 1(>, en austramtið 9 tuttugustu og fimtu hluti af lionum. Styrktarsjóðr ekkna og prentsmiðju- sjóðrinn verða undir stjórn amtsráðs- ins norðlenzka; en gjafasjóðr Guttorms Þorsteinssonar og gjafasj. Pétrs sýslu- manns verða undir stjórn austfirzka amtsráðsins. -y Með þessum lögum er stigið þýðiugarinikið spor til fyllri og frjálslegri héraða-sjálfstjórnar á Islandi. — FróðáR-kyrk.iu á nú að flytja ul í Ólaísvík. Búnaðarfklag er nú talið að sé til í nálega öörum livorum lirepp á Islandi. Kvexnaskóla frú Sigríðar Magn- j usson í Viuamimii veitir' forstöðu j Þóra Björnsdóttir (frá Brekkuborg i I Breiðdal). 15 námsmeyjar gengu á ! skólann í haust Jón Sigukðsson heitir morðing- i inn i Þingeyjarsýslu, sem drap stúlk- j una, som ólétt var af völdum hans, svo sem áður er getið í þessu bl. (Öldin 1, 7); hann var vinnumaðr á Mýri í Bárðardal. Heflr liann nú meðgengið, að lvann hafi troðið vetl- ingum upp í stúlkuna og lialdið fyr- ir vit lienni, unz hún kafnaði, og dregið hana svo í læk. Hafði búiö yflr þessu ráöi lengi. Slíkt varðar lífláti eftir ísl. lögunv. Málið dæmt í héraði (líflát.) og í yfirrétti (meðferð ) málsins og' dómálegging í liéraði o- I lögleg, og málinu vísað heim til lög- [ legrar meðferðar; sýslumnðr haföi ekki vitað það, að hann átti að hafa með- dómsmenn með sér*). Á Kvennaskólanum á Ytri-Ey vóru i haust 36 lærimeyjar. — í Möðruvallaskólanum vóru einn- ig í haust 3ö lærisveinar. — Kvíabekicr í Eyjaf. veittr 3. f. m. cand. theol. Emil G. Guðmunds- syni. — Fjársalan til Englands í haust. Menn telja útflutt að eins um 24000 sauðkindr (á móts við 70000 í fyrra); þar af keypti Coghill 2000. Hitt flutt vít af Zöllner, sumpart fyrir reikning bænda, sumpart keypt af honum. — Á ICVENNASKÓLA ReYKJAVÍKR (in- um gamla) vóru í hanst 43 náms- meyjar (skift í 3 bekki). — Gufubátrinn „Faxi“ sökk á Reykjavíkr-höfn 10. f. m. Lá þar mannlaus og hirðingarlaus. Sást úr landi, að hann var larinn að íýlla (í stórviðri af norðri), en eigi fært út í hann, nema manna vít stórt skip; en urn það ekki hirt. Sást það á, að aðaleigandinn (lvr. Sigf. Eymunds- son) var veikr, en hinn aðaleigand- inn var í bænum og skitti sér ekki af. Bátrinn var óvátrygðr. Daginn eftir rak lyfting og nokkuð af þil- fari í land. — „Rétta adferdin". Kyrir 10000 kr. hafa Skagfirðingar (upphafl. f'yrir frumkvæði E. Briems sýslumanns) brú- að hjá sér ár í sýslunni á fám ár- um á sinn kostnað; jafnað niðr á sig í sýslugjaldi 6 au. á hvert hdr. í íöstu og lausu í þessu skyni. — Öskufalls talsverðs varð vart í f. m. víða syðra; falið víst að eldr sé uppi í austrjöklum (Vatnajökli ?) einlvverstaðar. — Landsbankinn. Fyrir þriðja árs- fjörðung þ. á., mánuðina Júlí, Ágúst og September, er reikningr nýbirtr í Stjóruartíð. Það er nærri skrítin til- viljún, að bankinn hefir átt liér um bil alveg jafnt í sjóði í byrjun þessa | ársfjórðungs og í lok hans, eða milli j 68—69 þús. kr. Hafa þó miklir pen- ingar gengið út og inn hjá honum þessa mánuöi, t. d. sparisjóðsinnlög numið meira en 103,000 kr., en 79,000 kr. útborgað af þeirn, víxlar iunleyst- j ir fyrir 56,000 kr. og keyptir fyrir rúm j 52,000 (víxillán). Önnur útlán hafa ver- ið 71 jftis. kr., en endrgoldin lán að eins rúmar 30 þiis. Innlög á hlaupa- reikniug rvim 22 þns. kr. Alls átti bankinn í útlánum í I reikningslok nær 830 þús. kr., þar af nær 65 þús. kr. i víxillánum. Auk þess uni 250 þns. kr. í kgl. ríkis- skuldabréfum. Reikningslán sjást a þessunv reikn- ingi í fyrsta sinni, fáein hundr. kr. Sparisjóðsinnlög namu í reikuings- lok vun 584 þús. kr. — SjÖinleiki ætla nokkrir Reykvík- ingar að halda i vetr. Hafa ieigt Good-Templara-lnisið til þess í 4 man- uði (þau kvöld, sem G.-T.-stvíkurnar nota það eigi) fyrir 450 kr. — 16. f. m. druknudu af Akranesi: Guðjón Jðnsson, Magnús Magnússon, Bjarni Helgason, allir af Skaganum, Ásmundr Gíslason (frá Miðhópi að norðan?) Eileifr Eileifsson frá Mýr- arkoti á Skaga. — Loks eru komiu út lög um skip- un dýralækna á Islandi. — Bræðrnir Patterson (enski kon- súllinn og bróðir lians) vóru teknir *) Sýslumaðrinu er liáskólakenn- ; ara-efni „HeimskringhT' í lögfræði : ; Benedikt Sveinsson- fastir í Færeyjum í liaust fyrir skuld- ir og prettvísi. Einhverja úrlausn fongu skuldiveimtumenn, svo að þeir bræðr vóru aftr látnir lausir. — „Laura“ leggr af stað frá Kmh. til Islands 17. jan. næstk.; frá Leith væntanlega 20. jan. — Strandferðir 1892. Þær verða 3, hér um bil eins lagaðar og 1889, — Berufirði og Reykjarfirði þö alveg slepjit úr áætluninni —, og fer aðal- pöstskipið, Laura, auk þess 3 l'erðir frá Reykjavík til vestrhafnanna (nema ekki Elateyjar), eins og þá. Thyra verðr strandferðaskip eins og áðr. Heldr „ið sameinaða gufuskipafelag“ straud- ferðunum uppi styrklaust af lands- sjóði, af þvi það vill ekki fullnægja skilyrðum fjárlaganna, en þau vóru staðí'est 6. þ. m., og hagar þá auðvit- að ferðunum eftir því er kaupmönn- um hentar, því þeir nota það lang- rnest til flutnings. Fyrsta strandferð byrjar frá K.höfn 1. Maí, önnur 3. Júní og þriðja 6. Septhr. Erá Reykjavík fer það í síð- ustu strandferð vestr fyrir land og norðr 1. Október. Á sumum höfnum kemr það ekki við nema einu sinni hvora leiðina, svo sem Húsavík, Siglu- firði, Skagaströnd og Önundarfirði. — Austfirðingar eru nvi farnir að verka sv-o vel saltfisk sinn, að aust- firzkr fiskr er orðmn í hærra verði á erlendum markaði en sunnlenzkr og vestfirskr fiskr. — Mannalát. 8. f. m. lézt Hall- dóra Guðnvundsdóttir, eiginkona Brynj- óli's Magnússonar í Nýjabæ á seltjarn- arnesi. 22. f. m. audaðist í Rvík ekkjufrú Þórdís T h ors t ei n s e n, ekkja Jón- asar Thorsteinsens sýslumanus í S.- Múlas. (f 1861); mun hafa verið um 58 ára. Hvvn var móðir landshöfð- ingjafrúar Elínar Stephensen og sera Jóns Thorsteinsens á Þingvöllum. Erd Þórdís var dóttir Páls amtmanns Melsteds, ein al’ þeim mörgu og góðu hörnum ins valinkunna, mikla manns. — Af aflabrögdum við Faxaflóa er heldr vel og efniiega látið um það er póstskip íór. — Andaðr: Gísli Felixson á Stóra- Ilofi á Rangárvöllum. — Landsyfiriiéttardómr fallinn i meiðyrðamáli Guttorms Vigfússonar, fyrver. skólastjóra á Eyðum gegn Jöni alþingismanni Jónssyni fra Sleðbrjót. Jón dæmdr í 100 kr. sekt og máls- kostnað. — Fiskafli með bezta móti í liaust a Hvvsavík nyrðra. — Illviðrin, sem lvér gengu i Manitoba 11.—14. f. in., hafa náð til Islands. Þar gerði allharðan byl um land alt 8.—13. f. m. með vonzku norðanveðri. Annars góð tíö um alt land. SMÁ VEG I S. — Keisarans skegg. Congregation- alistarnir eru að ræða það og rann- saka, hvað sé „in nýja orþodoxía“; Presbyteríanar eru aö brjóta lieilann um, „inar nýjari rannsoknir og rann- sóknafrelsi kennimanna"; en Gyðii)g- ar eru hver í iiarinu á öðrum í þess- ari álfu út af því, hvort þeir eigi að halda heilagan laugardaginn eða taka upp sunnudaginn; og eigi síðr um það þýðingarmikla atriði, livort rétt-ti'iiaðr maðr sé skyldr til að hata á höfðinu eða hvort það sé rétt-trvinaðarlegra að sitja berhöfðaðr i samkunduLvúsinu. /

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.