Stefnir - 21.02.1898, Page 2

Stefnir - 21.02.1898, Page 2
6 að fá þessu breytt og freista þess, að fá virð- uglegra sjúkrahús, sem ekki væri fjórðungii- um til skammar og Norðlendingum, sem ekki þykjast vera og ekki eru, eptirbátar annara. |>etta var. eigi að síður, auðveldara sagt en gjört. Stórt og gott hús, með öllu sem til þarf, fellur ekki af himnutn ofan, enda þótt vjer biðjum. Jeg skal í stuttu máli skýra frá, hversu gengið hefir með framkvæmdirnar í þessu máli. Eignir gamla sjúkrahússins námu hjer um bil helming þess er nýtt hús kostar, svo þær hrukku eigi. f>á var leitað til þingsins og veitti það, sem kunnugt er, 5000 kr. styrk til fyrirtækisins. Síðan var leitað til bæjar- stjórnarinnar hjer og gaf hún stóran túnblett undir bygginguna. Bæjarstjórnin hefir auk þess farið góðum orðum um að styrkja fyr- irtækið vel og sómasamlega eptir megni. J>essa her að geta með þakklæti, því bæjar- búar liafa miklu minni not sjúkrahússins en aðrir. I>eir liggja optast í heimahúsum. prátt fyrir hinn fyrtalda styrk úr lands- sjóði og góðar undirtektir bæjarbúa hjer, var þó auðsætt, að talsvert fje skorti til þess að fyrirtækinu væri borgið svo vel væri. þ>að getur lítill vafi leikið á því, hverjum beri að greiða það, nefnilega hjeruðum þeim, sem nota húsið nærfellt eingöngu. — Allir þóttust þess og fullvissir að þau myndu bregðast vel við og í því trausti var samningur gjörður um byggingu á hinu nýja húsi, sem væntanlega verður bvggt að sumri. I>ess mun verða leitað til sýslunefnda í vetur að þær styrki byggingu nýja sjúkra- hússins. Jeg ber það traust til jteirra, að þær láti eigi sitt eptirliggja, og það því held- ur. sem miklu minna er af þeim krafizt, en hjeruðunum fyrir austan og vestan, er byggja sjúkrahús sín með frjálsum samskotum. Sjúkrahúsið hjer liefir eigi verið hjeruð- unum þungur ómagi til þessa, og verður það vonandi ekki framvegis, svo líklegt er, að eigi verði leitað styrktar þeirra árangurslaust í þetta eina sinn. Skyldu hjeraðsbúar bregðast trausti mínu og annara, sem reyna að reisa þeim gott sjúkrahús, þá ligggur mjer við að segja, að þeir væru rjettast komnir niður á ' ,/amla sjúkrahúsinH. Skyldu þeir bregðast vel við og rjetta fyrirtækinu hjálparhönd — Ja — þá yerður þess ekki langt að bíða, að þeir verði að leita á náðir Norðlendinga, s.;m komast vilja á bezta sjúkrahúsið á landinu! Að minnsta kosti fyrst um sinn. S a n n 1 e i 1; s á s t herra Skúia Thoroddsen. þ>að er með öllu dæmalaust, að nokkur maður hafi með sínu pólitíska atferli bakað sjer eins almenna fyrirlitningu um allt land og herra Skúli Thoroddsen hefir gjört, og því er það vel skiljanlegt, að hann finni hjá sjer löngun til þess að dfaga aðra niður í hina sömu fyrirlitningu, Af þessu hugarfari mun það vera sprottið, að Skúli Thoroddsen hefir skrifað grein í blaði sínu, sem út kom þann 26. f. m., sem hefir það eitt fýrir mark og mið að rægja mig og ófrægja i augum kjós- enda minna, það er nú einungts eitt að at- httga við alla þessa grein, og það er, að hún er öli frá upphafi til enda, og hvert einstakt atriði í henni ósannindi, vísvitandi ó- sannindi, tilbúin af herra Skúla sjálfum, til þess að reyna að koma mjer niður í sama dýkið, og hann er í, og til þess að reyna að draga blæjuna yfir sitt eigið framferði, I>ó nú þetta 1 sjálfu sjer ætti að vera nóg svar, þá skal jeg þó dálítið minnast á einstöku atriði í greininni, einkum þau, þar sem ósannindin koma áþreifanlega fram, og svo jafnframt af því, að greinin er í heild sinni svl* illmannlega rituð, eins og við er að búast af ritstjóra »[>jóðviljans unga«. I fyrsta lagi er það með öllu ósatt að herra Skúli Thor. hafi margopt lýst því yfir í nefndinni, að liann væri ríkisráðsfleygnum ósamþykkur; hann minntist aldrei á það í nefndinni, og talaði yfir höfuð lítið um mál- ið, eins og við flestir nefndarmcnn, nema þeir Bened. Sveinsson og Guðl. Guðmundsson, en hann gat þess einu sinni, að hann væri al- veg ósamþykkur bæði Valtísfrumvarpinu og hinu nýja, og að hann vildi hafa frumvarp fram, sem innihjeldi ákvörðun um »suspen- tivt vet,o«, on þegar enginn nefndarmanna sinnti því einu orði, þá skrifaði hann orða- og fyrirvaralaust undir álit meiri hlutans, og því var engin furða, þó alla ræki í rogastans, þá er Skúli fór að hamast á móti frumvarpinu. I>ar na?st fer sjálfur Skúli að halda því fram, að jeg hafi í rauninni verið með Val- týsfrumvarpinu, eða að minnsta kosti á báð- um áttum. Jeg skal nú í því efni taka fram, að það er á viiorði hvers einasta þingmanns í neðri deild — herra Skúla líka, því hann talar hjer þvert á móti betri vitund — aðjeg var einhver sá harðasti mótstööumaður Val- týsfrumvarpsins frá því fyrsta til þess síðasta, og þetta getur líka lxver maður sjeð í þing- tíðindunum, sjá, þegar málið var fyrst tekið fyrir, þingtíðindin B. 1897, dálk 34—40. f’egar nefndarálitið var útkornið, og hið nýja frumvarp var tíl 1. umr. sjá dálk 532. Við aðra umr. dálk 645 ogvíðar: við 3. umr. sjerstaklega dálk 783—-84, og svo loks þegar frumvarpíð kom aptur til einnar umrarðu í neðri deild dálk 1789 og þar á eptir. Með- an málið var í efri deila, þá skrifaðí jeg á- samt nokkrum öðrum þingmönntim undir á- skorun tilefri deildar um að samþykkja frum- varpið óbreytt, og lýstum vjer því jafnframt yfir. að yrði nokkuð fellt úr í efri deild, þá myndum vjer setja það inn aptur, sjcrstak- lega 1. gr. »ríkisráðsfleyginn svonefnda. Jeg hefði þá átt eptir þessu einungís að vera hikandi meðan málið var í nefnd frá 7. júlí til 24 s. m., óg það gefur 8kú!i líka í skyn, 'en jeg skal í fyrsta lagí bera það undir álla saninefndarmenn mína, að Skúla undanskild- um, og því næst undiralla skynberandi menn, hvort þeir haldi að jeg, sem mælti svo harð- lega á móti Valtýsfrumvarpinu 7. júlí og frá 24. júlí og þingtímann út, hvort jeg í hálfan mánuð hafi verið snortinn af ágæti þess, sem vjer þar að auki á fyrsta nefndarfundi felld- um frá frekarí umræðum, nei, en hítt er satt, og alkunnugt, enda sjezt á ræðum mínum á hinum tilvitnuðu stöðum, að jeg var mjög hikandi við það frumvarp, sem fram var bor- ið af nefndinni, og jeg varð framsögumaður að, því mjer þdtti það vera að falla allt of mikið frá hinum upprunalegu kröfnm, en eins og þá stóð á, gat jeg ekki annað en fallizt á það, og það einkuni vegna 1, greinarinnar unt ríkisráðið. Herrá Skuli Thoroddsen gefur í skyn með lians éigi óvenjulegu »perfidi«, að jeg hafi breyst allt í einu í veizlu, sem herra jón Vídalín hafi haldið mjer og fl.; í þessu ligg- ur nú fyrst, að herra Vídalín hafi haldið Veizluna fyrir mig, sjálfsagt til að »dorga« mig, og svo hafi aðrir feligið að vera með, þar sem þó sannleíkttrinn er sá, að herra Vídalín er vanuf að halda kaupfjelagsmönn- um bæði þingmönnum og öðrum veizlu, og «m þetta er engum kunnugra en Skúla, því hann hefir allaf vefíð boðinn í þá veizlu, þangað til í sumar, enda bar hann sig hálf aumlega út úr því, og ltafði það á orði bæði við mtg og aðra mötunauta sína, svo jeg hálf kenndi í brjósti um hann, og sagði hr. Vídalín frá því, eins og hann mun reka minni, til. Nú, þó jeg sje etíki rteitt við kaiipfjelog riðinn, þá var mjer þó böðið i þá veiziil, og noklírum öðrum, sem eitts stóð á með, en jeg minnist eigi, að þar Væri neitt talað um Stjórnarskrá, enda getur herra læknir [>(írður Tlioroddsen, — bróðir Skúla, — sem var í Veizlunni bezt borið um það. Um leið má geta þess, að þessi veizla var haldin n o k k r u a eptir, að vísa sú, sem Skúli prentar, hafði Staðið í blaðinu »ísland«, *vo það er allt á eina bókina lært hjá Skúla. [>ó efii nú þetta sttiá dtríði hjá þvf, þegar herra Skúli ber það fram, að jeg hafi stungið upp á hrossakaupitm víð hann og Guðl. sýslumann 1 stjórnarskrármálinu. [>etta erbláttáfram helber uppspuni, vísvitandi samansettur af Skóla, Sá einasti fótur fyrii' þessu er, að Skúli sjálfur sagði einu sinní við mig, er við urðttm samferða til mats, og stjórnarskrármálið var til 2. umf, »þú Verður eigi svo hafðltr á 1. gr., ef þeif fella hana burt í efrí deild». Jeg tók þetta seni spaug og svaraðí aptur í sama tón, «þft færð nú að sjá það« Lengra vat' það ekki og jeg var alveg búinn að gleyma þessu en það rifj- aðist upp fyrir mjer við grein Skúla*. [>anntg sjá allir hversu lipur herra Skúli er í því að snúa sannleikauum algjörlega við, og að hann einu sinni ekkí getur haldið sjer við hið forn- kveðna «fáir ljúga meir en helmíngnum». Úr því nú herra Skúli Thoroddsen hefir farið að segja frá því, scm á að gjörast bak við tjöldiu, skal jegsegja éina sögu ttm liann ; hún cr að því levti frábrugðin sögu Skúla um mig, að þessi saga, sem jeg nú ætla að segja, er alveg söttn og ltún heftr'annan kost, lnin lýsir Skúla svo ósköp völ. — I>egar stjórn- arskrítrmálið var til eínnar umræðn í neðri deild, þá tók Skúli einn þingmann úr bænda- stjett, sern ávattt hafðí ótrauður fylgt frum- várpi neðri deíldar, tali á gangínum fyrir frarnan neðri deíld, og fór að lciða honum fyr- ír sjónif, að hann ætti nú að greiða atkvæði gegn sannfæringu sinni, en þegar þingmað- nrinn vtir eigi alveg á því, þá sagði Skúli að hann skvldí þá skrifa skammir um ltann í blaði sínu. I>á svafaði bóndínn: þú tal- aðirekki svona við mig á síðasta þíngi, þegaf þú gekkst á eptir mjer með gfasíð í skónum, tíl að fií míg tíl að greíða atkvæðí með 5000 kr. til þín«. [>á labbaði Skúli í burtu. Að endingu skal jeg geta þess, að ef hr, Skiila ef mikið unt það að gjöra, að taka fram i blaði stntt sannfæringarleysí t stjórnar- skrármálínu, þá líggur dæmíð honum míkltt *) Setjum nú svo að þetta væri rjett bermt hjá Skúla, þá er eígi ófróðlegt að sjá, að þeír fjo- lagar eru reiðubúnir til að gjöra hrossakaup, í þossu velferðarmáli, og ætla sjcr svo að svíkja á eptir. eptir þvi sem Skúli sjálfur gefur í skyn. Hvað segir GuðlögUr s^slu- maður og dr. Valtýr til þessa?

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.