Stefnir - 21.08.1899, Síða 3

Stefnir - 21.08.1899, Síða 3
sonur frú Hilclar Jónsdóttur frá Grenjaðarstað. Byggja menn þessir hús á höfðanum fyrir Ofan Alaireyri, og ráðgjöra einnig að hafa stöðvar upp á Vaðlaheiði og Súlum. Fiskafli á Eyjafirði er stöðugt allgóður að öðru hverju. Með ágústmánaðarbyrjun kom og góður aili á Húsavík, Raufarliöfn, þ>órshöfn, Vopnafjörð og flesta firði á Austur- landi; útræði er einkum mikið á Vopnafirði og Seyðisfirði, 3 eða 4 gufuskip fara út með báta á Seyðisfirði til þorskveiða, og í síðustu viku komu þau inn daglega livert um sig með 3—4 þús. af vænum fiski. Meðan ritstjóri þessa blaðs dvaldi á Seyðisfirði 10—15. þ. m. var þar hið mesta fjör í allri sjósókn, og síld fjekkst suma dagana nægileg til beitu, náðist og þá dagana í vörpu á Reyðarfirði svo hundr- uðum tunna skipti. Veðrátta á Norður- og Austurlandi má heita hagstæð til heyskapar; þótt óþurkar hafi verið að öðru hverju, hafa allt af komið góðir þurkdagar á milli, svo heyin hafa náðst. Rigningarnar hafa verið öllu meiri nyrðra en eystra, sem þó er óvanalegt. Verslunarsamkeppnin er nú eigi lítil á Norður- og Austurlandi. Hjer var lýsið sett upp í 30 kr., eins og áður er skýrt frá í blaðinu, og ullina settu Austfirðingar í 60 aura. Búizt er við, að kjöt verði í háu verði í haust. Hval fertugan fann hákarlaskipið Æskan á hafi úti, og kom með hann bingað inn fyrir helgina, svo menn eru hjer nú á hval- fjöru. Hvalurinn var óskemmdur að kalta. Hvaladráp fyrir Austfjörðum. Austur fyrir land eru nú hvalamennirnir á Vestfjörð- um farnir að sækja hvalina, Fyrir stuttu komu þeir með 7 hvali inn á Seyðisfjörð, er skotnir höfðu verið þar úti fyrir, og lögðu með þá vestur þaðan. Skemmtisamkomu hjeldu Seyðfirðingar 13. þ. m., og sóttu hana nokkuð á 2. þús- und manna. Fr. Wathne lánaði gufuskip til að flytja fólk af næstu fjörðum. Sam- koman stóð á afgirtum túnbletti á Fjarðar- aröldu. Flest var fólkið úr Seyðisfirði og úr næstu fjörðum, en fremur fátt ofan af Hjer- aði. Samkoman byrjaði með ræðum og söng í milli. Fyrst talaði Sigurður hreppstjóri á Hánefsstöðum (frá Sævarenda), skýr maður og vel máli farinn. Næst talaði porsteinn Er- lingsson, og er hann uppáhaldsræðumaður margra Seyðfirðinga. «J>að er fyrst gaman þegar hann fer að tala», sögðu margir fyrir framan ræðupallinn, meðan beðið var eptir honum. I’á var sungið nýtt kvæði prentað eptir sama, Síðar um daginn talaði Skapti Jósepsson og porsteinn í annað skipti, þá talaði Friðbjörn Steinsson frá Akureyri og síðast síra Stefán Sigfússon. ltömler smjör- fræðingur talaði þar og um ferðir sínar hjer á landi, og hvatti bændur til að fá sjer skil- vindur. Hann tók fram að smjörgjörð gæti efalaust borgað sig eins vel hjer og í Dan- mörku. ísland hefði þá bestu smjörmjólk, sem liann þekkti, og sagði að töðufóðrið mundi eigi dýrara (en framleiddi betri mjólk) heldur en kornfóður og olíukökufóður, sem Danir yrðu mikið að nota. Söngurinn var góður á samkomunni, enda eiga Seyðfirðingar söngfróða menn og söngmenn góða, þar sem eru þeir Kristján Iæknir, Lárus Tómasson, I>orsteinn Skaptason, Arni Jóhannsson og ef til vill fleiri. Hlaup og stökk og önnur leik- fimi var reynd á samkomunni, og hafa sumir ungir menn á Seyðisfirði nokkra æfingu í þessum íþróttum. Sjónleikur var þar sýndur á bersvæði (Varaskeifan, þýddur leikur) þó var tjaldað í kringum leiksviðið. I>egar dimma fór, var flugeldum skotið um stund, heppnuð- ust þeir vel, og mun öllum hafa þótt fögur sjón. í þremur hornum samkomusvæðisins voru seldar veitingar um daginn, var Bakkus einvaldur í einu þeirra, og var þar um stund mestur aðgangurinn, en minnst var þar út- haldið, því þegar degi tók að lialla,. var það liorn hroðið , og sáust ei eptir nema rústir einar, sporðreist borð og bekkir hvað ofan á öðru, en hin hornin voru við lýði fram á nótt. Veður var stillt um daginn, en rigning nokk- ur. Yfirleitt mun fólk hafa skemmt sjer vel á samkomunni. Aðalfundur Gránufjelagsins var haldinn á Seyðisíiröi 12. og 14. þ. m. Mættir voru 11 fulltrúar af Norður og Austurlandi. Reikn- ingar fjelagsins fyrir 1897 og 98 voru fram- lagðir endurskoðaðir og úrskurðaðir, ásamt skýrslu um efnahag fjelagsins við árslok 1898, Um reikningsmál fjelagsins urðu allmiklar umræður, sjerstaklega hina miklu skuldasúpu viðskiptamanna. Var ákveðið að framvegis skyldi taka vexti af útistandandi skuldum. Endurkosinn var í fjelagsstjórnina síra Davíð Guðmundsson, og endurskoðendur kand. Jóh. Halidórsson og amtsskrifari Júlíus Sigurðsson. (jlem ikke at skrive etter Pröver! 5 Alen ægteblaa, sort eg bruu C h e v i o t til eu Klædmug 5, 8, 9'/2 1 ií*/*■ og 18 V2 Kr. 5 Alen heluld, sviert B u c k s k i n 7, 80, Sl/t 11 kr. Do do do do af tvundet G arn og meget stærkt 13, 14, lö1/., Kr. 5 Aieu ægte biaa og sort Kamgarn 18V2 21 Kr. Alle V arerne ere mere end 2 Aleu brede, Pröver seudes franko til Islaud. Yarerne gode, Priserue lave, og alt hvad ikke fuldt ud tilfredsstiller, t a g e s helst tilbage og Portoudlæg godtgjöres. Skriv eí'tcr Pröver Joli. Löve Osterbye, S æ b y Danmark. Brúkaðu Fiueste Skandinavisk Exporf Kaffe Surrogat það er ódýrasti og bezti kaffitilbúningur, sem fæst í verslunum. F. Hjort & Co. Köbenhavn K. bókbandsverkstofa á Odtleyri. Háttvirtu bæjarbúar og nærsveitamenn! Jeg undirskrifaður tek bækur í b a n d og vinn allt, er að hókbandi lýtur, fyrir svo lágt verð, sem unnt er. Jeg mun gjöra mjer allt far um, að leysa verkið svo velaf hendi, sem unnt er. Sigurður Sigurðsson. í bókaverslnn Frb, Steinssonar: Sex sönglög e. sr. B. porsteinsson 0, 75 Hátíðasöngvar e. sama höfund. 1, 50 í fyrra vetur varð jeg veik, og snjerist veikin brátt upp í hjartveiki nieð þarafleið- andi svefnleysi og öðrum ónotum; fór jeg þvi að reyna Kína-lifs-elixír herra Yaldi- mars Petersens, og get jeg með gleði vottað, að jeg hefi orðið albata af þrem flöskum af tieðum bitter. Votumýi i. Húsfreyja Guðrún Eiríksdóttir. pegar jeg var 15 ára götnul, fjekk jeg óþolandi tannpínu og þjáðist af henni meira og minua í 17 ár; jeg hafði leitað þeirra lækna — allopatiskra og homöopatiskra — erjeggat náð í, og loks fór jeg til tveggja tannlækna, en ekkert dugði. þ>á fór jeg að nota Kína-lifs-elixír þann er, hr. Valdimar Petersen í Friðrikshöfn hýr til, og þegar jeg var búin með 3 glös af honura, batnuði mjer, og hefi jeg ekkert fundið til tannpinu nærri því 2 ár. Jeg mæli því af fullri sannfæring með fyrnefndum Kína-lífs-elixír hr. Vald. Petersens handa hverjum þeim, er þjást af ta'nnpínu. Hafnarfirði. Margrjet Guðmundsdóttir yfirsetukona. Jeg undirskrifuð hefi mörg ár þjáðst af móðursýki, bilun fyrir hjartanu og þar at leiðandi taugáveiklun. Jeg hefi leitað margra lækna. en alveg gagnstaust. Loks- ins tók jeg upp á að reyna Kína-lífs-elixír, og þegar jeg var búin með 2 glös, fann jeg bráðau bata. púfu í Ölfusi 16. sept. 1898, Ólafía Guðmundsdóttir. Kína-lífs-elcxíriiin fæst hjá flestuni kaupmönnum á Islandi. Til pess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elexír, eru kaupendur beðn- V. P. ir að líta vel eptir því, að —p— standi á fföskunam í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á fiöskumiðanum: Kínvei’ji með glas i hendi, og tírmanafnið Valdemar Petersen, Nyvej 16. Köbenhavn. Fiskverðið hjá Akureyrarkaupmönnum er í sumar 58 kr. skpd. af máli, 48 af undir- máli, og 38 af ísu. Blautfisksverðið hefir verið 6 au. pd. af máli, 4 au. af undirmáli og 3 aura af ísu, en er nú frá 20. þ. m. sett niður í 5 au. pundið af máli, 3 '/2 af undir- máli og 2'/ af ísu. Stafar verðfall þetta af því, að eigi er húist við að fiskur sem aflast þjer eptir verði verkaður í sumar, en hæpið að háa verðið á fiskíhum haldist næsta ár.

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.