Stefnir - 22.08.1900, Qupperneq 1
Verð á 24 örkum er 2 kr., erlendis
2 kr. 50 au. tíorgist fyrir 1. ágúst.
Uppsögn ógild, nema komin sje til út-
gofanda 1. október.
14. blað.
Sparisjóður
jNorðuramtsins
er almenningseign, og er hann stofnaður til
að greiða fyrir viðskiptum manna í Norður-
íimtinu, og styðja að framförum atvinnuveg-
anna. Sjóðurinn er tryggður með 4000 kr.
ábyrgð 20 húseiganda og efnamanna í Akur-
•eyrarbæ, svo og með varasjóðnum. Síðan
sjóðurinn var stofnaður 1898, hefir hann grætt
tim 500 kr., sem.er eign íbúa Norðuramtsins.
Eyrir því er skorað á almenning, að styrkja
almenningsheill með því að leggja fje í sjóð-
inn.
Allar sparisjóðshækur fást lijer eptir ó-
keypis.
Skrifstofa sjóðsins er í húsi amtmanns
Páls Briems, og er hún opin á hverjum mið-
■vikudegi kl. 12.—1.
INýjar bækur
í bókaverslun Frb. Steinssonar.
Jón Arason, leikrit e. sra. Matth., verð: 2,50
Ljóðmæli Guðm. Guðmundssonar — 2,50
Hrói Höttur. skáldsaga — 0,75
Keikningsbók E. B. II. partur — 0, 60
Myndabók handa börnum — 0, 50
Ljósmóðirin, Dr. Jónasen — 2,00
Drottins verk, Jón Helgason. — 0,25
bjóðvmafjelagsbækurnar 1900, Andvari, AI-
manak og J>jóðmenningarsaga Norðurálfu.
UM
lieimssýninguna í París.
Laugardaginn 14. apríl var heimssýningin
í París opnuð, eins og kunnugt er, með mikl-
iim hátíðabrigðum. Fallbyssuskotin dundu
tint alla Parísarborg, þegar forseti Erakka,
Loubet, kom í hátíðasal sýningarinnar, til
að vígja hana. þ>jóðsöngur Frakka, »Marseil-
laisen«, hljómaði frá geysistóru »orkestri«,
stjórnað af ekki færri ön fjórum söngstjórum,
út til hinna mörgu þúsunda, sem við voru
staddir, og að honum loknum afhenti verslun-
arráðgjafinn, Millerand, forsetanum sýninguna.
Verslunarráðgjafi Frakka, sem einnig er sett-
ur yfir atvinnumál, póst- og ritsímamál rík-
isins er hinn fyrsti sósíalisti, sem hlotið
hefir ráðgjafatign, og engin önnur þjóð í
Norðurálfunni en Frakkar hefðu geta opnað
heimssýningu, þar sem fvrsti maðurinn, sem
talar, er ráðgjafi, sem er sósialisti. [>að er
einsfcætt í sögu þjóðanna. — A sama augna-
bliki og Loubet forseti lýsti því yfir, að sýn-
ingin væri opnuð, voru frakkneskir fánar
dregnir upp bæði við aðalinnganginn á
Concorde - vellinum og Eiffelturninum.
Um kvöldið þennan dag, sem sýningin
var opnuð, var ekki að eins sjálft sýningar-
TEF
svæðið, heldur einnig borgin öll eitt Ijóshaf,
og flögg og fánar, skrúðbönd og blómsveigar
vöfðust í öllum regnbogans litum innan um
ijósgeislana. íslenzk ungfrú, sem býr í París,
skrifar á þessa leið: í kvöld (14. apríl) er
París eins og æfintýraheimur með ótal mörg-
um töfrahöllum, blikandi í rafurmagnsljósum.
Langar leiðir burtu sjest Eiffelturninn í rauð-
um bengólskum loga. Allt er það eins og
draumur gjörður að lífi, eða æfintýri úr þús-
und og einni nótt.
[>að er ekki fyr en um miðja þessa öld,
að farið er að halda heimssýningar. [>að
voru Englendingar, sera höfðu upptökin með
sýningu í Krystallshöllinni í London 1851.
Síðan hafa Frakkar haldið þær llestar. [>essi
í ár er sú fimmta í röðinni, sem haldin hefir
verið í París. A þeim ellefu árum, sem lið-
in eru síðan síðasta sýningin var haldin þar,
1889, hefir mannlegt hugvit skapað svo margt
nýtt með notkun rafurmagnsins, að sýningin
í ár er miklu stórkostlegri, fullkomnari og
betur úr garði gjörð en sýningin 1889. Auð-
vitað er hún ekki eins víðáttumikil og
Chicagósýningin 1893, en að allri smekkvísi,
tilhögun, fegurðarblæ og að öllu listasmíði
kvað hún bera af Chicagósýningunni.
Sýningarsvæðið liggur beggja megin við
Signufljótið á forkunnarfögrum stað í miðri
borginni, og er allt 434,280 □ faðmar eða
482 dagsláttur. [>að er eins og landspildan,
sem líeykjavík stendur á, innan línu, dregin
frá sjónum inni við Rauðará, upp að Steinku-
dys, yfir tjörniua og út að Bráðræði niðnr að
sjó. í sex ár hafa mörg þúsund manna verið
að undirbúa sýninguna, og til Parísborgar
hefir því streymt undanfarin ár aragrúi af
fólki til að leita sjer atvinnu, verkamenn,
smiðir, listamenn og mannvirkjafræðingar,
og eins í ár til aðstoðar á sýningunni hafa
farið þangað bæði karlar og konur hópum
saman. Sýningin kostar Frakka eina ekkert
smáræði, 100 milljónir franka. Ríkið leggur
fram 20 millj., Parísarborg 20 millj. og 60
millj. er ætlast til, að komi inn við sýning-
una fyrir aðgöngumiða o. fl. Sýninguna síð-
ustu í París sóttu yfir 28 millj. manna eða
eins margir og búaí Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð, Hollandi, Belgíu, írlandi og íslandi til
samans. í ár telja menn að aðstreymið verði
allt. að helmingi meira. T. d. komu frá N-
Ameríku einni um 300,000 manna, eða helm-
ingi fleiri en á sýninguna síðustu í París.
Sá heitir Alfreð Picard, sem er aðal for-
stöðumaður sýningarinnar, og hefir það ekki
verið neitt smáræðisverk að koma öllum sýn-
inffarafurðum alls hins menntaða heims svo
O
fyrir á tiltölulega litlu svæði, að vel fari.
[>að leiðir af sjálfu sjer, að þar sem saman-
STEENIR.
Áttundi árgangur.
AKUHEYRÍ, 22. águst.
Auglýsingar kosta eina króöu hver
þumiungur dálks á fyrstu síðu, aun-
ars staðar í blaðinu 75 aura. Smá-
auglýsingar borgist fyrirfram.
11)00.
komnir eru svo hundruðum þúsunda skiptir á
jafnlitlu svæði, yrðu þrengslin æði mikil, ef
ekki væri greitt fyrir umferð allri með sjer-
stökum samgöngufærum. [>að hafa Frakkar
gert og þau svo spáný, að sjálft stórblaðið
»Le Figaro« er að lýsa þessu nýja samgöngu-
færi fyrir Parísarbúum sama dag og sýningin
er opnuð. Frakkar kalla það »platforme mo-
bile«; það er nokkurskonar hreifanleg gata
eða gangstjett, sem líður áfram viðstöðulaust,
en ekki hraðara en svo, að hver, sem stígur
út á hana, á ekki á hættu að missa fótanna
við það, nema hann sje því meiri klaufi.
Hún er bygð á stólpum. 20 álna háum frá
jörðu, og eru þrep upp að ganga fyrir þá,
sem vilja nota hana, og ber hún þá áfram
að eins í eina átt. Til að skilja strauminn
fer aptur rafurmagnslest í hina áttina. Hreif-
anlega gatan fer eina umferð á 35 mínútum
um aðalsýningarsvæðið, og umferðin kostar
fyrir mann 35 aura.
Nokkuð líkt þessu kvað vera farið að tiðk-
ast í húsum í París í stað stiga og lyptivjela.
Yið vitum að lyptivjelarnar (elevatorar) ganga
þráðbeint upp á loptin og vegna þungans, sem
þess vegna er svo mikill á þeim, er hætt við
að þær geti haggast, bilað og valdið tjóni.
í stað þeirra eru nú Frakkar farnir að nota
þaðt sem þeir nefna »tapis roulant«, Danir
arullende Tæppe« og við gætum ef til vill
nefnt veltidúk. Hugsið ykkur stiga eins og
almennt gerist í stórum húsum með mörgum
loptum, en án þrepa, maður gengur í hús-
in stígur á dúk líkt og úr kautschuki, sem
líður með mann: upp stigann og er svo teyg-
janlegur, að hann beygir um stigahornin og
skilar ykkur á það lopt, sem þið viljið fara á:
hann nemur ögn staðar á hverju lopti, en
líður að öðru leyti viðstöðulaust áfram upp,
og niður annan veg.
*
Til þessarar stóru heimsstefnu í París
hafði Frakkastjórn upphaflega boðið 56 rík-
jum út um allan heim, ’ en það urðu ekki
tleiri en 39 ríki, sem gáfu sig fram. Smá-
ríkin sum vantaði fje eða þeim þótti það ekki
svara kostnaði, að taka þátt í svo stórri sýn-
ingu við hliðina á stórveldunum.
Öll ríki Norðurálfunnur nema Montenegro
talca þátt í sýningunni svo og Bandaríkin,
Mexico, mörg ríki í Suður- Ameríku (þó ekki
Brasilia) Marokko o. fl. ríki í Afríku og Jap-
an, Kína, Siam, Korea og Persia o. fi. að ó-
gleymdum Búunum, sem menn hvarvetna
dást að, og hafa haft rænu á að skipta sjer
af sýninguntii þrátt fyrir allan óskundann og
öll ærslin heima fyrir.
Sýningin er aðallega á 4 stöðum: Marz-
vellinum og lnvalida-flötinní öðrumegin við