Öldin - 01.08.1894, Page 4

Öldin - 01.08.1894, Page 4
116 ÖLDIN Ég gat Jiess áður, að Aryanar þessir á Indlandi hefðu upprunalega dýrkað hina sárstöku fyrirburði náttúrunnar og álitið yíirnáttörleg öfi. Snemma á þessu náttúru- dýrkunar-tímabili var byrjað að skipa hina sárstöku náttúrufyrirburði í flokka innan þeirra ýmsu, ímynduðu verkahringa. Af því leiddi svo tilhneiging til að uppgötva eindrægni meðal þeirra. Á þennan hátt fengu Aryanar ákveðinn guðaijölda, guð- dómlegar tilverur, er hver fyrir sig réði yflr ákveðnu starfsviði. Vald og sérskild áhrif þessara guða á samsvarandi atburði mannlífsins, var svo smá-aukið og guðun- um gefnir mannlegir ciginleikar og líffæri. Á j ennan hátt urðu guðirnir æðstu stjórnendur náttúruaflsins. Ekki þar með búið. Efni í nýja guði var sótt í siðalær- dóma og siðferðisskyldur manna, og fjölg- uðu þeir því enn meir. Og allir þessir guðir voru gæddir guðdómlegu valdi, mannlegu eðii og mannlegri sta>'fsemi. Aryanar fundu 1-C?s vegna brátt þörf á að skipa guðunum í flokka, að gera þá jafna að valdi og að koma upp slcipulegu guðs- musteri (Pantheon) handa öllum þessum guðafjölda. Skilningur þeirra á náttúr- unni réði þeirri skifting og niðurröðun, öldungis eins og hún réði hugmyndinni um guðina sjálfa. Þeir hugsuðu sér því guðina alstaðar, á himninum, í loftinu, í vindinum og á jöi'ðunni. Sólin, vindurinn og eldurinn urðu svo aðal guðatilverumar. Eftir að hafa gert þessa gjörráðu flokka- skifting, og jafnvel áður en þeir fluttu austui' yfir Indus, byrjuðu Aryanar að á- kveða skyldleiks-afstöðu þriggja þcssara guða, sólar, vinds og lofts. Kom þannig fram ósjálfráð löngun til að sameina guð- ina og vald þeirra, enda voru Aryanar svona snemma farnir að ákvarða guðunum sérstaka eiginleika. Þannig hugsuðu þcir sér einn æðstan, algerlega einvalda tilveru, cr þeir nefndu Brahaman. Er það í fyrsta skifti að það orð kemur fyrir í trú-breyti- þróunarsögu Indo-Aryana. Stofn þess orðs er Sanskritarorðið brh eða vi, og þýð- ir breytiþróunarhugmynd eða framför per- sónulegs anda, guðhræðslu og tilbeiðslu, Alt þetta var kallað Brahaman. En auðvit- að þýddi þetta orð á þeim tíma ekki hina Brahmisku stéttaskipun, er síðar varð til. I virkileikanum gat þetta samt sem áður ekki orðið föst eingyðistrú, af því skilning- ur Indo-Aryana á því var að eins óljós hugmynd. Þvert á móti létu þeir einn af sinum aðal-guðum á víxl hafa ótakmarkað æðsta vald og dýrkuðu þá þannig sinn í hvort skiftið sem sinn æðsta guð. Sólguð- inn f'ékk þetta vald fyrstur, en alt í gegn- um hið Vediska tímabil halda loft og eld- guðirnir þessu æðsta valdi, vegna þeirra nánari áhrifa á mannlíflð. Hvernig voru þá guðir þessir dýrkað- ir ? Þeir voru ákallaðir og lofaðir með söngvum og þeir voru tignaðir með fórn- færingum. Og' hverjir sömdu þessa sálma ? Það gerðu menn er nefndir voru Rishis, nefnilega leiðandi mennirnir í hvorum ein- um flokki og ættbálki. Þeir voru höfundar allra sálma um Agni, eklinn, um Vayu, vindinn, um Surya, sólina, og hina aðra guði. Jafnvel þó þessir Rishis væru skáld hirðingja og flökkuþjóðar, megum Vér ekki gera lftið úr hinu sérstaka gildi kvæðagerð- ar þeirra. Ef einhverjir af samtíðamönn- um vorum væru kvaddir til að kveða lof um sól, tungl ogstjörnur, mundu þeir ekki, þrátt fyrir alt vort 19. aldar mentaglamur, gera betur en hin gömlu skáld Vediska tfmabilsins. Vér verðum jafnframt að hafa hugfast hvernig lifnaöarháttum þessara manna var varið á þciin tíma. Á mcðal Aryönsku þjóðanna bjuggu ættbálkarnir hver út af fyrir sig og umgengust lítið aðra, og höfuð livcrrar fjölskyldu var undir eins prestur og dómari hennar. En á meðal þeirra var engin allsherjar prestastétt, né kyrkjuveldi, jafnvel ekki á seinustu tímum Brahmanismussins. Hver ættbálkur hafði sfna sérstöku ljóðasmiði,

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.