Öldin - 01.08.1894, Síða 5

Öldin - 01.08.1894, Síða 5
ÖLDIN. 117 eða heilög skáld. 0g skáld hvers flokks fyrir sig ortu í ákaía hver í kapp við ann- an stórkostlega og áhrifamikla sálma, sem áttu með sínum háfleygu liugsunum, krafti og málskrúði, að neyða guðina til að vernda lýðinn írá uppskeru og grasbresti, hungri, ofsóknum óvina þeirra, en gefa hinum Aryönsku þjóðum auðæfl, heilsu og hraust og voldug afkvæmi. Að hafa framleitt sálma sem gátu kom- ið öllu þessu til leiðar, svona snemma á tímum, var þýðingarmikið fyrir þjóðfélag- ið. Það varð meðalið til að sameina ij'ölda af þessum ættbálkum, er þá tilbáðu sömu guðina. Á þennan hátt safnaðist smám- saman mesti sægur af söngvum og sálmum í sambandi við fórnfæringarnar. Því sálmasöngur auðvitað kom á eftir fórnfær- ingunum. Til fórna var haft: hestar, naut og Soma-lögur.* Af þessu leiddi að seri- moníurnar og guðsþjónustureglurnar urðu með tímanum æ flóknari og yfirgripsmeiri. Um þetta leyti kom líka fram stórvægileg breyting á hinar reikulu reglur náttúru- tilbeiðslunnar á meðal Aryönsku þjóðanna við Indus. Náttúrudýrkunin og dýrkun guðanna með fórnfæringum var lcomin á sitt hæsta stig. Soma-fórnin, ásamt öðrum fórnum fengu þá persónulegt gildi og voru í virkilegleikanum gerðar að guðum, sem jafn vel voru guðunum æðri. Þetta var lneinn uppspuni klerkanna, gert í þeim til- gangi að auka vald þeirra. Guðirnir voru álitnir að þurfa að vera þakklátir fyrir fómfæringarnar og voru álitnir þyrstir í Soma-vín. Soma er álitið að styrki Indra (þrumuguðinn) í bardaga hans við illa anda. Það var þessi guðaþrenning, Soma, fórnfæringarnar og sálmarnir sjálflr, sem átti að liafa verið til frá alda öðli. Þessi sálmadýrkun jók fram úr hófl álit höfund- *) Soma-lögur er áfengisdrykkur úr plönt- unni Soma, eöa tungljurt (Asclepias acida). Var þeim legi fórnað Soma og öörum guöurn til dýrðar. Þýb. anna og þeirra ættbálka, sem mann fram af manni stóðu fyrir hinum opinberu fórn- færingum. Þetta tímabil er einkennilegt fyrir það, að þá byrjaði Vediskur lærdóm- ur og Vediskar bókmentir. Án nokkurrar þekkingar í þessu er nærri ómögulegt að komast að nokkurri niðurstöðu í tilliti til hinnar flóknu andlegu og mannfélagslegu sögu Indlands, vegna þess, að öll Vedisku ritin ganga út á að gylla og mikla þjóðfé- lagslega yfirburði Brahmatrúarmanna. Þau urðu ekki orsök í klerkaveldi heldur stéttaskifting, stofnun geistlegrar stéttar. Á þeim var bygð mergð mikil af trúfræð- isskólum og á þeim voru bygðar siðferðis og geistlegar reglur, lög, fyrirskipanir og kenningin um sálnaflakkið, sem er hin orþodoxa-Vediska kenning. Þegar þessum trúbrögðum fór að hnigna, urðu Vedisku ritin einnig orsök í hinum frábreyttu skoð- unum, sem nefndar eru Sakhya-heimspeki, sem Kapila var höfundur að; þau urðu enda orsök í sjálfum Buddha villukenning- unum. Nafnið Veda er komið af Sanskritar- stofnorðinu “vid,” að vita. Vedabækurnar eru þess vegna samsafn af trúfræðum, er öll eru byggð á hinum elztu sálmum Arv- önsku ættbálkanna. I upphafl voru þær ekki skráðar, en innihald þeirra alt geymd- ist í minnum manna og gekk þannig mann frá manni óbreytt í sinni upprunalcgu mynd. Skrifuðu bækurnar, scm nú eru til eru miklu yngri. Þcssar Vcdisku bækur skiftast eftir efni í þrjá aðal-flokka: San- hita-safnið; hinar prestlegn ræður og út- skýringar, er nefndar eru Brahmanas; og hinar kanónisku bækur, hina óendanlegu þvælu af sögulegu efni, helgisiðareglum, fyrirskipunum og lögum, sem í heild sinni nefnist Sutra-safnið. [Niðurlag næst.]

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.