Öldin - 01.08.1894, Síða 6

Öldin - 01.08.1894, Síða 6
118 ÖLDIN. MIKIÐ YILL MEIRA. Eftir IIerbebt Spencer. [Lausleg þýðing,] Alment álit skynsamra manna & þjóð- félagsskyldum og athöfnum verður í reynd- inni ekki ósjaldan að römmustu öfugmæl- um. Alt gengur öfugt við það sem ætlað var. Þegar bók er löstuð, eða þegar reynt er að hindra útbreiðslu hennar með laga- valdi, selzt hún hundraðfalt meir en ann- ars. Þegar lögin takast í fang að vernda ídþýðu fyrir okraraieigu af lánspeningum, þrengjast um helming kostir jpeirra cr þurfa að fá peninga til láns. Þó cr þcssi þvergirðingsnáttúra einkennilegust að því leyti, að þess meiri umbætur scm eru gerð- ar, þess almennari verður klögunin yfir að alt só að hríðversna. Á meðan alþýða hafði cngin pólitisk áhrif og því síður völd heyrðist lítið sem ekkcrt kvartað um undir- okun. En eftir að stjórnfrelsi var aukið og alþýða var tekin til greina á Engiandi svo að meginlandsalþýðan í Evi'ópu öfundaði enska Jýðinn, eftir það byrjaði klögunin yfir höfðingjastjórn. Sú kvörtun og kiög- un óx og margfaldaðist þangað til enn meira írelsi var veitt og kosningaréttur og kjörgengi gert enn almennara. Sú breyt- ing til batnaðar var ekki fyr fcngin en uppreis enn meiri klögun yfir, að alt færi versnandi af'því að ekki fengist enn meiri losun á öllum böndum. Athugum meðferð kvenna frá fyrstu tíð og fram á vora daga. Fyrrum máttu konur bera byrðar eklci síður en mennirnir og sætta sig við að ncyta úrgangsins á borði eftir að mennirnir iiöfðu matast. Á þeim tímum kvartaði engin þeirra um illa meðferð og leið svo langt fram eftir. Nú á tímum sitja konur hvervetna fyrir karl- mönnum, um þær og, þeirra þægindi er hugsað fyrst af öllu. Og einmitt nú, þeg- ar upphefð þeirra er svo mikil, rís klögun- aróp þeirra hærra og hærra og verður æ almennara í Evrópu, til styrktar ópinu úr kvenna-paradísinni—Ameríku. Fyrir hundrað árum var sjaldsén sá maður, sem ekki varð ölvaður endrum og sinnum, enda alment að sá maður var fyr- irlitinn, sem ekki gat drukkið úr einni eða tveimur fiöskum af víni. Þá fáraðist eng- inn um svívirðing ofdrykkjunnar. En nú, þegar tiltöluleg hófsemi er almenn, eftir 50 ára starf bindindisfélaga, aulc þess er ýmsar aðrar ástæður hafa orsalcað vaxandi hófsemi; eftir að svona er komið og hóf- semi ríkir, er úr öllum áttum að heyra frckjnleg óp um lög, er fyrirbyggi hina eyðileggjandi ofdrykkju. Sama er að segja um alþýðumentun. Það eru ekki svo margir mannsaldrar síðan heldri menn einir voru læsir og slmfandi. Þá datt eng- um í hug að æskja eftir jafnvel einföldustu undirstöðumentun fyrir lýðinn, cða, ef upp á slíku var stungið, var bara hlegið að þeim er flutti málið. En á dögum afa vorra, þcgar sunnudagaskólarnir fóru að útbreiðast, og þegar svo daglegir skólar fylgdu þar á eftir, svo að meðal fjöldans var það ekki lengur neitt afbrygði að vera læs og skrifandi, þá var það að byrjaði hrópið, að lýðurinn væri að farast vegna þekkingarskorts. Þá var heimtað að liið opinbera tækist í fang að uppfræða lýðinn, og ekki nóg með það: þvingunarlög voru einnig heimtuð af stjórninni, svo að þegn- arnir skyldu mega til að mentast. Líti maður á ástand almennings í heild sinni, að því er snertir fæði, klæðnað, húsa- kynni og almenn vinnuáhöld, þákemurhið sama í ijós. Að undanskildu hirðingja timabili fyrri alda, sér maður við saman- burð live mikil f'ramförin Iiefir verið frá þeim tíma, þegar flestir sveita og alþýðu- menn neyttu byggbrauðs og rúgbrauðs, til yfirstandandi tímans, þegar allir borða brauð úr hvítu hveitimjöli. Þá var hnésíð úlpa úr ruddalegasta efni aðalskjólfat karl- manna, en fótleggirnir verjulausir upp fyr- ir hnö. Nú er enginn svo armur að ekki

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.