Öldin - 01.08.1894, Qupperneq 12

Öldin - 01.08.1894, Qupperneq 12
124 ÖLDIN. portinu að engin roátti armi lypta svo alt lenti í óðum áflogum; héldust hinir fremstu liryggspennu, en hinir hrundu hver iiðrum svo alt varð í reiðingi og loks gat enginn hreyft hönd eða fót og lá þá við sjálft að menn træðust til bana. Eeyndu sumir með járngreipum að fella fjandrnenn sína, en aðrir höfðu herðar og axlir fyrir fleyg og vildu sprengja þröng- ina, en hvergi gekk. Loks sprungu raðirnar fyrir þrýstingnum og hér um bil helmingur dátanna gat brotizt út fyrir virkið, enn hinn helmingurinn varð aftur umkringdur og innibyrgður í kastalanum. Nú fyrst hófst regluleg atlaga. Börð- ust menn þá í ákafa með bareflum, staur- um, keyrum og knúum. Greiddust þar þá inörg liögg, sem heldur liefðu átt að lenda á Króötunum hans ísólana, og margt þrekvirkið yar þar unnið, sem sæmt hefði betur Þýzkalands vígvöllum. Dátamir vora að vísu fleiri, en hliðið skifti þeim í tvær sveitir og fyrir því urðu þeir að lúta. Nokkrir þeirra, og það voru hinir yngstu, lögðu á flótta og leituðu til bæjarins, aðrir urðu ofurliði bornir og voru lúbarðir, en hinir, og það voru hinir gömlu og reyndu hermenn, hopuðu á hæli og létu virkisvegginn hlífa bökum sínum, veittu svo viðnám og vörðust sem óðir væri. Og nú er svo þótti sem bændur hefði sigurinn í hendi sór, kom óðara breyting á bardagann, því að þeir, sem gæta áttu útihliðsins höfðu gleymt óvinum sem inni voru í garðinum, cn nokkrir þessara ruddust á þá og báru of- urliði og þustu þá allir út til liðs við þá, er vörðust við veggina. Nú skipti um, því dátarnir lilupu nú á bændurna mcð enn meiri ofsa og mátti nú ekki í milli sjá, þóttust hvorirtveggja eiga sín í að hefna og gjörðust því æstari sem jöfnuðurinn varð meiri á báðar hliðar. Og ofan yflr þenna hrikaleik, hávaða, högg og slög, óp og æðisgang, skein mán- inn ög liorfði eins og himneskt auga niður yfir jarðarinnar sjálfskaparvíti, eymd og örvingían. Allar víkur skinu í tunglsljós- inu; í laufl trjánna og röku grasinu glóðu daggirnar eins og ótölulegir gimsteinar á sumarsins græna feldi; öll náttúran angaði frá sér óumræðilegum friði; mildan and- vara lagði vestan frá hinu kyrra blikandi hafi inn yfir strandbygðir landsins; heyrð- ust í fjarska dunur sjávarbrimsins við ströndina meðan kvöldstjörnurnar spegluðu sig í hinum lygnu öldum. Nú er garðurinn var manntómur, dirfðist frú Marta að ganga með fangavörð- um sínum út fyrir til að horfa á bardagann. Þóttist hin röskva húsfreyja þurfa að taka sinn tiltölulega þátt í stríðinu, því glögt rnátti heyra rödd hennar: “Kétt er það, piltakindur, sparið ekki hnefana og loflð staurunum að leika sór, margur heflr dans- inn stigið eftir stirðari flðlunum.” Og til dátanna lcallaði hún: “Verði ykkur lurk- arnir að góðu, börnin góð ; Sýnið lítillæti, þótt ekki só of mikill kvöldskatturinn í Krosshólmi. Verið þið rólegir, nomin ykkar er geymd í góðum höndum. Kross- liólmur á nóga lása og lokur fyrir ykkur líka, óþokkarnir!” En rétt eins og einhver glettin örlaga- norn vildi gjöra hina virðulegu frú að minni manni fyrir ósannindi og öll hennar varúðarráð að cngu, sást á sömu stundu há ■ vaxin og dökkklædd kona koma fram á virkisvegginn og bera við liinn heiðbjarta næturhiminn. Orðin dóu á vörum frúar- innar af undrun og skelfingu þegar hún þekti þar hinn vel geymda fanga sinn. Hvernig jungfrú Regína hafði farið að komast út gegn um harðlæstar dyr og lok- aða glugga, það var óskiljanleg gáta hinni góðu konu og varð hún því á sömu stundu sigruð af lijátrú samtíðarinnar um töfra- kraft stúlkunnar og vélbrögð myrkravalds- ins. Ilún gleymdi öllum viðburðumtil að handsama strokukonuna og bjóst rétt við, að hún þá og þá sæi svarta vængi vaxa út frá öxlum kvcnnmyndar þessarar og liana

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.