Öldin - 01.08.1894, Síða 13

Öldin - 01.08.1894, Síða 13
ÖLDIN. 125 slðan hefjast frá jörðu eins og heljarmikinn hrafn og bera við stjörnuhimininn. Lesar- inn 4 hægra með að skilja að hér fór alt með feldu. Hergnýrinn og slcotin hafði heyrst upp í hið afskekta herbergi Regínu. Hún bjóst við á hverju augnabliki að verða gripin og dregin af bððlum til aftökunnar, og svo dýrmætt þótti henni þá sitt hlutfall, að fá að deyja fyrir trú sina, að hún J>oldi ekki við af óþreyju, einkum þar gnýrinn óx æ meir og meir en enginn maður kom til liennar dyra. Loks hreyf hennar draumasál sú hugsun, að höfðingi myrkr- anna mundi ekki una henni svo fagurs hlutskiftis, væri því bardagijm þar niðri af lians völdum stofnaður í því skyni að baka henni langra og þreytandi daga í lokuðum klefa 4n allrar gleði og afnota, í stað hins dýi-ðlega píslarvættisdauða. Iíún mintist ráða hinnar syngjandi konu, að síga niður fi'á glugganum í dúkum og rekkjuvoðum; liún tók óðara sinn ásetning og að svip- stundu liðinni stóð hún á virkisveggnum í augsýn þeirra, sem voi-u að berjast. Jafnóðum og menn komu auga á hina hávöxnu konu þarna uppi móti tunglinu, greip þá alla hinn sami hjátrúaróttinn sem stöðvaði orðastraum frú Mörtu. Bardaginn hætti smátt og smátt af sjálfu sér nenia ut- arlega á stöku blettum ; vini og óvini sló sami óttinn og nærri virkisgai’ðinum varð brátt svo kyi’t að vel mátti heyra sjávarnið- inn við malarkampinn. Nú hóf jungfrú Regina raust sína og talaði skýrt og hvelt; mundu allir hafa heyrt glögt og skilið livert orð, þeir sem nálægir voru, ef hún liefði kunnað réttai i framburð hinna sænsku orða. “Belíals börn!’’ sagði hún með rödd, sem skalf lítið eitt í fyrstu, en brátt varð róleg og föst, “þcr villutrúarmenn, hví hikið þér aðtaka líf raitt ? Hér stend ég án vopna og varna með himinhvolfið yfir höfði mínu og jörð og haf við fætur mér og segi til yðar: Yð- ar Lúther er falsspámaður; það er enga sálu- hjálp að íinna utan í hinni einu sáluhjálp- legu kyrkju. Snúið yður því og trúið 4 hina heilögu mey og guðs hclgu dýrlinga og játið að pifinn sé Krists umboðsmaðui’, eins og hann vissulega er, svo að sverð hins heiiaga Jörundar falli ekki yfir yðar höfuð. Mig megið þér lífláta svo ég innsigli trú mína með mínu blóði; hér stend ég, hví hikið þér ? Eg er reiðubúin !” Það varð ungfrú Regínu til lífs, að þeir, sem hún tal- aði til, skildu ekki orð hennar. Svo var mikill kraptur lúterskunnar á þessum glóð- heita trúartíma, þegar rlki og þjóðir fórn- uðu lífi og farsæld fyrir kenningu þessa, að jafnvel hinir heimskustu og auðvirðileg- ustu menn voru fullir brennandi vandlæt- ingar og blindu hatri til páfans og hans fylgjara; sýna það bezt og sanna hinir harðorðu en kjarnmiklu fornsáímar, sem geymdir hafa verið í sálmasöng Finna og Svía alt til þessa dags. Hefði rnannös þessi lieyrt og skilið orð Regínu, þar sem hún lofaði páfiinn og kallaði Lúther falsspá- mann, hefðu bæði bændur og liðsmenn ef- laust óðir orðið og rifið meyna sundur lið fyrir lið. En mál hennar fór sem suða fyrir eyru þeirra ; þeir sáu hvar hún stóð keyprétt, og sú virðing sem hugrekki og hamingjuleysi í sameiningu ætíð vekur, gerði óðara áhrif á hinn æsta sæg, er nú stóð á tveim áttum og vissi ekki hvað úr skyldi ráða. Jungfrúin beið enn þá búin, en enginn kom til að draga hana til dauð- ans. Iíún steig niður af virkisveggnum, gekk inn í ösina, sem þokaði smeiktil hlið- ar, allir máttu sjá að hún var alveg vopn- laus og þó hreyfði enginn hönd eða fót til að grípa hana. “Þetta er ekki manneskja með holdi og blóði, heldur svipur,” sagði gamall sveitarbóndi, lieldur en ekki smeik- ur, “mér sýnist ekki beíur en að tunglið skíni beint í gegn um hana.” “Það verðum við að prófa,” gall ann- ar við, og lagði hreifann heldur fast á öxl jungfrúnni. Það var ískyggilegt augna- blik. Jungfrúin leit við og horfði á mann- inn með sinum djúpu, dimmu og tindrandi

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.