Öldin - 01.08.1894, Side 14

Öldin - 01.08.1894, Side 14
126 ÖLDIN. augum, en liinum brá svo kynlega við, að hann slepti óðara takinu og hörfaði undan sem hundur væri sneyptur. Með honum hopaði fjöldi manna, sem næi’ri stóðu; eng- inn þóttist skilja hvað undir bjó þessum svörtu augum þarna í tunglsljósinu, en all- ir fundu einhvern kraft af þeim standa. Eftir fáar mínútur var svæðið autt þar sem Regína stóð, orustan hætt, cnda kom þá varðliðssveit og greip nokkra menn, cr mestan mótþróa sýndu. En lengi eftir þetta hélst viðsjá og matningur frá kylfustríðinu gamla milli bænda og liðsmanna, milli hins starfsama plógs, sóma Finnlands, og liins sigursæia sverðs, sem á þessum tíma lagði í leiðang- ur til þess að temja hinn rómverska keis- ara. Um Rcgínu er þess cinungis getið í þetta sinn, að hún lét mótstöðulaust leiða sig aftur inn í sinn dimma einveruklefa, 'þótt sárt þætti henni að missa kórónu dýrð- arinnar. Tók frú Marta aftur við gæzlu hennar. En frá Bertilu er það að segja, að hann hvarf heim til Stórkyro mcð dótt- ur sina, hann með hugann bundinn við ó- komna upphefð og frægð, en hún mcð minni liorfinnar liamingju í hjarta. Og það skulu menn muna, að alt þetta liafði viðborið á einum og sömu tveim dögum sumarið 1632 og því á undan falli Gústafs konungs, scm frá var sagt í enda hins fyrsta þáttar. Og nú liðu dagar og mánuðir og örlög manna breyttust, og hið skjótfæraorð verð- ur staðar að nema um stund í von um kvöld sem eftir koma. Söguþættir læknis- ins vöruðu, eins og barnanna gleði og grát- ur, einungis eina kvöldvöku— heldur stutt fyrir þá sem í vinsemd hlýða til, en liklega hinum heldur lengi. En aldrei slitnaði þráðurinn í miðju efni, án þcss ungir og gamlir hugsuðu með sjálfum sér! eitthvað er eftir enn þá. Og því varð læknirinn að lofa. Hann átti svo margt ósagt í fórum sínum um örlög tveggja ætta, þátturinn var ekki ncma hálfspunninn, næsta sinn verður hann icngri — ef ekki á enda, þá samt snælduna f'ulla og fulla lengd uppi- stöðunnar. ÞRIÐJA SAGA liERLÆKNISINS. Þegar læknirinn næsta sinn sá til sam- ans komna sína sólgnu áheyrendur, unga og eldri, voru sex vikur liðnar síðan síðast. Viðburður nokkur hafði milli borið og gcngið Bekk gamla nærri. Hver er við sína heimsku bundinn í heimi þessum, og ekki sizt aldraðir einlífissveinar. Bekk liafði nú liugfest þann ásetning, að eiga gott í elli sinni; hann átti uppi á kvistlofti sínu allmikinn poka með dúni í og- við þann dún var hann vanur að bæta vor og haust dúni af fuglum þeim er hann skaut. En það sagði hann engum manni, til hvers hann ætlaði dúninn; einhverntíma svaraði hann því til, þá er hann var spurður að því: “Eg ætla að fara líkt að og hann Possen gerði við Viborg; þegar Finnland er í voða fer ég upp í háan turn og hristi fiðrið mitt út í loftið, svo úr því verði eins margir liðsmenn eins og dúnfjaðrirnar í pokanum.” “Skrattinn hafi mig ef þú talar ekki eins og aulabárður, bróðir,” sagðiþáSvan- hólm, kapteinn og póstmeistari. “Það þarf meiri merg til að mynda úr hermenn handa okkur nú á dögum. Fjandinn hafi ef ég held ekki að þú haldir að við her- menn séum hænuungar.” “Já,” sagði læknirinn, þegar kapteinn- inn vildi halda áfram, “ég skil hvað þú ætlaðir að segja: öldungis’ eins og hann Fieant við Kastúlu.” Ilvað um það fór læknirinn samt einn

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.