Öldin - 01.10.1894, Qupperneq 5

Öldin - 01.10.1894, Qupperneq 5
ÖLDIN. 149 í sundar brot og bresti einstakra manna og heilla flokka mannfélagsins. Þar sein vér að framan höfum sagt, að Gestur hafl ver- ið snillingur svo mikill, að leitun sé á öðru eins söguskáldi meðal allra þjðða þeirr;i, er við bókmentir fást, þá á það bæði við hina meistaralegu framsetning efnisins og- sjálf- gerða sköpun lyndiseinkunna persónanna. En fremur öllu öðru getum vér þó staðhæft, að hann, í orðsins eiginlega skilningi, hafl verið alveg óviðjafnanlegt háðskáld, Satir- iker. Háð hans er ekki þvingað, hann slít- ur ekki toppana flr höfðum manna. Yerk- in og atvildn sögunnar gefa jafnóðum af sér háðið. Hann heflr ekki beisk eða brennandi, svíðandi orð, td að láta það kotna í ijós. Nei, langt frð. Það liggur svo meinlaust í eðlilegum orðum og verk- um persónanna. Því er svo meistaralega fyrir komið í allri rás sögunnar, í formi og meðferð efnisins, og þó er það svo biturt og skerandi og sláandi, að tæplega er mögulegt að rciða harðari högg að hinni of almennu hræsni, niðirrlægingogeiijkisvirði tizkunnar og mannfélagsins. í þessu felst hin óviðjafnanlega list Gests. Og bak við þetta og sem grundvöllur undir því öllu, eins og “Kærleiksheimilinu,” stendur djúp alvara og góð siðferðisleg hugmynd, sem sannarlega veitir sögum þessum svo mikið gildi, að þær gnæfa hátt yflr margt það hjá öðrum mentuðu þjóðum, sem oft er haf- ið upp í skýin. Hin sama siðferðislega, góðahugmynd liggur til grundvallar fyrir þremur öðrum sögum Gests og veitir þeim mikla þýðingu og óvanalegt gildi. Það eru sögurnar : “Hans vöggur”* og “Vakri Skjóni,” er komu út í Suðra 1883, og svo “Sigurður formaður,”** er kom út í Iðunni 1887. í hinni fyrstu lemur hannástærilætinu, mik- ilmenskunni og- fyrirlitningunni, sem hinir ríku svo oft sýna hinum aumu og bág- stöddu. I annari sögunni lcmur hann á *) Poestion þýddi 1881. **) Miss Lehmann Filhés þýddi 1891. hinni hörðu og grimmu meðferð, sem mcnn oft beita við hin tryggustu húsdýr. Og í þiiðju sögunni sýnir hann hinar ótt.alegu afleiðingar, sem hræðsla og hjátrú of'tlega valda, og sem, án þess menn vilji það, oft vcrður orsök ógæfu og skammar og verður jafnvel stundum að synd. Af þessu litla sem hér er sagt um rit- verk Gests, geta mcnn séð þnð, að liann hafði dómgrcind skarpa (kritisch angelegte natur), cn hallaðist einnigað pcssimismus (að því, að sjá hlutina frá verri hliðinni), og þó kemur það öllu meira fram hjá hon- um í deiluritum lians, sem heilmikið er til af, og einna Ijósast í nokkrum kvæðum hans. En þó gctur enginn staðhæft það með réttu, að hann hafl litið of svörtum augum á mannlífið, hvað söguskáldskap hans snertir, og hin listfenga framsetning hans og hið innra gildi söguljóða hans sýna það ómótmælanlega, að hann erhiðstæðsta og besta söguskáld hins unga íslands. Að lokum viljunt vér drepa á það, að það er vafalaust, að Georg Brandes hefir haf't áhrif á tilflnningar, hugsunarhátt og alt liið innra líf Gests með ltehningum sín- um og ritum, því meðan Gestur dvaldi í Kaupmannahöfn, sótti hann kappsamlega fyrirlestra Brandes við liáskólann, las rit hans og umgekst hann mikið. 0g þá cin- mitt, meðan Gestur dvaldi í Kaupmanna- höfn, var timi sá, er Brandesar-stefnan hóf'st og valt fram sem flóð væri og hreif mcð sér alla hina yngri menn og blés í þá nýjum anda. Verk þcssara þriggja söguskálda ís- lands eru sannarlega þess virði, að öðrum þjóðuin en Islendingum sé gert mögulegt að lesa þau, og oss er ánægja að geta sagt það, að hvað Þýzkaland snertir, þá er þeg- ai’ búið að þýða flest rit þeirra. En auk þeirra vil ég enn nefna til aðra þrjá, sem óneitanlega hafa hæfileika sem söguskáld. Fyrstur Þeirra er Jóx Þorleifsson (1825—18G0), er með sögunni “Úr hvers- dagslífinu” hefir sýnt það, að hann var efni

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.