Öldin - 01.10.1894, Síða 15

Öldin - 01.10.1894, Síða 15
ÖLDIN. 159 og annar Sál meðal spámannanna. En nú spyr ég í einfeldni minni, Bertel minn, hvernig við fíirum að komast héðan ?” “Við ryð.jum okkur hraut, varðliðið sefur og nú er reginnótt.” “Ég játa, vinur, að skyldi nokkur, og þó það væri ég, Larson sjálfur, kalla þig geit, þá skyldi ég kalla hann lygara. Það er satt, að einu sinni tókstu nærri því solu*, einn, alienus, aleinn, þennan kastala, en þá hafðir þú þó sverð I hendinni og nokkur þúsund röskva drengi fyrir aftan þig .... Þey, er nokkur að trampa á tröppunum ? Nei, þar er enginn; við verðum að tifa eins og heimasætur; álfurinn hann Pekk slánast áfram eins og lieill ríðandi herflokk- ur sé í hælunum á honum.” Þcir félagar voru nú komnir þrjátíu eða fjörutíu höft upp tröppurnar og þá fyrst urðu þeir birtu varir hátt upp á skör- inni. þcir námu þá staðar og drógu and- ann, alt var hljótt og kyrt. Nú áræddi Larson að gægjast inn, stakk fyrst höfðinu inn, sícan fætinum og lolcs öllum sínum digra búk. “Við erum á réttri leið,” hvísl- aði lmnn, “takið af ykkur stígvélin, allur herinn skal ganga á sokkaleistununij^osíVo, að herinn sé í nokkrum sokkum. Fram ! fram!” Svefnherbergi biskupsfurstans, sem þeir nú voru í komnir, var stórt og hafði verið hlaðið skrauti. Hálfslokknaður lampi sló daufum bjarma á hina gullnu refla á veggjunum; þar stóðu logagyltar myndir af helgum mönnum, en sængin var úr íbenviði, þar sem hinn gamli preláti hafði hvílt og sofnað frá sínu Rínarvíni. Þar var ekkert kvikt inni, en gegnum einn gluggann, sem snéri að hallargarðinum, mátti sjá hallarkyrkjuna alla Ijósum lýsta og fulla af fólki. Garðurinn sýndist líka fullur af mönnum og báru margir kerti. “Það má salta mig niður í pækli eins og síld ef ég get skilið, hvað þetta fólk hefst að um hánóttina,” umlaði kapteinn- inn í illu skapi. “Þeir Iiafa sjálfsagt sam- anstreymt til þess að horfa á hvernig geng- ur að steikja þrjá heiðarlega Finna við seinan eld alt eins og kola.” “Við verðum að útvega okkur vopn og falla eins og hreystimenn,” sagði Bertel og litaðist fyrir í herberginu. “Ágætt!” æpti hann hátt, “hér eru þrjú sverð og fleiri þurfum við ekki.” “Og þrír daggarðar,” sagði Larson, sem fundið hafði dálítið vopnabúr bak við líkneski eitt í veggjarskoti. “Þessir verð- ugu feður fælast ekki daggarðana heldur en Austurbotnungarnir púúkóinn* sinn.” “Eg held nú,” sagði Pekka, sem sjald- an var margmáll, og benti á flösku mikla þar í horni einu, “ég held, að fyrst þetta er jólanóttin sjálf, þá...” “Dáðadrengur,” sagði kapteinninn og varð allur á lofti, “þú ert undarlega þofvís þegar eitthvað er að fá í staupinu. Æru- verði Jesúíti, þú lieflr unnið eitt góðverk á æfinni. Jólanótt sagðirðu; hvers vegna sagðirðu það ckki fyrri, flónið þitt ? Það er alt í augum opið, að hálf Wurzborg heíir hlaupið upp til hallarinnar til þess að hlýða messu hans Hieronýmusar. Samt er ég svei mér hræddur um að honum þyki ílengjast þeim góða manni. Sjáðu nú, vinur, nú drekk ég þína skál; fyrirlið- inn á ætíð að ganga á undan liðsmönnum sínum með góðu eftirdæmi. Skál, drengir góðir....en hver fjandinn .... iK'ilvaður karlinn hefir skammarlcga leikið á okkur ......ég hcfl drukkið ólyfjan, ég er bráð- feigur maður!” og hinn ágæti kafteinn varð náfölur í framan. En þeir Bertel og Pekka gátu varla varist hlátri þi’átt Íyrir allar kröggurnar, þegar þeir sáu Larson hvítna af hrollinum cn biksortna um leið af vökva þcim, sem hann hafði drukkið og spýtt út aftur. “Taktu smærri sopana næsta sinn, þá þarftu ekki að drekka blek,” sagði Bertel. “Blek —það var eftir honurn, þessum *) Finnskur beltishnífur.

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.