Öldin - 01.05.1896, Qupperneq 5

Öldin - 01.05.1896, Qupperneq 5
ÖLDIN. 69 að höfundurinn hafi verið óþroskaður, — að það só hvað frágang snertir ófullkomn- ara en hæði konungs og Ola Worms-hand- ritið]. “Setji maður þá svo, að þetta. haíi þamnig verið og sem er svo eðlilegt, þá er spurningin : því gaf Snorri hók sinni nafn- ið ‘Eddá’, þar sem fyrsti kafli hennar ein- mitt var þessi orðhreyting, eða þýðing ljóða í óhundnu máli ? Eða, ef hann sjálf- ur ekki gaf bók sinni þetta nafn, þvl skyldu þá ættingjar hans, sem fimmtíu árum eítir andlát hans lctu gera afskrift af bókinni,— því skyldu þeir lcyfa að viðtekið væri nafnið “Edda?” Hið eðlilega svar upp & þvílíkar spurn- ingar er þetta: Einhver eða einhverjir nefndu hók Snorra þannig vogna einhverr- ar ákveðinnar ástæðu. Iiöfundur bókar- nafnsins gat hafa verið Snorri sjálfur, ein- hver af ættingjum hans, eða þá einhver annar. En ástæðan til þess að nafnið varð þetta, hlaut að hafa verið einhver ein. Til að byrja með, er vert að athuga, að Snorra- Edda hyrjar á þýðingu þeirra Ijóða í al- þýðlega óhundna ræðu, rcm rituð stóðu í hók, er geymd var á Odda. Það er ekki nema eðlilegt, að lærðir ihenn og- aðrir, er til þeirrar bókar þektu, mundu gefa henni sérstakt kenningarnafn, er þcir töluðu um hana. Það kenningarnafn hlaut að vera kvenkyns, til þess að vera í fullu samræmi við eiginnafnið “ bók ” og samkvæmt lög- nm og eðli íslenzkrar tungu lilaut kenn- ingarnafnið að vera dregið af staðnum sem hókiu var geymd á. Sögnin, sem að öilu leyti fullnægði þeim kröfum, var “Edda,” þ. e.: hólíin að eða frá Odda* Ilvað gat svo verið eðlilegra nafn á þessari alþýðlegu útgáfu ijóðanna, en ein- mitt kenningarnafn þeirra handrita,—móð- urnafnið ? 0g það er þetta, að mínu áliti, sem hér hefir átt sér stað, að annað tveggja Snorri sjálfur, eða einhver annar sem *) Edda myndast þannig af ' ‘Oddi” á sama hátt og “hyrna” a£ “hórrii” í “ Vatnshyrna,” þ. e.: hókin frá Vatnshorni. Höf, vissi að rit Snorra var ekki annað en mynd- breyting Odda-handritsins gaf alþýðlegu útgáfunni, lienningarnafn frumriianna í Ijóðinn. Að Edda, sem hókarheiti, sé dregið af nafninu Oddi, er tilgáta sem hefir eina sönnun enn að styðjast við og sem ég vil stuttlega minnast á. Vér höfum séð, að sá sem reit Uppsalahandritið vissi ekkium Eddu sem kenningarnafn kvenmanns. Þar af leiðandi hefir hann ekki vitað neitt um handrit það — eina handritið, að því er lcunnugt er — sem hefir að geyma það orð í þeirri merkingu. Þetta eina handrit er Rígsþula eða Rígsmál. Þó hyrjar ritari Uppsalahandritsins með því að nefna bók sína: Edda. Alveg fyrstu orðin sem hann ritar eru þessi: “Bók þessi heitir edda.” Það er mér alveg óskiljanlegt, að þessi rit- ari Uppsalaliandritsins hafi lánað nafnið Edda úr Rígsmáli, í þeim skilningi að það nafn þýddi “lang-amma,” sem liann svo liaíi gert að bókarheiti, en komið svo fram í kaflanum : “Okend heiti” sem ókunnur því nafni og merkingu þess, enda hv.ergi sýnt að hann þekti hið allra minsta til kvæðisins Rígsmál. Það er þess vegna auðsætt, að Edda er hér til orðið sem hók- arheiti, án þess í nokkru að vera háð Rígs- þulu. Hvaðan þá gat það verið runnið, ef ekki frá Odda, cins og að framan er sýnt ? Til skýringar á því atriði hör að fram- ar, að nafnið “Edda” þýði ekki lang-amma er vert að geta þess, að fyrirlesturinn gengur mest.megnis út á að sanna að það sé ekki. En því hefir verið haldið fram af ýmsum fræðimönnum — þar á meðal má nefna Dr. Guðbrand Vigfússon,— að Edda þýði langamma, og sé í rauninni ekki ann- að en afbökun orðsins Ertha (jörð), í gömlu kvæði Germana, sem telur jörðina frum- móðir mannkynsins. Þvílíkar grillur cr Mr. Magnússon að hrekja í fyrirlestri sín- um og hann sýnist líka hrekja þær hug- myuclir svo að heil brú sé ekki eftir. Að

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.