Öldin - 01.05.1896, Side 7

Öldin - 01.05.1896, Side 7
ÖLDIN. 71 ráða að þegar kvæðið var ort hafl þræla- öldin verið löngu liðin. f öðru lagi segir höfundurinn auðsætt, að í eiginlegum skilningi sé Edda (kona Áa) alls ekki langatnma. Amma er ekki dóttir hennar og Móðir ekki dóttir Ommu. Ilugmyndin sé að sýna stigbreyting þjóðfélagsins, full- lcomnun þcss stig fyrir stig, til þess er æðsta takmarkinu var náð—konungsvald- inu. Þetta vakti fyrir höfundinum, þó hann héldi illa á efninu. í þeim tiigangi að gera alþýðu hugmynd sína skiljanlega, kom kvæðishöfundinum í hug að framleiða þrjár mæður hinna þriggja mismunandi flokka. Það gerði hann á þennan hátt, en þar fyrir tókst honum engan vegin að sýna að Edda kvæðisins sé sama og langamma, af því sem sagt að Amma og Móðir voru ekki beinir afkomendur hennar. Eígsþula hyggur fyrirlesarinn að ekki sé eldri en frá 13. öld. Heflr hann það meðal annars til marlcs, að í kvæðinu stendur: “kom hann at sal, suðr horfðu dyr.” Þessi orð segir fyrirlesarinn að bendi á tízku, eða ímyndaða tízku, að því er húsaskipun höfð- ingja snertir. Sams konar hugmynd segir hann að komi fyrst frani í “Morkinskinnu,” er rituð var sncmma á 13. öld. Þar scgir svo: “Konungshásæti var á langpallinn, þann er vissi í móti sólu,” en það er sama sem að segja að sæti hans hafl verið við norðurvegginn og þegar hann hafi setið í því, hafl hann snúið móti suðri. Þetta segir fyrirlesarinn að þýði það, að ís- lendingar hafl snemma á tíma fengið þá hugmynd, að hallir konunga og höfðingja skylduþannig snúa,—að það væri ‘móðins.’ Og þessi hugmynd segir hann hafi enda haldist við frain á vora tíma og vitnar í orðabók þeirra Cleasby’s og Guðbrandar því til sönnunar. En svo segir hann alt slíkt misskilning, því að lega landsins, af- staða þjóðvegar, ár, stöðuvatns eða sjávar hafl ráðið því hvernig hús snéru á Islandi. Skyldi nú fyrgreind sögn í .Rígsþulu vera bygð á þessum misskilningi, sannar hún tvent í senn: fyrst það,að kvæðið er íslenzkt, og annað það, að það er tiltölulega ungt. Sé það þannig fullsannað að Rígsþula sé ekki eldri en frá 13. öld, þá virðist einn- ig nokkurnvegin fullsannað, að Snorri hef- ir ekki sótt nafnið Edda í það kvæði, er hann reit Snorra-Eddu og sem hann að lík- um hefir byrjað á, þó ekki liafl liann má- ske fullkomnað það verk, á meðan hann var á Odda. Hafl það kvæði þá ekki ver- ið til orðið, eða Snorra ókunnugt og hafl hann sjálfur ekki gefið bók sinni nafnið Edda, cn eftirlátið það afkomendum sínum eða ættingjum, þá er jafnólíklegt að þeir hafi sótt nafnið á bókina í kvæði, sem í millitíð kann að hafa orðið kunnugt, og sem sannarlega er ekki frægra eða meira cn önnur kvæði í Sæmundar-Eddu og sem Snorri átti aðgang að á Odda. Og að Snorri hafl ekki þekt Rígsþulu, það sannaði fyrir- lesarinn með því að benda á kaflann “ókend heiti.” Höfundur þess kafla vissi augsýnilega ekki að Edda átti að þýða það sama og “lang amma.” Það virðist þess vegna óliætt alveg að leita að uppruna bókar-nafnsins annarsstaðar en í Rígsþulu. Yér höfum áður getið þess í fáum orð- um, að fyrirlesarinn lireki tilgátuna þá, að nafnið sé bjöguð gömul há-Þýzka og tákni móður-jörð (Mammun Ertham), og slepp- um vér því að minnast meira á það mál. En þá er eftir að minnast á þriðju tilgát- una og sem mörgum mun virðast miklu eðlilegri en hinar tilgáturnar, að undantek- inni þeirri.er fyrirlesarinn sjálfur framsetur. Það er tilgáta Árna Magnussonar, að Edda sé beyging orðsins “óður,” eða skáldskapur í Ijóðum, eins og alraent er skiliðað “óður” þýði, þó upprunalega þýddi það orð ekki annað en vitsmuni, eða hæflleika til að hugsa og skilja. Segir fyrirlesarinn að Árni telji það sem ástæðu fyrir þessari til- gátu sinni, að í Ijóðum tveggja skáldaá 14. öld, hafl hann orðið var við setningar svo sem “Eddu list” og “Eddureglur,” ogseg- ir það áhrærandi að það sé greinilegt, að

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.