Öldin - 01.05.1896, Blaðsíða 9

Öldin - 01.05.1896, Blaðsíða 9
ÖLDIN. 73 sköpunarverki. Ilin gamla sköpunarsaga segir, að guð liaíi blásið anda lífsins í leir- inn. I nútíðinni er anda líf-ins blásið í allskonar efni og — ný og sívaxandi sköp- un framleiðist. Ilið heimspekilega grufl liðinna alda er of mikill hégómi til að full- nægja kröfum starfandi manns í nútíðinni, sem ekki á nema fá ár að lif'a. Yið Ijós þekkingarinnar sér hann live mikið er fólgið í liinu dauða efni. í stað þess því að grufla, beitir liann hugsanfærum sínum, andar guðdómlegum anda á efnið og fram- leiðir með því nýjan heim. Þegar maður venst því sem yfirgcngi- legt er, þá or auðgert að missa sjónar af því, og af því er það sprottið að mönnum gengur svo illa að meta að fullnaði hin milclu afreksverlc manna á þessari miklu öld. I fyrstunni bregður þeirn fyrir sjón vora eins og glóandi loftsteinum. Vér undrumst utn stundarsakir, en fyrri en var- ir viðurkennum vér fregnina sanna og smámsaman vorður uppfindingin svo al- menn og svo nátengd voru daglega lífl, að hún gleymist, svo framarlega sem vér ekki fyrir tilviljun missum afnota hennar um stund. Ef til vill er þá meira unnið með yfir- litinu yfir hina margvíslegu framsókn, ef vér berurn saman ástandið nú og fyrir 50 árum síðan. Snúum þá framsóknar vél vorri í öfuga átt og höldum áfram 50 ár aftur í tímann. Þegar þar er komið förum vér að sakna margs. í praktiskum skiln- ingi eru þá telcgraf-þræðir horfnir, sauma- vélarnar, reiðhjólin, og hin margvíslegu áhöld og tilbúningur úr tcigleðri. Telc- fón þræði sjáum vér enga, og ekki heldur stræta-sporvagna knúða áfram með raf- magni, eða gufuknúðum dragreipum. Raf- magnsljps sjáum vér heldur engin, fótó- graf-prentun eða fótograf-myndaskurð, og þá ekki neina alt vinnandi prentvél og því síður augnabliks myndtökuvélar svo smá- ai að geyma má í vasa sínum. Þá sjáum vér heldur engar vélar til að skera út tré, engar hinar mikilfenglegu húsbúnaðar- verzlanir né aðrar slíkar; engar lyfti-vélar í stórhýsum; ekkert asphalt á strætum til brúlagningar: enga gufuknúða slökkvivél; enga gufuvél sem þrí-þéttir gufuna; enga Gifford-sprautu; engan búning úr “cellu- loid”; cngan gaddavír til girðinga; engar stunda-læsingar á öryggis-skápum; engar sjálfbindara uppskeru-vélar; cnga olíu cða gas-brunna; cngar ísgerðar vélar eða kuldalofts hús til að geyma vörur í. Þá söknum vér og fónografsins og gratófóns- ins, þrýstilofts-vélanna, sjálf-undinna vasa- klukkna, smápeninga-registurs, sem í búð- um eru höfð til að telja smápcninga sem í kassann eru látnir á hverjum dcgi, og vcr söknum þáeinnig vírbrautanna, sem ístór- um búðutn þeyta peningunum úr öllum hornum á einn og sama stað, — til fchirð- isins og bókhaldarans. Ekki heldur sjáum vér þá hengibrýrnar, járngrindabygging- arnar stóru, brynskipin stóru eða járn- byrðinga “Monitor”, torpedo-sprengibát- ana, gatling-byssur eða aðra hríðskota og ekki heldur marglileyptar pístólur. Vér sjáum enga letursetninga-vél, enga ritvél (typewriter), og vitum ekkert um aðferð til að drepa sóttfræ oða bakteríur, né um það hve*nig saurindi má leiða um hús og byggingar eftir pípum niður í saurrem.ur, án þess nokkur verði þess á nokkurn hátt var. Ekki heldur höfum vér þá hugmynd um loft-þanið vatn í einni eða annari mynd, og ekki vitum vér þá neitt um að til séu þrýstilofts hjól-klípur á vagnlestum, til að stöðva fcrðina á augnabliki. Ekkert vit- um vér heldur um meðöl og litarefni dreg- in úr koltjöru og höfum ekki hugmynd um sprengiefnin nafnfrægu: “Nitro-Glyccrine” “dynamite” og “gun-cotton”. Þávitumvér ekki fremur um vélar sem draga saman og framleiða rafmagn, og elcki minstu vitund um áhöld og verkfæri úr “aluminium”; ekkert um rafmagns-“locomotive”, ekkert um ummyndun járns í stál með þeirri að- ferð er Sir Ilenry Bessemer uppgötvaði og

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.