Öldin - 01.05.1896, Qupperneq 12

Öldin - 01.05.1896, Qupperneq 12
76 ÖLDIN. “Nei, Jack, við skuhmi ekki tala um slíkt. Mér er það ðmögulcgt”. “Ja, það eina sem cg vildi segja,” svaraði lautenantiim, “er það, að mennirn- ir taka ráðin i sínar hendur og að hví er ég framast sé, gefast þcir upp á morgun. Wilson sagði mér að það væri afráðið. Þeir náttúrlega segja ekkcrt við þig fyr en þar kcmur, vita sem er, að það Iieflr enga þýð- ingu.” “Er Wilson með þeim í þessu ?” “Það sagði hann ekki, en það ætla ég, að hann ávíti þá ekki stórlega. Þeir voru nfi aldrei úrvalalið, og er það sönnunin að þeir voru sendir á þennan yflrgefna stað. En, eins og Wilson sagði, hafa þeir samt gert alt sem dauðlegir menn geta afrekað.” “Dauðlegir menn, Jaek ? Til hvors voru menn gerðir dauðlegir, ef ekki til þess að þeir gætu látið líflð ?” Lautenantinn svaraði cngu og gengu þeir þögulir inn í skála foringjans. “Seztu nú þarna,” sagði foringinn, “og skulum við nú ræða þetta mál. Hér er ckki það ég sé nema um einn vcg að veija.” Það var skuggsýnt orðið inni og gekk hann yflr þveran skálann og kveikti á lampa. í því urðn þeir varir við að þriðji maðurinn var inni oger lýsti.sáu þeir hvar ungur maður í einkennisbúningi lá á legu- bekk út við vegginn. “Einmitt!” sagði foringinn og hlð kuldahlátur. “Þetta var eftir Charlie! Eg haf'ði gleymt honum alveg í svipinn”. “Sofandi?” spurði lautenantinn. “Nei. ITann er drukkinn !” “Drukkinn ?” “Já. Byrjaði í ndtt er leið.” “En hvernig náðihann í vín?” “0, hann braut upp akrínið mitt og stal flösku, sem ég hafði alt af geymt handa mönnunum, ef mikið lægi við. Rétt laglegur bróðir að tarna, og er ekki svo, tvíburi minn að auki ?” Um leið cg hann sagði þetta, gokk hann með Ijósið yfir til hins dauðadrukna manns og lýsti í andlit hans. Lautenantinn gekk til hans og í því, af því birtan féll á augu hans, byltist hann til, opnaði augun, en sem vegnabirt- unnar luktust strax aftur og svo hélt hann áfram að móka. Andlitið var litið eitt þrútið, þó mað- urinn annars vseri holdlaus vegna lang- varandi fæðuskorts, og bar með sér öll vcgs- um merki eftir langvarandi drykkjuslark. Annars var ancllitið fallegl,, svipurinn hreinn cn stórslcorinn eins og segja mátti um andlit foringjans. En hvílíkt flak var ekki hinn ölvaði maður að öðru leyti!” 1 “Hann er alt að einu eins og þú, eða hvað flnst þér?” sagði lautenantinn. “Já, því er nú ver! Ilann hedr líka æði oft notað sér það, mór til skap- raunar. Ein og þú sérð er hann jafnhár mér og áður cn vínið úttaugaði hann var hann álíka gildur og ég er. Fyrir það hefi óg líka mátt borga margan pening”. Um leið og hann sagði þetta, gekk hann að borðinu attur og hélt svo áfram: “Þú veizt það, Jack, að ég cr cngin blcyða, on að- farir bróður míns hafa gengið miklu nær mér, en allar þrengingarnar í virkinu því arna. Og breytni hans varð bani móður okkar. Hún þoldi ekki þá ofi aun”. Meðan foringinn sagði þetta hafði hinn drukni maður lyft höfðinu lítið eitt og augun voru starandi. En hvorugur þeirra við borðið veitti því ef'tirtekt. Þeir sátu þegjandi um stund og foringinn ýtti lamp- anum lengra burtu, eins og birtan af Ijós- inu væri of skær fyrir augu hans. “Já”, hélt'hann svo áfram. “Hjarta móður okkar braSt vegna bróður míns. Hann hafði æfinlega verið uppáhaldið hennar. Henni þótti að vísu vænt um mig líka— hún var góð móðir, svo, að guð hef- ir engum geflð betri móðir—en samt þótti henni æflnlega vænna um Charlie. Áður en við gengum í hei-þjónustuna, hafði hann verið nokkuð gapafenginn, en hin eiginlegu vandræði með hann byrjuðu ekki fyrr en eftir að í herinn var komið. Við

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.