Öldin - 01.05.1896, Síða 15

Öldin - 01.05.1896, Síða 15
ÖLDIN. 79 endist ekki og þá því síður fæðið. En far þú nú að sofa. Þú þarft alls þín við á morgun”. “Nei, ég held nú einmitt að égfariekki að sofa. Þig svíður að líkindum æði mikið í nótt og getur þess vegna ekki sofið. Ef við þá sitjum saman, getum við talað um ástandið og ef til vill fundið nýtt ráð”. Kapteinninn andæfði þessari uppá- stungu, en lautenantinn tók stól og settist hjá leguhekknum. “Hvað er orðið af hon- um bróðir þínum?” spurði hann. Þeir höfðu ekki fyrri tekið ef'tir að hann var farinn. “Hann er líklega að leita eftir annari fiösku!” sagði kapteinninn mæðilega. Nóttin leið seint en þó um síðir. Ein- stöku sinnum hafði kapteinninn mókað, en ekki nema augnablik í senn. Það var farið að bregða grárri slykju á gluggann, af vaxandi dagsrönd á aust- urloftinu, þegar kapteinninn alt í einu settist upp og ldustaði. “Iívað er að?” spurði lautenantinn. “Ég hélt ég hefði heyrt skot. Þey!” Lautenantinn lagði sig til að hlusta. Já, það var enginn efi á því. Það mátti heyra tvö byssuskot, hvert á eftir öðru. Stökk þá lautenantinn á fætur og út. Kapteinninn beið um stund, en er enginn kom þvarr þolinmæði hans. Hann dróg sig á fætur og út að glugganum. Sá hann þá hvar lautenautinn og nokkrir her- menn komu og báru sáran hermann og stefndu að skála kapteinsins. Þeir lnku upp hurðinni og komu inn með hinn særða mann. “Það er hann bróðír þinn!” hvíslaði lautenantinn að kapteininum. “Hann Charle!” tók hann upp. “Já. Leggið hann þarna”, sagði lautenantinn og fór þegar að skoða sárið. “Hann getur ekki lifað lengi”, sagði hann eftir litla stund. “Kúlan hefir geng- ið gegnum brjóstið !” Kapteinninn var hræddur og spurði nú óðamála hvar hann hefði verið, hvað að gera, hver hefði skotið hann o. fl. Það gat enginn svarað. Þeir höfðu heyrt skotin og fundið hann úti fyrir virk- isveggjunum. Meira vissu þeir ekki. Hermennirnir gengu út, en þeir kapt- einninn og lautenantinn settust niður hjá legubekknum, sem hinn dauðsærði maður hvíldi á. Það leið æði stund þangað til hann raknaði við, og þegar að hann þá sá bróður sinn uppi yfir sór, brosti hann lítið eitt og varirnar bærðust sem vildi hann tala. Kapteinninn beygði sig niður að honum og hlustaði, og hann skildi orðin, þó lágt væri talað og orðin óskýr. En þessi voru orðin: “Þeir eru á leiðinni, Harry! Þeir koma! Gresham er á ferðinni' með svo marga menn, að hann getur kagstrýkt allan hópinn !” “Gresham! Hvar heflr þú verið?” spurði kapteinninn. “í St. Hillaire!” Þessi síðustu orð voru svo óskýr, að þau urðu tæpast greind frá veikum andardrættinum. Svo reyndi hann ekki að segja meira, en lét aftur augun og lá hreyfingarlaus. Lautenantinn gekk þegar út til að segja hermönnunum fréttirnar. Svo kom liann að vörmu spori aftur og heyrði hinn deyjandi maður þá til hans og eins og vaknaði af dvala. “Louis hélt það værir þú, Harry, og léði mér hestinn. Gresham vildi ég biði eftir sér, en ég vis3i þeir ætl- uðu að gefast upp í dögunina. Ég fór svo á undan”. “Og þetta gerðir þú einsamall, Char- lie! ’ sagði kapteinninn og tárin hrundu niður ltinnarnar. “Hvað hugrakkur þú ert!” Veiklulegt bros flögraði um varir hins deyjandi manns, og lá hann kyr um stund og liorfði á bróður sinn. Alt í einu sagði hann: “Manstu, Harry, söguna um kross-

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.