Öldin - 01.05.1896, Side 16

Öldin - 01.05.1896, Side 16
80 ÖLDIN. ana þrjá fj7rir utan l)orgarhliðin, sem mamma sagði okkur svo oft? Eg vildi þú gætir sagt mér hana eða þá einhverja aðra”. Kapteinninn kom engu orði upp. Hann hyrgði andlitið með liöndunum, en stórir dropar hnigu einn eftir öðrum niður á milli flngranna. Leið þannig nokkur stund, þangað til hinn deyjandi maður velti sér til og sagði ofur lágt og veiklu- lega: “Það er víst nokkuð langt aftur í tímanum þetta sem ég er að hugsa um, og — þó, einhvernveginn flnnst mér það vera svo nærri”. í þessum svifum barst hvell og skær Mðraþytur að eyrum þeirra, en í nokk- urri fjarlægð. Og samtímis var hafln skot hríð. “Eg kem rött strax aftur”, sagði lautenantinn, sem í þessu hijóp út. I fyrstu var sem Charlie heyrði ekki skotdynkina,en er hríðin harðnaði og náig- aðist, velti hann sér til og hlustaði. Alt í einu, þegar hæzt stóð skothríðin, tók fyrir hana algerlega, en fagnaðarópi miklu laust upp. Þetta heyrði hinn deyjundi hermaður og brá þá glaðværðar-svip yfir andlit lians. Ilann þreifaði eftir hönd bróður síns, tók í hana og hvíslaði: “Eg gerði það ,Harry, gamli vinurog bróðir, er ekki rétt! Held- urðu að hún móðir mín hafl vitneskju um það ?” Þegar lautenantinn fáum mínútum síðar kom inn, til að tilkynna yflrmanni sínum, að sigurinn væri fenginn, var her- maðurinn liðinn. En samt hélt kapteinn- inn þétt um hina köldu hönd. Spi móður- innar, að hann einhvern tíma gerði eitt- hvað göfugt, var komin fratn. Skauta-hjólreið. Reiðlijólin eru eins og kunnugt er “hæzt móðins" um þessar mundir, það svo, að enginn sem vill fylgja tízkunni getur svo vel sé verið án reiðhjóls. Vandræðin eru, að í þeim hluta heimsins, sem vetur og snjór ríkir lengi, eru reiðhjólin ónýt allan helming ársins, eða því sem næst. En nú er, að sögn, búið að vinna svig á þess- ari þraut. Maður einn í Bandaríkjunum hefir sem sé, að því er sagt er, fundið upp ráð til að festa skauta, eða nokkurskonar sleða-skíði, neðan á lijólin, á þann hátt, að fljúga megi á reiðhjólum hvert heldur er á glærum ís eða harðri braut, með sama hraða og menn nú fara á hjóium á sumar- dag. Skautarnir eru þrír, einn undir fram- hjólinu og festir það, svo að það snýst ekki, en tveir eru undir afturhjólinu og er svo umbúið, að hjólið snýst eins og ef enginn skauti eða sleði væri undir því. Þessum tveiinur samtengdu skautum fylgir útbúnaður, gripi nokkur með járngöddum, til að stöðva ferðina hvenær sem vill. Reið- maðurinn styður bara á sveif hjá hand- fanginu, og gripinn sekkur í ísinn eða snjó- inn. Það er sagt að það fylgi þessum út- búnaði, að maður geti sezt 1 hnakkinn á hjólinu áður en farið er af stað og eins að maður geti stöðvað ferðina án þess að fara úr hnakknum. — Uppfinding þcssi er al- veg ný og lieflr þess vegna ekki enn verið reynd, en það verður gert undir eins og frystir næstk. vetur. Reynist þá útbúnað- urinn eins og vonað er, er óhætt að segja að fjórfaldast muni eftirsókn eftir reið- hjólum, mikil eins og hún þó er nú. EFNÍ: Kk. Stkkansson : Tvö kvæði (Ferð- búinn—Sjódropi). — Edda. —E. W. Bykn: Framsókn í uppfindingum á síðustu 50 áruin. — Stuart Livino- ston : Móðurspáin rættist (saga). — Skauta-hjólebib. Ritstjóri : Egoekt Jóiiannsson. Heimskkingla Prtg. & Purl. Co.

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.