Öldin - 01.12.1896, Síða 1
OlcLin.
Entered at the Winnipeg Post Office as second class matter.
IV., 12. Winnipeg, Man. Desember 1896.
Steingrímur Stefánsson.
Það var vorið 1881 að ég kom fyrsta
sinn á þing. Ég hafði komið með strand-
ferðaskipinu að austan og norður um land,
og varð ég þar samferða ýmsum hinum
merkustu samþingismönnum mínum, svo
sem séra Arnljóti, Einari í Xesi, Tryggva
og ýmsum fleiri. Næsta þing á undan
hafði vald og vegur
Gríms Thomsens og
Halldórs Friðriks-
sonar verið sem
mestur, og voru all-
margir óínægðir
með þeirra frammi-
stöðu. Höfðum við
því tekið ráð vor
saman á leiðinni um
að koma nýju skipu-
lagi á,og voru fyrstu
sporin til þess, að
ráða kosningum em-
hættismanna þings-
ins og skipulagi
helztu nefnda. Þeg-
ar til Víkur kom
varð að ná I aðra
þingmenn og halda fund meðal þeirra, er
í þcssum ráðuin voru, daginn fyrir þing-
setningu.
Mér var sjálfsagt eins mikill áhugi og
nokkrum liinna á því, að samtök vor gengj-
ust greiðlega og tækjust vcl. Ég hafði
hoðist til að eiga tal við séra Þórarinn í
Görðum og fá hann á fund með oss, og
svo varð.
Það er um sama leyti á vorin, að þing
er sett og skóla sagt upp. Ég man eftir
því enn í dag glögt, að þegar á fundinn
kom, þá var séra Þórarinn alt af að grobha
af einhverjum dæmalausum gáfnavarg, sem
var að útskrifast úr skóia og hafði fengið
ágætiseinkunn í flestöllum námsgreinum.
Mér var þetta hin mesta raun, að áhuginn
hjá honum sýndist
vera miklu minni á
samtökum okkar, en
á orðstír þessa unga
sveins, sem ég þekti
ekki. Ég hafði barizt
fyrir að séraÞó arinn
yrði varaforsti (eins
og líka varð), en nú
sýndist hann hugsa
meira um þennan ný
hakaða stúdent,held-
ur en um alla póli-
tíkina, sem svall sjóð
heit í mér—nýgræð-
ingnum í þingmensk
unni. Hann hafði
kent þessum pilti
undir skóla og víst
kostað hann til náms, og var alt afað segja
mér sögur a-f þeim merkilegu gáfum, sem í
honum væru.
Hann hét Steingrímur þessi piltur og
var af Alftanesi, sonur Stefáns smiðs Ste-
fánssonar, er Grímur Thomson hcflr kveð-
bTniNGitiMuu Stefansson.