Öldin - 01.12.1896, Síða 2

Öldin - 01.12.1896, Síða 2
ÖLDIN. 3 80 ið einkennilega góð eftirmæli eftir, þau er enda á þessu erindi: “Hög var mund og hagur andi, hógvær lund og regluhundinn ; varla mún á voru landi . verða betri drengur fundinn.’’ Fundurinn lauk þó sínu hlutverki; við komum öllum oltkar áformum fram á þinginu, og mér leið svo alveg úr minni aftur þessi ungi maður, sem alveg óvit- andi var nærri búinn að kollvelta afdrifa- miklum áformum um stefnubrey ting áþingi. Síðar heyrði ég á hann minzt í Reykja- vík, en veitti því þó ekki mikla eftirtekt, þangað til ég síðar heyrði vini mína tvo, þá séra Þórhall Bjarnarson og Hannes Ilafstein, er voru honum samtíða í Höfn, minnast á hann sinn í hvoru lagi_ Hann dvaldi í Höfn ; hann tók þar heim- spekispróf; síðar frétti ég að hann hefði tekið eitt próf á notfræðaskólanum (poly- teknisk Institut), en það síðasta, er ég frétti um hann, áður en ég fór vestur, var, að hann væri í fjárskorti til námsins og dýrk- aði fleiri goð en vísindagyðjuna. Svo fór ég vestur um haf og frétti þá skömmu síðar, að Steingrímur Stefáns- son væri kominn til Chieago. Sýningarár- ið (1893) kom ég snöggsinnis til Chicago um haustið, og þá sá ég Steingrím í fyrsta sinn. Yorum við eitt kvöld saman hjá Stephensens-systrunum hór í bænum,og þótti mér Steingrímur ágætlega skemtilegur. Síðan ég flutti til Chicago vorið 1894 höf- um við kynzt betur. Nú sjáumst við dags daglega, þar sem við vinnum sinn í hvorri deild við sama bókasafnið. Steingrímur er mikill maður á velli, föngulegur og þróttlegur, yfir sex fet á hæð, herðibreiður og vöðvastæltur, en ekki feitlaginn, enda er hann gönguskarfur hinn mesti og veitir sér þannig góða líkams- hreyfingu. Ennið er hátt og breitt, nefið í stærra lagi, en beint og vel lagað, augun skýr og glampa stundum einkennilega fall- ega og hýrlega þegar hann talar eða glott- ir. Djúpur dráttur skáhalt út frá neíinu fyrir ofan munninn bendir á glaða lund og glettið bros, og er það tákn ólygið. Hárið er dökkjarpt og heldur þunt, og verður jafnvel alveg ósýnilegt á litlum bletti í hvirflinum aftanverðum ; en af því að mað- urinn er hár, sér engin stúlka þetta, nema hann falli á kné fyrir henni og leggi höfuð í skaut henni; en enginn þykist til vita að hann hafl enn á kné kropið. Skeggvöxt- urinn er heldur ekki mikill, en þó kamp- ur á efri vör nægur til þess, að enginn get- ur ,líkt honum við Njál í því efni. Höfuðlagið er í bezta lagi, og væri auðið að opna kúpuna, mnndi þar inni vera heilabú óvenju-stórt, smágert í sér, þétt og þungt, og með þeim ótrúlegasta fjölda af vistarverum og forðabúrum, sem auðið er að koma f\rir í einu mannshöfði. Því að Steingrímur er ekki að eins manna næmastur, heldur líka sá stálminn- ugasti maður, sem ég hefl þekt. Þegar þessar tvær gáfur verða samfara ágætum skilningi og skarpri dómgreind, eins og þær gera hjá honum, og þar við bætist, að hann er smekkmaður, fjörraaður, orðhagur og meinflndinn og bóksmoginn eins og mölur í öllum veraldarinnar fræðigreinum, skáldskap og vísdómi að fornu og nýju, þá er ekki kyn þótt hann geti verið skemti- legur, enda drekkur hann í sig daglega eins og þurr svampur sérhvern nýjan straum, er opnast í æðum bókrnentanna. í bókasafninu er veldi hans vfðara en annara manna, þvi að hann hefir undir sínum forráðum þrjár deildir og tvo menn sér til aðstoðar. Aðaldeild hans er heim- spekisdeildin ; þar er og guðfræði og trúar- bragðafræði, stjórnfræði, félagsfræði, þjóð- meganfræði. Önnur deild eru innbundin tímarit (ekki blöð) almenns efnis. Þriðja deild er almenna lestrardeildin, þar sem frammi iiggja ný tímarit og blöð jafnótt og þau koma út. Eg heyrði einhvern tíma

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.