Öldin - 01.12.1896, Qupperneq 7

Öldin - 01.12.1896, Qupperneq 7
ÖLDIN. 185 herðir g’anginn enn og vonar að enn sé ekki komin vinnntími. Hann er að hon- um virðist klukkutíma að komast fram hjá einni stórbyggingu, sem hann þekkir svo vel, en samt vonar hann að enn sé nægur tími. Hann veit að þetta er vonleysa, en vonar samt. Alt í einu verðui' honum fótaskortur. Hann hefir lent utan við gangstéttina með annan fótinn, tapar svo jafnvæginu og fer flatur. ofan í snjóinn. Kannan hans hend- ist 4 háaloft og kemur miður 4 fönnina langt fram undan honum. Kaffið, brauð- ið, kjötið, — alt fór á ringulreið, alt í snjó- inn sitt í hverri áttinni! Þar er miðdags- verðurinn farinn. Cullen rís íijótt á fætur en stynur þungan yfir óförunum. Treyju- ermarnar eru fullar af snjó og hann er eins og dofinn og hikar eitt augnablik. Á með- an hann hikar þannig, heyrir hann hinn illkvitnislega hvin gufupípunnar í verk- stæðinu. Hann rýnir fram fyrir sig í hríð- ina og sér þá grilla í verkamennina suma á harða hiaupi. Það er um að gera að vera kominn í dyrnar áður en blísturinn hættir. Cullen starir fram undan sér á alt og ekkert. Hann sér það eitt, að hann er orðinn of seinn einu sinni enn. ITonum flnst hann ætla að kafna og hjartað hleyp- ur upp í kverkarnar á honum. Hann vein- ar af tilfinningu og tárin lilaupa fram í augun og — hrjóta niður hina skeggjuðu vanga hans. Hann missir alveg móðinn. Hann hleypur til, þrífur upp könn- una og brauðbitana og kjöt-agnirnar, sem hann nær þægilega í. Hann bítur í brauð- ið áður en hann vöðlar því ofan í könnuna og tekur svo á sprett. Fimm mínútum síðar er maður að reyna, að læðast inn um “vinnuinanna”- dyrnar á verkstæðinu, þar sem ein hurð tekur við af annari. Ilann er lafmóður og er að reyna, að komast inn án þess eftur sér verði tekið. En í því er hann kom inn á gólflð gægðist verkstjórinn út úr skrif- stofunni og — kom þegar auga 4 letingj- ann. “Þrátt fyrir veðrið voru allir komnir í tæka tíð í morgun, nema þú!” sagðí verkstjórinn kuldalega. “Ég held að við getum komist af án þín framvegis. Gjald- kerinn borgar þér það sem þú átt inni.” “Er það meiningin, Mr. Pettingill”, stundi Cullen, “að þú rekir mig af því ég kom of seint í morgun?” Sorg, reiði, hefni- girni lýsa sér á víxl 4 andliti verkamanns- ins, og hvetja hann til að svara harðstjóran- um fullum hálsi. Það er á slíkum augna- blikum að anarkistar eru framleiddir. Eu Cuflen er bljúgur og segir í auðmýkt: “Ég gat ekki að því gert, herra minn! Geturðu ekki afsakað mig rétt í þetta sinn? Það skal aldrei koma fyrir oftar. Eins og þú sér á mér, datt ég flatur og—og — svo er konan mín........” Verkstjórinn veif- ar hendinni til merkis um að hann vilji ekki heyra meira. Hann hefir oft og marg- sinnis heyrt slíkar afsakanir. “Við þurfum”, sagði hann, “menn, sem geta staðið, þó stormur sé. Ég hefi líka, Cullen, geflð þér áminningu þrisvar- sinnum á tveggja vikna tíma. Að líða þér að vera seinn, þýðir að venja alla hina mennina á óreglu. Þú mátt til með að f5 þér vinnu annarsstaðar.” Að svo mæltu snéri verkstjórinn sér frá Cullen og gekk inn í verksmiðjuna. Verkamaðurinn, stór og sterkur, stend ur eftir niðurlútur og sorgbitinn, hvítur eins og snjórinn úti fyrir. Hér var efní í fræga mynd, ef listfengur málari hefði verið við hendina. ANNAR KAFLI. Hádegið. Lorimer Hemphill, hinn tignaðí for- seti Sampson Cordage-félagsins, er óvinn- andi. Það félag hafði fyrir skömmu hætt

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.