Öldin - 01.12.1896, Page 10

Öldin - 01.12.1896, Page 10
188 ÖLDIN. bráð, — svo sem klukkustund! Ef við bara getum dregið það, með svo sem tveimur.... ” Hann lítur á vasaklukkuna. “Jæja, húsið mitt er líka farið,” svar- aði Hemphill og fór hrollur um hann, en stórir svitadropar stóðu á enni hans, — komu fram jafnóðum og hann þurkaði þá af. “Já, mér datt þetta í hug,” sagði Melden. “Ja, þú kemur í kvöld ?” sagði Hemp- hill spyrjandi. “Guð minn góður! Sextíu og átta og tveir þriðju og helmingurinn af þremur áttundu!” Honum verður svo um þessa frétt, að bann rífur bréf-lengjuna í tætlur, sem þá fellur út á gólfið úr körf- unni og liðast þar jiiður í hi’ingum, eins og hvít eiturslanga. Ilann kastar sér niður í hægindastól og hallar sér aítur á bak og lítur illilega til merkivélarinnar, sem sak- laus og ósjilfrátt merkir þær tölur á bréf- lengjuna, sem henni eru fengnar til flutn- ings yflr í axíu-markaðinum. “Súptu á þessu!” sagði Melden og tók flösku og tvö staup fram úr skáp, og helti á bæði. “Það er ágætis feluleikur þetta “ball” þitt í kvöld,” sagði hann svo. “Þeir koma þangað náttúrlega allir. Eg segi fyrir mig, að ég vildi ekki sleppa af því samkvæmi, þó heil bújörð væri íboði”. Svo fer hann um stund að horfa á tölurnar úr merkivélinni og les tölurnar upphátt, óafvitandi: Sextíu og átta og einn fjórði; — einn áttundi; — sextíu og átta!” í þessu slær klukkan tólf á hádegi. Það fer hrollur um Lorimer Ilemphill, og vefur hann i avala-kápunni þéttar að sér, þó í stofunni sé meira en 70 stiga hiti. Úti fyrir, í frostinu, gengur fáklæddur maður um gólf, eins og hermaður á verði. 'Honitm er ekki kalt, eða sé svo, þá veít hann ekki af því. Ilann hugsar um það eitt, að ef þörf gerist, skal hann ganga þarna um gólf alla nóttina. Dyravörðurinn og öku- maðurinn gjóta til hans hornaugum öðru- hvoru út undan krögunum á grávöru-káp- unum sem þeir veíja að sér. “Sextíu og sjö og limm áttundu! Sex- tíu og sjö og hálfur !” Þetta segir merki- vélin nú við hina kvíðandi höfðingja í stofunni. Falli verðið einn sextánda nið- ur fyrir sextíu og sjö cents, er þessi drembi- láti miljónaeigandi allslaus alveg og ein- göngu kominn upp á náðir konu sinnar. Hann rís hægt og seint á fætur, fölur eins og nár, og riðar á íótujium. í því segir Melden við sjálfan sig, of- ur lágt, en þó svo hátt, að Hemphill þykist vita hvað hann -sé að segja : Sextíu og sjö og þrír áttundu!” “Guð minn góður! Ég þoli ekki þetta!” sagði Hemphill oggerði sitt sárasta til að vökva varirnar, sem alt í einu höfðu þornað upp. “Það er nú ekki nema augna- blika spursmál. Eg ætla heim. Sendu mér skeyti þegar alt er úti. Og, gamli vinur,” og Hemphill lagði hendina á hand- legg Meldens. “Við höfum gert mörg á- tök saman. Mér svíður meir þín en mín vegna. En kondu í kvöld. Gleymdu ekki “ballinu”! Hún veit ekkert um þetta enn. Guð hjálpi henni!” Hemphill gengur út. Dyrnar lykjást á eftir honum. “Einn áttundi!” segir Melden v;ð sjálfan sig. “Einveldið er að buga okkur í þetta skifti áreiðanlega.” Þó hann sé einn eftir gerir hann sér upp hugrekki, sem hann á þó ekki til. Hann handleikur bréf-ræmuna ósjálfrátt og tugði vindilinn þangað til ekkert var eftir. Alt í einu verður honum svo hverft við, að hann rek- ur upp hljóð. Ilvaðvarþað? Voru það endalokin ? Það sem hann alt í einu sá, var það, að Sampson Cordage-félags axíu- urnar höfðu alt í einu stigið upp svo nam einum áttunda úr einu stigi! Það var lít- ið, en nægði. 0g í því verði héngu svo axíurnar. I millitíðinni hafði Cullen gengið í

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.