Öldin - 01.12.1896, Page 12

Öldin - 01.12.1896, Page 12
lbo ÖLDtN. afréði Mr. Volk, eftir alvarlega íhugun málsins, að leggja sporið eftir fjörunni, rétt fyrir ofan lægsta vatnsmark, en 14 fet und- ir vatni í háflóði. Af því fyrirhugað var að senda f'ólksvagn eftir brautinni án til- lits til flóðs og fjöru, var óumflýjanlegt að finna upp og fá smíðaðan fólksvagn með sérstöku lagi. Og Mr. Volk hefir líka tek ist að fá gerðan vagn sem er alveg ólíkur öllum fólksflutninga færum, sem menn þekkja. Er reið þessi hálfgildings-vagn og hálfgildings-bátur á fjórum löngum fótum með hjólunum neðan á. Hið einkennilegasta við sporið sjálft er það, að það samanstendur af fjórum stálteinum, en ekki tveimur eins og venju- legt er. Til að sjá, þegar útfall er, og sporið sézt, lítur það þess vegna út eins og þar væri tvöfaldur sporvegur. Milli ytri- teinanna eru 18 fet og má af því ráða hvað vagninn muni breiður. Menn geta hugsað sér hvílíkt vandræðaverk var að byggja þessa braut, þegar athugað er, að hún varð lögð að eins þegar útfall var og að alt af mátti búast við, að með aðfallinu eyðilegð- ist svo og svo mikið af því, sem búið var að vinna. Brautin var bygð þannig, að stöplar úr sand- og sement-steypu voru bygðir með fárra faðma millibili, sín röðin undir hverjum hinna ytri teir.a. Eikartré voru fest milli þessara steyptu stöpla, þvert yfir sporið, á sama hátt og almenn járn- brautar bönd, og við þau þvertré og stöpl- ana voru svo teinarnir festir með járnbolt- um og hespum. Auk þessara þver trjáa voru og þverbönd úr járni og tengd öllum teinunum, með tíu feta millibili þar sem brautin var bein, en með flmm feta milli- bili, þar sem sveigur er á henni. Yagninn sjálfur er ef til vill það ein- kennilegasta við þessa járnbrautar eign. Sem sagt eru fjórir fætur undir honum, sinn úr hvoru horni og undir hverjum fæti er fjögur hjól,er velta á stálteinunum. Hjóla- klasinn undir hverjum fæti er í hulstri miklu úr járni, kúptu að ofan og á hliðum, en mjótt eins og saumhögg í báða enda. Er hulstrið gert þannig í þeim tilgangi t bæði, að varpa rusli, steinum, trjábolum eða hverju sem setja'st kynni á sporið,'burtu af sporinu, á sama hátt og trjóna á gufu- vagni, og til þess einnig að rista sjóinn með sem minstum átökum. Fætur þessir eru fjötraðir hver við annan, þvert og endi- langt og á snið, með járnböndum. Frá frambrún bjólahulstursins fremra, aftur á afturenda þess aftara, eru tuttugu og átta fet, og breiddin á sporinu, er, sem áður heflr verið getið um, átján fet. Hjólin á hverjum vagni grípa þess vegna yflr 28x18 fet að flatarmáli, er ætti að veita næga tryggingu fyrir því, að vagninn sé stöð- ugur. Ofan á fæturna koma þverbitar úr járni og járngrindaverk, áþekt venjulegu brúar-járni og ofan á það stálgrindaverk kemur gólflð, eða þilfarið. Umhverfis alt þilfarið gengur handrið úr járni með á- festu þéttu vírneti, sem að neðan er fest við ytri brúnina á þilfarinu. Þetta þilfar er 50 feta langt og 22 feta breitt. Á því miðju er yfirbygging og ofan á henni ann- að þilfar, með sama útbúnaði og aðal-þil- farið. Yfirbygging þessi er svo stór, að inni í henni er salur 25x12 fet og ei hann skrautbúinn ekki síður en eru salir á skraut- mestu skipum. Ilver vagn ber alt að 200 manns. Hvað búning allan snertir uppi á þil- farinu, heflr það augsýnilega vakað fyrir höfundinum, að búa til reið, sem líktist skrautlegastri “jakt” sem mest mætti verða Þar er allur sá búningur, sem menn gætu vonast eftir að finna á vönduðustu lysti- skipum. Þar enda gengið svo langt í eft- irlíkingunni, að á þilfarinu, eða uppi yfir því, á járnkrókum, er dálítill bátur, og á vírnetinu hanga í röðum sundhringir úr kork, eins og sjá má hvervetna á skipum. Hreyfiaflið er samskonar og á venju- legum rafmagnssporvegum,—leitt eftir vir

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.