Kvennablaðið - 01.02.1896, Blaðsíða 6

Kvennablaðið - 01.02.1896, Blaðsíða 6
14 enn þeir kæmu, og hún hugsaði með sjer, að það yrði víst gaman að sjá, hvað mað- urinn hennar yrði hissa, þegar hann fengi vindlana og pípuna. Hún hafði keypt það fyrir sína peninga, sem hún hafði fengið á sauma, er hún tók meðan hann var fyrir sunnan. Klukkan var orðin 7, þegar Ólafur kom úr kirkjunni. Þegar Kristín sá, að hann var einn, spurði hún, hvort Jón kæmi ekki líka. *Nei“, sagði Ólafur, honum var boðið til eins af skólabræðrum hans í kveld". Kristín bar inn matinn og settist að borðinu með manninum og dóttur sinni. Ólafur var mjög fálátur og talaði ekkert um, hvernig honum líkaði maturinn, sem hann var þó v&nur að gjöra, þeg&r vel lá á honum. Þegar þau höfðu etið og Kristín hafði iokið frammiverkum, bar hún inn bakka með ýmsum kökum og ljet á borð- ið. Þegar hún var komin inn með kafíið, tók hún jólagjafirnar og rjetti að manni sinum og barni. Litla stúlkan rak upp hljóð af gleði, þegar hún sá brúðuna og hljóp upp um hálsinn á mömmu sinni, enn maður hennar sagði þurlega: „Þú heldur sjálfsagt að jeg sje mjög hrifinn af öllum þessum jólaverkum þín- um. En jeg hefði langtum heldur viljað íá matinn minn á rjettum tíma í dag og jakkanu í kveld, eun að þú hefðir verið með allan þenna fyrirgang og frammi- 8töðu“. Þegar Kristín heyrði þetta, roðnaði hún fyrst við, en fölnaði þegar aftur. Henni fannst sem steypt væri yfir sig fullri skál af vatni. Henni varð alveg orðfall. Hún, sem hafði hlakkað svo til, hvað maður hennar yrði ánægður, þegar hann sæi hvað drjúgt henni hetði orðið í höndum og hvað hún hefði getað gjört heimilið þægilegt með svo litlu. Vóru þetta þá þakkirnar? Og hafði maðurinn hennar nú eftir að eins fjögra ára sam- búð ekki hlýlegra viðurkenningaryrði til hennar? Var þetta jólagjöfin hans? Hún settist þegjandi niður að drekka kafíið, en ánægjan og kaffiílöngunin var horfin og nokkur tár hrundu ofan í boll- ann hennar. (Niðurl. næat). Jeg þekki hana ekki. J;,eg þekki bana ekki, enn aamt er mjer sagt, að sjo hana inndælt að finna. Hún armana hefir ei um mig lagt nje unt mjer gæðanna sinna. Hún kvað vera fríð og sælleg að sjá og sveipuð yndisþokka, með hlæjandi varir og hýra brá og hrynjandi gullbjarta lokka. Og hlý eins og sðlin á vormorgni væn — og veglegt er henni að mæta: Hún her í fanginu blöðin græn og blöm með ilminum sæta. Hún býður þau vinum með bros á kinn og blíða ástarkossinn, í vorhlýja faðminn þá vefur sinn, að velji þeir sjálfir hnossin. Því hundrað tegundir hjá henni fást, og hver sem að þjer þykja mætust, þá veit jeg að þau heita von og ást, sem víst eru allra sætust. Mig dreymdi’ hana eitt sinn, hún var svo væn, að vitrast hjartanu mínu;

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.