Kvennablaðið - 15.06.1907, Síða 1

Kvennablaðið - 15.06.1907, Síða 1
Krennablaðiðkoet- ar 1 kr. 50 au. inn- anlands, erlendis 2 kr.60 [cent vestan- hafs) */» vo»“ðBÍns borgist fyrfram, en */* fyrir 15. júli. Uppsögn skrifle bundin við ára- mót, ógild nema komin sé til út- get. fyrir 1. okt. og kaupandi hafl borgað að fullu. 13. ár. Reykjavík, 15. júní 1907. M 6. JT n í'ii i* é i í i. Nú á tímum er mikið talað um jafnrétti. Konurnar viija fá jafnrjetti við karlmenn, börn- in við foreidrana og vinnufóikið við húsbænd- urna. „Frelsi, jafnrétti bræðralag", það eru einkunnarorð þessara tíma. Þau eru fögur, hijóma vel í eyrum og ættu að vera hverri mannssál dýrari en öll önnur gæði heimsins. En — þau hafa iíka í sjer fólgnar skyldur, sem ekki má losa sig við, ef þýðing þeirra á að standa óröskuð. Hvers vegna skyldi verkalýðurinn ekki hafa öll sömu réttindi og hinar stéttirnar? Einmit.t á herðum verkalýðsins hvílir mikill hluti af velgengni þjóðanna. Því er það mjög misráðið, þegar löggjöf landanna setur hann skör iægra en hinar stéttirnar, þégar um ýmis- konar réttindi er að ræða. Allir menn og konur með óskertri skynsemi og mannorði ættu að hafa sömu mannréttindi. Það var líka mjög misráðið og rangt hjá bæjarstjórn Reykjavíkur, að veita ekki vinnu- fólki jafnau rjett til uð kjósa í bæjarstjórn eins og öðrum. Hvað er það, sem allir kvarta nú um, að mest standi í vegi fyrir þrifum landsins? Einmitt skortur á vinnufólki! Og þótt hann só að líkindum ekki eins tilfinn- anlegur hér í bænum og upp til sveita, þá er það þó stöðugt umkvörtunarefni allra, að minnsta kosti húsmæðranna. En getum við láð nokkrum, þótt hann velji sér ekki þann atvinnuveg, sem hann sór lítilsvirtan af lög- gjöfinni? Atvinnuveg, sem bakar honum missi mikilvægra mannréttinda! Nei, einmitt þær atvinnugreinarnar þarf að gera aðgengilegast- ar sem nauðsynlegastar eru. Þeir, sem þær taka fyrir mega einskis ímissa. hvorki í laun- um né áliti. Það getur nú verið, að vinnukonur hugsi enn þá ekki alment um þetta, kæri sig ekki um þessi réttindi. En kvenréttindin eru kom- in svo langt áleiðis, að þau liggja svo að segja í loftinu líka hjá oss. Það líður varla á löngu, áður en augu vinnukvenna opnast fyrir þeim sannleik, að það sé lítilsvirðing við stöðu þeirra, að þær hafi ekki sömu réttindi, sem þær gætu haft, ef þær leigðu sór sjálfar her- bergiskytru og gildu fáeina aura til prests, kyrkju eða sveitar. Ýmsar stallsystur þeirra, sem þær þektu, mundu færa þeim heim sann- inn um það. Löggjöfin úthlutar mannréttindunum, og hingað til hefur hún því miður gert það mjög óhyggilega. Það ber auðvitað minna á slík- um mismun hér á landi en annarsstaðar. En vinnuhjúavandræðin eru þó meira sprott- in af því, að vinnuhjúin finna, að stétt þessi er bæði frá löggjafarinnar og venjunnar hendi minna virt, en aðrar stéttir, heldur enn af því, að vinnufólkið beri minna úr býtum að öllu samanlögðu. En sökin er líka að nokkru leyti hjá vinnuhjúunum. Þau hafa ekki gert sér það ijóst, að þau ættu að koma því á, að þeirra stétt væri skoðuð sem iðnaðargrein, með sömu réttindum, áliti og skyldum. En það má fylli- lega segja, að stúlkan, sem býr til matinn í eldhúsinu, ræstir herbergin á heimilinu og gerir öli önnur heimilisverk þurfi fult eins mikla sérþekkingu til að leysa þau verk vel af hendi, eins og saumastúlkan, eða búðarstúlkan. Það ætti að teljast sérstök iðnaðargrein eins og tjármennskan og hirðing alls búpenings í sveit- um er heldur ekkert annað. Vinnufólkinu ætti ekki að gera lægra und- ir höfði að neinu leyti en öðrum iðnaðarstétt- um, ef það stæði vel í stöðu sinni. En eins og aðrar iðnaðargreinir heimta sérþekkingu og vissan námstíma til þess að verða full- numa í iðn sinni, eins ætti að heimta það af vinnufólkinu, að það bæði væri fært um að leysa störf sín vel af hendi, og gerði það líka. — Enginn mundi til lengdar nota þann tré- smið, sem skemdi alt efnið í það, sem hann ætti að smíða, og aldrei mætti trúa íyrir neinu, nema meistarinn stæði jafnan yfir hon- um, eða þá saumakonu, sem altaf þyrfti að standa yfir og laga allt í höndur. Þannig

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.