Kvennablaðið - 15.06.1907, Qupperneq 4

Kvennablaðið - 15.06.1907, Qupperneq 4
44 KVENNABLAÐIÐ. ykkur af því, a3 eg fann óljóst til þess, að eg gæti verið minn eiginn lukkusmiður, ef eg að eins fengi tækifæri til þess. Enginn ætlaði mér neitt gott, og eg ólst upp þekkingarlaus, eins og hálfgert fffl. Hendur mínar voru óliðlegar og ljótar, eg kunni ekki dráttlist, og engan reikn- ing. Tungan mín var lfka óliðleg. Eg gat ekki skýrt þá, hvað eg átti við. Eg var óþolin- móður yfir því ranglæti, sem eg varð fyrir, og þverlyndur og fúll, þegar fólk skildi mig ekki. Eini maðurinn sem skildi mig var hann OIi smið- ur, hann sagði mér frá Eirfki, sem hafði verið einmitt annar eins aumingi og eg, en hefði nú barist fram til að komast í góða og heiðvirða stöðu þarna vestur í fjarlæga landinu. Svo lá eg svefnlaus margar nætur og bylti mér á alla vegu. Síðast ákvarðaði eg að strjúka. Hefði eg beðið urn fararleyfi, þá hefðu allir hæðst að mér. Ver gæti mér ekki liðið í Ameríku, en hér í Svfþjóð. og svo fór eg leiðar minnar, fyrst til Gautaborg- ar, og þar laumaðist eg út 1 útflytjendaskip, og faldi mig undir pokum og öðrum varningi þang- að til við vorum í rúmsjó". (Niðurl.). Vinnukonu-skóli. Vinnukonufélagið i Kaupm.höfn hefir nýlega leigt sér húsnæði með 30 herbergjum, og þar hefir svo forstöðukona félagsins, frk. Christen- sen (sem sjálf var vinnukona, þegar hún stofn- aði félagið) komið á fot skóla, þar sem u«gar, fátækar stúlkur eiga að læra öll heimilisverk, sem vinnukonur (og húsmæður) þurfa að kunna. I skólanum er alt gert til þess, að stúlkun- um líði vel og þær hafi sem mest gagn af skólanáminu. Þar er stór fyrirlestrarsalur, með ))fortepíanói((, sem félagskonur hafa skotið sam- an fé fyrir. Eldhúsið, búrið, matstofan og svefnherbergin, þar sem 4—5 stúlkur sofa sam- an, eru öll björt og loftgóð, með ljósleitum hús- búnaði. Pessi skóli hefir tvær deildir, og eru þjjpr eingöngu ætlaðar vinnukonum. í yngri deildinni eru stúlkur frá 16—20 ára. Þar er námstíminn 6 mánuðir. fær fá ókeypis fæði, húsnæði, fataþvott og góða kennslu í mat- artilbúningi og allskonar daglegum heimilis- störfum, að bera á borð, þvo og slétta íéreft o. s. frv. Pessi deild er alt af fullskipuð, bæði af sveitastúlkum og bæjarstúlkum. Hin deildin er fyrir vinnukonur, sem eru yflr 20 ára gamlar og læra þær bæði einfaldari og finni matartilbúning, að leggja á borð og taka fallega til mat, kökubakstur og ávaxta-niður- guðu, Pær verða að gefa með sér 20 kr, um mánuðinn. Námstíminn er þrír mánuðir. Þessi deild er ekki eins vel sótt, þvi vinnukon- ur þykjast ekki hafa efni á þvi. Það kveður frk. Christensen heimsku. Þær hafi miklu meiri peninga í vistum þar sem þær fái fæði, hús- næði o. s. frv. ókeypis, heldur en þær sem vinni í verksmiðjum, eða ýmiskonar verzlunum, eða séu saumastúlkur. Vinnukonur ættu aldrei að taka við drykkjupeningum eða gjöfum, held- ur fá sín vinnulaun, sem væru í fyrstu lægri, meðan þær væru ófullkomnar, en hækkuðu með aldrinum og eftir dugnaði þeirra. Þær skilji ekki enn, að þeim riði á að efla félagsskap sinn og framfarir i öllum efnum, og ávinna stétt sinni sömu virðingu og öðrum iðnaðar- greinum. Framfarir þeirra komi allri þjóðinni að notum. Þær séu oftast sjálfar frá fátækum heimilum, og komi svo inn á efnaðri heimilieða rikisheimili. Þegar þær giftist hverfi þær oft- ast aftur til smáheimilanna. Hvaða gagn sé þá að, þótt maðurinn geti unnið sér inn peninga, ef konan kunni ekki að fara með þá«. Fyrsta stúlkan í dansUa í-ílíiim, sem tekið hefir málarapróf er islenzk s/ú/ka, A s t a Árnadóttir að nafni. Hún lærði fyrst að mála hjá Bertelsen máiara hér í Reykjavík. Sfð- an fór hún suður til Danmerkur og komst að nároi þar, og lauk því nú í vor með ágætum vit-n- isburði. Af nemendunum, sem voru um 45, fengu 15 verðlaun og var hún ein af þeim. Dönsk blöð lúka miklu lofi á frammistöðu hennar, og mörg þeirra fluttu mynd af henni. Vonandi er, að þetta verði byrjunin til þess að Isl. stúlkur taki fyrir ýmsar iðnaðargreinir, sem þær gætu fult eins vel leyst af hendi eins og karhnenn. I Kaupmannahöfn er dönsk kona, frk. Christiansen, sem hefir leyst af hendi sveinspróf í húsgagna- smíði. Nú hefir hún afarstórt húsgagnaverkstæði og veitir þar um 80—100 manns atvinnu. Uugmennafélögunum fjölgar óðum hér á landi. Það er lofsverður áhugi og vonandi að hann beri ávexti á sínum tíma. En vér get- um ekki annað en furðað oss á, að ungar stúlkur séu útilokaðar frá þessum félagsskap. Geta þær ekki tekið þátt í líkamlegnm fþróttum? Þurfa þær ekki að herða líkatna sinn? Eiga þær ekki til ættjarðarást? eða þarf hennar ekki við fyrir konur? Eða eru konurnar ekki viðkomandi þjóð- inni og föðuriandinu, sem ungmennafélögin ætla að vinna fyrir? JÚ, vissulega ættu ungu stúlkurnar að vera með, og meira að segja; Forstöðumaður Ung- mennafélagsins hér, hr, Helgi Valtýsson, sem á

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.