Kvennablaðið - 07.10.1907, Side 4
76
KVENN ABLAÐIÐ.
Pau eru þessi:
1,— 4. E)m harðari hegningu fyrir siðferðis-
brot gegn stúlkubörnum.
5.— 7. Réttarfarsleg staða giftra kvenna.
8. Meiri réttindi mæðrayíir börnum sínum.
9.—11. Réttarfarsleg staða óskilgetinna barna.
12.—14. Að hækka giftingaraldur kvenna (sem
nú er 15 ár).
15. Verndun ógiftra mæðra og barna þeirra.
16.—17. Aukin réttindi kvenna til embætta
ríkísins.
Hvað átt er við með réttarfarslegri stöðu
giftra kvenna og óskilgetinna barna er: 1., að
fjárráð mannsins yflr eigum konu sinnar sé
afnumin. 2., að gifta konan hafl fullan rétt til,
að ráða sjálf yfir sinum sérstöku eigum án þess,
að fá neina sérstaka lagaheimild til þess, t. d.
með kauþmála i milli hjónanna o. s. frv. 3., að
konan fái sama rétt til, að ráða fyrir sameign-
arbúí hjónanna eins og maðurinn. Sömuleiðis
um aukin réttíndi giftra kvenna yfir börnum
sínum, sem séu greinilega tekin fram og viður-
kend bæði í hjónabandinu og við hjónaskilnað.
— Pað helzla i lagafrumvörþunum og þings-
ályktunartillögunum viðvikjandi réttindum ó-
skilgetinna barna er: 1., að faðerni þeirra sé
löghelgað með dóml, þar sem ekki er annars
kostur, og móðirin hafi auk þess rétt til—með
vissum undantekningum — að sanna framburð
sinn með eiði. 2. að hverju óskilgetnu barni
sé skiþaður svaramaður. 3. að meðlagið frá
föðurnum sé reiknað hlutfallslega eftir efnum
hans og ástæðum. 4., að barnið hafi lagalegan
rétt til nafns föðursins og erfðarétt eftir hann.
5. að bæði foreldrarnir séu dæmd til nauð-
ungarvinnu, ef þau vanrækja skyldur sinar við
barnið.
Yms önnur frumvörp og þingsályktanir,
sem konur fluttu, voru líka að ýmsu leyti
konum viðkomandi, t. d. um reglulega og sam-
anhangandi kenslu í heimilislegri hagfræði og
hússtjórn fyrir konur. — Um skyldu sýslufélag-
anna og hreppa, til að launa yfirsetukonur
sæmilega. — Um að fjölga samskólum, — Um
bann gegn tilbúningi og sölu áfengra drykkja.
— Um rikisstyrk til bindindiseflingar. — Um
réttarfarslega stöðu vinnufólks. — Um verndun
leigenda gegn húseigendum. — Um rikisstyrk
til útgáfa bóka á ný-finsku. — Um járnbrautir.
Auk þess hafa þingkonurnar tekið mikinn
þátt í ýmsum öðrum undirskriftum, bænaskrám,
áskorunum, þingsályktunum og frumvörpum,
ásamt þingmönnunum.
En af þvi, að þær hafa allar tekið sterkan
þátt í flokksmálum, og flokkarígur og barátta
er nú mjög ákafur á Finnlandi, þá hafa þær
ekki komið kvennamálunum eins vel áfram,
og ef þær hefðu haldið allar saman, að minsta
kosti, þegar um þau mál var að ræða, sem
hefði verið hyggilegasi og eðiiiegast gert af
þeim. ____________
Bandaríkin. Nýlega hefir skýrsla verið
gefin út af manntals-skrifstofustjórninni um störf
og laun kvenna í Bandaríkjnnum. — Par sézt,
að i Bandarikjunum eru yfir 5 miljónir kvenna,
sem hafa á hendi ýms opinber embætti, störf
og atvinnugreinir, og að fjöldi þeirra hefir
meira enn tvöfaldast á síðustu 20 árutn. —
Og þótt' Bandarikjameun hafi ekki enn þá veitt
konum stjórnarfarsfeg réttindi nema í 4 smá-
ríkjum, þá hefir þó hin sífelda barátta ame-
rískra kvenna nú í meira en 50 ár unnið það
á, að hvergi i heimi er konum sýnd meiri
virðing eða veitt meiri borgaraleg réttindi i
mörgum greinum, og hærri laun fyrir störf sín
en einmitt þar.
Hæst laun hafa þær konur, sent tekið liafa
visindaleg próf frá háskólunum. Peim fer stöð-
ugt fjölgandi, og þær hafa nú fengið embætti i
öllum vísindagreinum. Karlmennirnir héldu
því sjálfir fram, þegar kona komst fyrst að því,
að verða formaður í líkskurðarfræði við Johns
Hopkins háskólann, ^að konur hefðu unnið til
þess með miklum dugnaði og yfirburðum í
þessari vísindagrein.
Amerískar konur hafa nú á hendi ýms
mikilsverð embætti og störf í landafræði, iíf-
færafræði og félagsfræði. Pær eru farnar að
starfa, sem vélafræðingar, verkfræðingar og
byggingameistarar, bæði við námugröft, bygg-
ingar, rafleiðslur, járnbrautaiagningar og vega-
gerðir. Pessi störf eru vel launuð. — Sú fyrsta
kona, sem var tekin inn, sem meðlimur í hið
ameríska vegagerðar og járubrautarmeistara-
félag, var boðin liá og mikilsverð staða í Kina.
Fjöldi lærðra kvenna verða kennarar bæði við
»privat« skóla og þjóðskólana. Pær konur,