Kvennablaðið - 30.11.1907, Blaðsíða 1
K vennablaðiákost-
ar 1 kr. 50 au. inn-
anlands, erlendis 2
kr.60 [cent vestan-
liafs) '/s vorðsins
borgist fyrfram, en
J/s fyrir 15. júli.
Uþþsögn skrifleg
bundin við ára-
mót, ógild nema
komin sé til út-
gei. fyrir 1. okt.
og kaupandi hafl
borgað að fullu.
Bæjarstjórnarkosningarnar
Og
konurnar.
Lins og allir vita, standa bæjarstjórnar-
kosningarnar hér fyrir dyrum. Bæði kon-
ur og karlar eru farnir að búa sig undir
þær. 6 kvenfélög hér í bænum höfðu tekið
sig saman um að vinna sameiginlega að
kosningunum, undir forgöngu kvenréttinda-
félagsins, áður en Iðnaðarmannafélagið tók
þær að sér af karlmannanna hálfu.
Þegar Iðnaðarm.félagið bauð karlm. að
vera með í kosningunum þá bauð það
einnig Kvenfélaginu og Kvenréttindafélag-
inu að taka þátt í þeim með karlm., sem
fjöhnennustu kvenfélögum bæjarins.
Mjög eru skiftar skoðanir um það hvort
betra sé og vænlegra til að koma konum
að í bæjarstjórn fyrir kvenfólkið að vera
eitt sér, eða slá sér saman við karlmenu-
ina. En þegar litið er á að líklegt er að
konur verði ef til vill ekki mikið færri
sem kjósendur, en karlmenn, þá eru líkurn-
ar til að þær græði á samvinnu við kosn-
ingarnar við karlmenn í þetta sinn ekki
sérlega miklar. A undirbúningsfundum
Iðnaðarmannafélagsins mæta fulltrúar frá
c. 12 félögum, þar af aðeins tvö kvenfélög.
Og þótt þau nú vilji koma vissri tölu að
af konum, sem öllum kosningabærum kon-
um bæjarins ætli að vera leikandi hægt,
ef þær héldu fast saman, þá verða þau á
karlm. undirbúningsfundunum að lilíta því
hvar þeirra fulltrúar verða setlir á lista
eftir prófkosningu í nefnd, þar sem karl-
menn eru miklu íleiri.
Og það lakasta fyrir kvenfólkið er það,
að það hefir úr svo litlu að vclja, þar sem
um bæjarfulltrúaefni er að ræða. Eftir
lögunum er engin kona skyld að taka við
kosningu í bæjarstjórn. Því verður ekki
um annað að gera en kjósa íleiri eða færri
af þeim konum, sem gefa kost á sér. Því
ílestir eru þeirrar skoðunar, að ekki sé
heppilegt að kjósa þær konur, sem hafa
þvertekið fyrir að taka við kosningu þeg-
ar þess hefir verið farið privat a leit við
þær af mörgum konum og körlum kunn-
um og ókunnum.
Við þetta bætist svo óvani kvenna að
taka þátt í kosningum, og að þurfa að
gefa sig undir ílokkslög til þess að koma
aðalmálinu áleiðis. Það er ekki ólíklegt,
að mörg kona álíti að ef hún ekki getur
fengið þá konu sem henni leikur mest hugur
á að kjósa, á lista, þá kjósi hún alls ekki
kvennalista. »En hálfnað er verk þá hafið
er«, og þótt vér ekki i þetta skifti fáum
þær konur inn senr allir eru ánægðir með,
þá er þó betra að byrja og setjaþærkon-
ur sem fáanlegar eru, ef þær ekki hafa þá
ókosti, sem auðsjáanlega gera þær óhæfar
til þessa starfa. Vér eigum enga þá konu,
sem allar konur geta fylkt sér um að svo
stöddu. Konur hafa hingað til komið svo
lítið fram opinberlega, að almenningur hefir
engan kost átt á að kynnast ílestum þeirra,
eða geta gert sér neina hugmynd um
hvernig þær muni reynast í bæjarstjórn.
Flestar hugsandi konur munu vera á
einu máli um það, að hluttaka kvenna í
almennum málum sé nauðsynleg. Og þetta
tækifæri er svo gott og kemur að líkind-
um ekki fyrir oftar, að kjósa eigi alla bæj-
arstjórnina í einu, að því má ekki sleppa.
Vér gætum vænt þess, að þegar konur færu
að taka þátt í almennum málum þá mundu
þær líta á margt með minni hlutdrægni en
karlm., af því flokkapólitíkin hefir enn þá
ekki náð eins að viila þeim sjónir. Þær koma