Kvennablaðið - 29.03.1908, Qupperneq 2
18
KVENNABLAÐIÍ).
armáli kvenna. En á þennan hátt eru alþýöu-
konurnar líka farnar að skilja tilgang og þýð-
ingu þess, og farnar að taka fullan þátt i því
jafnt og hinar. Orðtak félaganna heftr verið:
»Með sameign og samtökum fást full horgara-
réttindi«.
Við þessi störf og þenna félagsskaþ kvenna
hafa þærlært að flnna til sameiginlegrar ábyrgð-
ar og sameiginlegra hagsmuna i því máli sem þær
vínna að. Orðtak sameignarkenningarinnar er:
»Einn fyrir alla og allir fyrir einn«. Petta heflr
þeim orðið að lifandi virkileik. Pær hafa stofn-
að sameiginlega sjóði, t. d. heilsubótarsjóð þar
sem veiklaðir meðlimir fá styrk til að geta
fengið sér hvíld frá störfum sinum til heilsu-
bótar og hressingar. Þannig hafa félagskonur
viljað hjálþa öllum og færa sem flestum bless-
un sameignarfélagsskaþarins, jafnvel þeim, sem
ekki hafa efni á að borga inntökugjöldin til að
fá hluti í söludeildunum. Par hafa í fátækustu
borgarhlutunum, verið komið á fót sameignar- |
söludeildum, ásamt fræðsludeildum, sem þar I
eru mjög nauðsynlegar. í sölubúðunum eru
seldar ódýrar góðar vörur í smásölu, einnig er
þar seldur tilbúinn, góður, ódýr matur og kaffi.
Á allan hátt leitast félögin við að hvetja til
sþarsemi, og hjálþa til að unt sé að skuldlaus
þeningaverzlun komist á í söludeildunum.
Fræðsludeildirnar hjálþalíkatil á annan hátt
og útbreiða ljós og líf og gleði, fræðslu og uþp-
eldi til fátæku heimilanna.
Þessi verzlunarrekstur heflr þó ekki þurft
að vera neitt góðgerða fyrirtæki, þótt í fátæk-
ustu borgarhlutunum væru, heldur hefir borið
sig vel.
Pessi sameignarfélagshreyfing hefir yflr höf-
uð verið mjög mikilvæg fyrir einskar konur og
alið þær uþp til að verða góðir sameignarfélag-
ar og áhugamiklir þjóðfélagsmeðlimir.
I Skotlandi hefir þessi félagsskapur komist
á um 1902, og aukist svo að nú eru þar félög
með 10,000 meðlimum.
Þau hafa fremur lagt áherzlu á hagnaðar-
hliðina af þessum félagsskap, en ensku félögin.
Á írlaudi er einnig nýlega stofnaður samskonar
félagsskapur.
Oll standa félög þessi í sambandi hvert við
annað og halda árlega aðalfundi sameiginlega,
með kjörnum fulltrúum frá öllum félagsdeildum.
Pessi sameignarfélagshreyfing heflr borist
frá Englandi yfir á meginland Norðurálfunnar,
t. d. til Frakklands, Hollands, Noregs og Sví-
þjóðar. Sömul. til Jamaiku í Vestur-Indium.
A Hollandi hefir þessi hreyfing átt örðugt upþ-
dráttar. Söludeildirnar liafa ekki fengið nóg
viðskiftamagn og án þeirra liafa félögin ekki
jafn veruleg áhrif og ella.
Franska félagið stóð að eins skamma stund.
í Finnlandi hefir þessi hreyfing ekki fest
rætur hjá konum. Ein af helzu talsmönnum
sameignarfélagsskaparins í Finnlandi, frú Hed-
vig Gebhard, sem er ein af þingkonum Finna
álitur að af þvi finskur konur hafi full pólitisk
réttindi, þá þurfi þær ekki á sérstökum sam-
eignarfélögum að halda, þær geti unnið að út-
breiðslu um það mál sameiginlega með karl-
mönnunum.
Sönglistin á heimiiunum.
Eftir Ida Welhawen.
(Þýtt að nokkru leyti).
Hvílík dásamleg guðsgjöf eru ekki fögur
sönghljóð? Hvað mikil blessun getur ekki
oft leitt af þeim og hve sárt er að sakna
þeirra! En eins og með alla aðra hæfileika,
þá má æfa söngröddina, laga hana, styrkja
og nota — eða þá vanrækja og misbrúka.
En það er einmitt á hinum litla, friðaða
bletti, sem vér köllum heimili, sem sönglist-
in á að æfast og dafna frá blautu barnsbeini
og verða að einu aðalatriði í uppeldi barn-
anna — að fögru, kæru sameiningarbandi á
milli allra ungra og gamalla á heimilinu. Sá
sálmur, kvæði eða vísa, sem móðirin syngur
oftast við barnið sitt, festir dýpstu ræturnar
í minningum þess um æskuárin og verður
því oft seinna til huggunar og gleði, fram
yfir flestar aðrar æskuminningar þess.
Systkynahópurinn tengist saman og oið
heimilið með sameiginlegum söng. Látið
þau aldrei syngja hvert í sínu lagi, en venj-
ið þau við að syngja saman, þangað til það
verður þeim eðlilegt að syngja með fleirum
röddum í textann eða kvæðin eiga þau að
læra utan að, og fyrir alla muni, 'óll kvæðis-
erindin. Á einu barnaheimili, þar sem eg
kendi í 14 ár, sá eg mjög góðan árangur af
þessari reglu. Þar sem hægt er að koma
því við, er það líka mjög gott að leikum
og leikfimisæfingum barnanr.a fylgi jafnan
píanóleikur.