Kvennablaðið - 16.07.1915, Síða 3

Kvennablaðið - 16.07.1915, Síða 3
KVENNABLAÐIÐ 43 og bræðrum, samþ. hér 7 árum áður en þau komust á í Danmörku. Og eftir að al- þingi varð löggefandi, tók það óðum að bæta hagi vora með ýmsum frjálslegum lögum. Þannig voru samþykt á alþingi 1881 lög um kosningarrétt allra sjálfstæðra kvenna til sýslunefnda, bæjarstjórna hrepps- nefnda og safnaðarnefnda með sömu skil- yrðum og karlmanna, og 1886 var konum með lögum veitt leyfi til að taka próf frá 4. bekk latinuskólansog stúdentspróf, en hvorki máttu þær sitja í tímunum í skólanum, né gátu fengið nokkurn námsstyrk við hann. Sömuleiðis máttu þær hlýða á fyrirlestra við læknaskólann og taka jafnvel próf það- an, en án þess að geta fengið aðgang að embættum á eftir. Nokkurskonar nám máttu þær og stunda á prestaskólanum, en engin fullnaðarpróf taka þaðan. f engum af þessum umbótum áttum vér konur nokkurn þátt svo að kunnnugt sé; það var að eins löggjafarvaldið, sem af »frjálsu fullveldi«, óbeðið af -oss, veitti oss þessar umbætur. Árið 1891 fluttu þeir Skúli Thoroddsen og sr. Ól. Ólafsson ýms góð og gagnleg lagafrumvörp á alþingi, t. d. um kjörgengi sjálfstæðra kvenna í öllum þeim málum, sem þær höfðu áður kosningarrétt fil, og um myndugleika giftra kvenna, sömuleiðis flutti sr. Ól. Ólafsson frumvarp um rétt kvenna til að njóta sama námsstyrks og aðgangs að mentastofnunum landsins og karlmenn hefðu, þótt ekki næði það þá fram að ganga. Okkur konum hefir oft verið brugðið um, að við höfum ekkert gert sjálfar til þess að fá aukin réttindi vor. Og það er satt, að lengi fram eftir var það svo. Hvern skyldi líka furða á því að í landi, sem hvorki hefir nokkrar mentastofnanir handa konum sínum, né aðrar atvinnugreinar opnar handa þeim en vinnuhjúastöðu á heimilum, með engum teljandi launum fram yfir fæði og húsnæði, — þótt þær ekki standi svo hátt né séu svo þroskaðar að geta sett óánægju sína fram með fleir- um eða færri réttarkröfum. Til þess þarf bæði þekkingu og þroska, sem tæpast get- ur átt sér stað nema með nokkurri al- mennri mentun. Og karlmennirnir héldu heldur ekki neinum slíkum jafnréttiskröfum fram fyrir þær. Það voru að eins einstöku menn á þinginu, sem fluttu mál kvenna, af því þeir voru þroskaðri og víðsýnni en al- menningur af samtíðarmönnnum þeirra. Fyrsta greinin sem eg minnist að hafa lesið í islenzkum blöðum um kvenréttinda- málið, stendur í 1. tbl. Fjallkonunnar, 2. árg. 1885; fyrirsögnin er: »Kvenfrelsi«. Er þar tekinn skýrt fram hinn afarmikli mun- ur á meðferð karla og kvenna í þjóðfélag- inu og raktir helztu drættir kvenfrelsis- hreyfingarinnar í Ameríku, sem þær hafa barist fyrir Lukretia Mott og Elisabet Stanton. Grein þessi er ritstjórnargrein og skarplega settir fram stærstu gallarnir: ánauð kvenna og réttleysi hér á landi, einkum mentunarleysi ísl. kvenna og ó- hæfilega lágt kaupgjald. Sérílagi vítir höf. meðferðina á vinnukonum hér í Reykjavik, t. d. laugaferðir og eyrarvinnu. Greinin endar á þessum orðum: »Það er vonandi að þessi kvennaþræl- dómur í Reykjavík fari þverrandi, því vér teljum það engar framfarir, þótt Reykvík- ingar kæmu upp þrælastétt í landinu eða nýrri kynslóð af hálfvitum«. Þetta var ágæt vakningargrein og eg er viss um, að hún hefir vakið bergmál í hjörtum margra kvenna, þótt hugsanir þeirra fengju þá ekki en að komast í blöðin. En um vorið, 5. júní, kemur þá í fyrsta sinni fram í dagsins ljós grein i 11. tbl. Fjallkonunnar eftir konu. Yfirskrift grein- arinnar er: »Nokkur orð um mentun og réttindi kvenna« (eftir unga stúlku í Reykja- vík). Undirskriftin er »Æsa«. Molto grein- arinnar er: »Allstaðar er sá nýtur, sem nokkuð kann«. Vítir greinarhöf. mjög upp- eldi kvenna og krefst sömu mentunar og uppeldis fyrir þær og synina. Heimtar að þær séu búnar undir lífið með því að upp- eldi þeirra sé hagað eftir hæfileikum þeirrá i

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.