Kvennablaðið - 16.07.1915, Qupperneq 6

Kvennablaðið - 16.07.1915, Qupperneq 6
46 KVENNABLAÐIÐ til að koma á fót nýju félagi, sem við ekkert annað skyldi fást en að vinna að kvenréttindamálunum. Aðallega var sú hreyíing komin til vor frá al- þjóðasambandsfélögum kvenréttindamáls- ins. Því í hverju landi höfðu ýms félög fyr og síðar tekið kvenréttindamálin á stcfnuskrá sína, ásamt öðru fleira, t. d. góðgerðastarfsemi. Þetta dró svo úr fram- kvæmdum og agitationum þeirra fyrir Kven- réttindamálunum, og mörg þeirra viltust frá þeim algerlega. Þannig hafði það og verið hér. Frá því að Þorbjörg Sveinsdóttir féll frá, hafði Hið ísl. kvenfélag ekkert sint þeim málum. Því var kvenréttindafélagið stofn- að 27. janúar 1908. Þess verk var að vinna eingöngu að agitation fyrir þessum málum. Og það er alls ekkert lítið verk, sem það hefir unnið í þá átt, eftir því sem búast mátti við af nýju fjelausu fé- lagi. Hið ísl. kvenfélag sendi þá og líka út undirskriftaáskorun, sem bæði félögin störfuðu fyrir. Hún fékk 12,000 undir- skriftir kvenna. Síðan Kvenréttindafélag ísl. var stofn- að, hefir ekkert þing verið haldið svo, að það hafi ekki, bæði í gegnum blöð, ein- staka menn og á ýmsa aðra vegu, með fyrirlestrum, stofnun sambandsdeilda, und- irskriftaáskorunum til alþingis og blaða- greinum, reynt að fá þessu máli hrynt á- fram og komið inn á þingmálafundina. Margir af þingmönnum hafa verið kosn- ingarrétti og kjörgengi kvenna til alþingis mjög hlyntir, og sumir þeirra svo, að þeir hafa fylgt því jafnt fyrir það, þótt það væri borið upp af pólitískum mótstöðu- mönnum þeirra. Þegar vér því í dag í glóbjarta góðviðr- inu, stöndum hér fyrir framan þinghúsið til þess að halda minningarhátíð þess, að vér séum orðnar löglegir borgarar íslands, með fullum rétti til að vinna sameiginlega að öllum þess velferðarmálum með bræðrum vorum, þá verður það fyrst og síðast al- þingi og þess leiðandi menn, sem vér þökkum þessi stóru réttindi: Skúla Thor- oddsen fyrir hans þrautseigu liðveiðslu fyr á tímum, þegar hann mátti tala út í blá- inn án þess að heyra annað en hljóm sinna eigin orða, Hannesi Hafstein, sem bæði sem ráðherra og þingmaður hefur stutt að bestu málalokum fyrir mál vor kvennanna, og nú síðast vorum núverandi ráðherra, sem hefir borið málið fram til sigurs, gegnum allar öldur hins ókyrra pólitíska hafs, og bjargað því heilu í höfn. Það er því með glaðri von og trú, sem vér tökum við þessum réttindum, þótt þau til að byrja með séu ekki eins útfærð og vér hefðum óskað. — Alþingi íslands, þessi kjörgripur islenzku þjóðarinnar, hefir sýnt sig svo velviljað i vorn garð, að vér óskum einskis fremur, en að fá að vinna að sameiginlegum lands- málum með bræðrum vorum, undir lög- gjafarvaldi þess. Vér vitum vel, að það er fjöregg frelsis íslenzku þjóðarinnar, sem vandlega ber að varðveita að hvorki brák- ist né brotni, og vér konur munum ekki reynast því ótrúrri liðsmenn en bræður vorir. Vér heilsum glaðar framtíðinni, þar sem karlar og konur vinna í bróðerni saman að öllum landsmálum, bæði á heimilun- um og á alþingi. Guð blessi alþingi íslendinga, bæði í nú- tíð og framtið. Alþingi lifi! A eftir ræðunni var sungið kvæði eftir frk. M. Jóhannsd, sem hér fer á eftir, tóku konur alment undir og sungu með söng- flokknum: Drottinn, vor guð! Vér biðjum heilu'hjarta! Hendur oss réttu, l(t þé til vor, faðir! Styrk oss að hrekja myrkrið sorgar svarta, sárin að græða er blæddu aldaraðirl Vér krjúpum þér, guð, sem barn er móður biður, blessa vorn rétt, ó, stíg þú til vor niður! Líf vort er slys, ef leiðir þú oss eigi, ljósvana nótt, er skelfir'oss og hryggir; réttur vor tál, ef vísar þú ei vegi; visnar hvert starf, sem hönd þín ekki tryggir. Þekking og vald, ef þú ei, herra, drotnar þrýstir oss niður, ferst í hafi og brotnar.

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.