Kvennablaðið - 30.11.1915, Side 3

Kvennablaðið - 30.11.1915, Side 3
RVENNABLAÐIÐ ?3 tíma og laun: sem lélegust og ódýrust skólahús, sem fátæklegust áhöld, sem stytztan námstíma og sem ódýrasta kenn- ara. — Er þá von þó árangurinn verði ekki glæsilegur? Og hvað oft höfum vér konur kvartað yfir því, að vér værum fyrir borð bornar í uppeldismálunum? Hversu samtaka foreldrarnir, eða að minsta kosti feð- urnir eru og löggjafarvaldið, með það að undirbúa drengina á alt annan og praktiskari hátt undir lifsstöðuna en stúlkubörnin. Oftast er hugsað fyrir, ef efni leyfa, að búa drengina undir eitt- hvert sérstakt æfistarf eða atvinnu. En hversu lítið leggja foreldrar og löggjöfin áherslu á þenna undirbúning fyrir stúlk- urnar? Vitanlega hefir löggjafarvaldið nú leyft konum aðgang að öllum skólum jafnt karlmönnum, og' sömuleiðis rétt til embætta. En skólarnir eru sérskólar karl- manna; algerlega sniðnir eftir þeim, án nokkurs tillits til kvenná eða þeirra mis- munandi lífsskilyrða, hæfileika eða eðlis. Menn segja enn þá, að heimilin séu kvennanna eðlilegasti og réttasti verka- hringur, og húsmóður- og móðurstaðan mikilvægasta staðan sem þær geti haft, og þeirra eina rétta köllun. En hví vanrækja þá bæði foreldrar og löggjöf alt uppeldi þeirra til þessarar mikilvægu köllunar? Hver er sú fræðsla, sem löggjöf og riki veita þeim í þvi að ala börn sín upp, til að verða hrausta og dugandi borgara i þjóðfélaginu? Margt, ótal margt fleira mætti telja upp, sem eru, eða ættu að vera, verkefni fyrir allar hugsandi konur á komandi tímum, til að leitast við að laga. í fá- tækramálum: að fyrirbj'ggja að fleiri þyrftu að verða annara handbendi en minst mætti verða, og til þess koma meðal annars. á ýmsum líf- og slysa- tryggingarlögum, styrktarsjóðum ekkna og styrkjum handa þeim, sem vilja berj- ast fyrir sér og sínum, án þess að verða upp á sveitafélög komin. — Hað eru fyrirbyggjandi ráð, sem framfaraþjóðirnar taka til að hjálpa körlum og konum til að vera sjálfbjarga, og halda börnunum undir hendi mæðranna og heimilanna, þótt þær missi menn sína. Og síðast en ekki sist mætti nefna hjónabandslöggjöfina og barnalöggjöfina, sem öll Norðurlönd, nema ísland, sitja nú við að laga hjá sér. Þar hafa kon- urnar Iíka lagt fram drjúgan skerf, enda eiga þau öll, nema við, margar lögfróð- ar konur. En allstaðar hafa fleiri konur en þær lögfróðu, látið sig varða um slík mál, og rætt þau og sett fram kröfur kvenna um endurbætur og breytingar. En til þess þurfa þær að hafa lajnt sér þessi lög. — Það getum vér einnig gert og það erum vér skyldar að gera. Allar erum vér nokkurnveginn læsar, og engin lög snerta konurnar nánara en einmitt þessi lög. — Þau munu verða eitt af vorum stærstu framtíðar áhugamálum. þegnskylduvinna kvenna. Úti í heiminum, þar sem landvarnar- skylda er lögleidd, og hver maður sem er fullhraustur og' »normal«, verður að eyða vissum tima af æfi sinni til að læra vopnaburð og búa sig undir það, að verja ættjörð sína með vopnum og leggja bæði eignir, heilsu og líf í söl- urnar fyrir hana, þar eru nú konurnar farnar að ræða fyrir alvöru, á hvern hátt þær eigi einnig að inna sina land- varnarskjddu af hendi. Ymsar tillögur hafa komið fram um það. Víða bafa konurnar lagt helsl til, að allar ungar stúlkur skyldu læra sjúkrahjúkrun um ákveðinn tíma á vissum aldri. Það ætti að vera þeirra landvarnar- eða þegn- skylduvinna. Hér áNorðurlöndum, þar sem konurnar virðast frá fornöld hafa í hugsunarhætti og uppeldi altaf verið frjálslyndari og

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.