Kvennablaðið - 30.11.1915, Blaðsíða 6

Kvennablaðið - 30.11.1915, Blaðsíða 6
86 KVENNABLAÐIÐ Fyrirlestrar Kvenréttindafélagsins. Kvenréttindafélag íslands í Reykjavík heíir byrjað að láta halda fyrirlestra um ýms lög- fræðileg, stjórnfræðileg og hagfræðileg efni. Hefir það þegar fengið loforð ýmsra sérfræð- inga um fyrirlestra í ýmsum málum. Fyrsta fyrirlesturinn hélt alþm. Sveinn Björnsson i félaginu þ. 22. þ. m. um nýju stjórnarskrána og kosningarlögin. Var fyrirlesturinn mjög vel fluttur og skýr og mundi mörgum kjósendum, bæði körlum og konum, ekki óþarft að fá slika skýringu á stjórnarskránni, alt svo rædd og þvæld, sem einstök atriði hennar eru. Næsti fyrirlestur verður væntanlega um rétt- arstöðu islenzkra kvenna. Fyrirlestrarnir eru ókeyþis fyrir félagskonur, en utanfélagskonur borga 15 aura, eins og á alþýðufræðslu Stúdentafélagsins. — Geislabrot utan úr dimmunni. Iðnaðarbarátta Pjóðverja. Pann 27. marz siðastl. var alveg einstæður fundur haldinn i hinni hágöfugu byggingu Preussisches Abgeordnetenhaus, beint á móti hinu alþekta Wertheims Magazine. Par sást fjöldi af útvöldum, skrautklæddum herrum og dömum ganga inn í rósumskreytt fordyri, milli tveggja súlna. Og inni í hinum skrautlegu sölum gengu allir mjög alvarlega skeggræðandi saman milli lifandi mann-brúða, sem stóðu þar, greiddar, stroknar, málaðar i andliti og ilmandi af einhverjum nýjum ilmvötnum og sneru sér þjónustusamlegast hátíðlega i allar áttir, á geysi hælaháum skóm, til þess að sýna áhorfendunum búninga þá, sem þær báru og nýbúnir voru til fyrir þetta hátíðlega tækifæri, enda var ekkert lítið um að vera: nú skyldi skíra barnið, hinn nýja keisaralega pýzka móð. Áhorfendurnir voru guðfeðginin, sem vernda skyldu þetta vel skapaða barn í gegnum allar torfærur og hættur æskuáranna. En það voru heldur engin smámenni, sem hér áttu hlut að máli. Listamannafélög, iðnaðarfélög, verzlunar- hús og einstaklings-uppfundningamenn, studdir og styrktir af sjálfri þýzku þjóðinni, kröfum hennar og ráðum. Síðan striöið hófst, liafa þeir setið á rökstólum og starfað í þessa átt. Margt hefir hér komið til greina: þjóðræknis- ástæður, siðferðislegar og fagurfræðilegar, en umfram alt hagfræðilegar og keisaralegar. Pað er ekki lengur búninga-gerbreytendanna ófram- færnu óskir, að vera ekkert við móðana bund- nir eða upp á útlöndin komnir, heldur láta útlöndin vera upp á sig komin. Móðarnir eru svo sem ekki neitt tvírætt gaman, eins og kaup- endurnir hafa álitið áður, heldur liggur ávinn- ingur og pólitík bak við þá; það allra alvarlegasta, sem hugsast getur. Engin furða, að hópurinn af móð-mannbrúðunum var alvarlegur og fann til ábyrgðarinnar: Skyldur heils rikis hvildu á herðum þeirra. Skömmu eftir að »Deutscher Werkbund« hélt þessa sýningu, hélt hið þýzka ríkisfélag sauma- kvennanna kongress sinn í Berlín, sem alger- lega hljóðaði um lejmdarmál móðanna og hvernig þeir sköpuðust. Fundarskýrslurnar vekja mikla virðingu fvrir þekkingu og gáfum þýzka saumalistafólksins. Menn gætu haldið, að þeir væru að lesa um vísindalegan fund. Samt leit út fyrir, að sjálfsálitið væri ekki full- þroskað, því ýmsar af fundarkonum létu i ljósi efa, sem studdist við þekkingu þeirra á skap- lyndi þjóðarinnar, að nokkurt útlit væri á þvi, að Pýzkaland gæti nokkurn tíma sigrað Frakk- land í samkepninni upi móðinn, og héldu því fram, að þar ráði/ ástleitnin oft leikslokum. Hinir vóru sannfærðir um, að hægt væri að skapa þýzkan smekk, ef maður vildi. Um karl- mannamóða var alls ekkert talað. Peir verða að bera sömu snið og áður að miklu leyti. Svo þegar stríðið er hætt, geta þeir átt á hættu einn góðan veðurdag að vera í fötum, sem bera hið ógæfusama merki: »RuIe Britannia«. En hvað gerðu menn í París um þessar mundir? Menn töluðu um nýjustu móðana, eins og vant var, með injög miklu virðingar- leysi. Og eins og vant var, sneru betri kon- urnar bakinu við nýju móðunum, og »La Francaise« hneykslaðist á þeim og tók þá al- varlega til bænar. Munið eftir að líta inn í SÆLGÆTISVERZLÚNINA KOLBRÚN Laugaveg- 5. — Þess mun engan iðra.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.