Kvennablaðið - 31.08.1916, Side 3

Kvennablaðið - 31.08.1916, Side 3
RVENNABLAÐIÐ 59 eru heimsóknir i öllum slíkum almennum stofnunum. í Frankfurt am Main er, líka árlega haldið 2. mánaða námskeið i iðn- þrifnaði til undirbúnings handa iðnaðar- eftirlitsmönnum, sjúkrasamlagslæknum og fólki, sem hetði áhuga fyrir hinum ýmsu teknisku atriðum, í Qölmörgum ólíkum at- riðum iðnþrifnaðarins. Þessum námskeið- um eru líka samfara heimsóknir í iðnaðar- stofnanir, almennar velferðarstofnanir, þrifnaðarskóla, sjúkrahús o. s. frv. Auk þessa eru í Þýzkalandi líka til þjóð- félagslegir skólar einungis handa konum. f þessum skólum geta konur fengið undir- búning undir öll þjóðfélagsleg störf, hvort sem heldur vera skyldi sjálfboðaliðar, í góðgerðarstarfsemi, og þjóðfélagsstörfum, eða í launaðar stöður sem forstöðukonur, eða skrifarar í þjóðfélagslegum stofnunum og félögum. Þessi námskeið standa í tvö ár. Fyrra árið á að vekja áhuga fyrir praktískri þjóð- félagsstarfsemi, og þjóðfélagsmálum, og verða grundvallar undirbúningur undir þjóðfélagslega starfsemi. Námsgreinarnar eru: Uppeldisfræði, þrifnaðar- og heilsu- fræði, hagfræði, félagsfræði, ásamt lestri í þjóðfélagslegum uppeldis-fræðibókum, verk- legar æfingar fylgja í ýmsum heimilisiðn- aði, barnagarða vinnu, ásamt hússtjórn og heimilisstörfum. Síðara árið er kend hag- fræði, félagsfræði, uppeldisfræði, þjóðfélags- Ieg heilsu- og þrifnaðarfræði, þjóðfélagsleg siðfræði, þá eru og skýrð hin ýmsu verk- efni og tilgangur þjóðfélagsstarfseminnar, kend fátækrastjórn og umsjón fátækrahæla, saga fátækrastjórnarinnaro.s.frv. Sömuleiðis fer þar fram bókleg og munnleg kensla um uppeldi og fóstrun unglinganna. Samhliða þessu námi fara fram heimsóknir í al- mennar góðgerðastofnanir eða einstakra manna, verkakvenna heimili, barnaheimili, fátækrahæli o. s. frv. Kosningarnar 5. ágúst. Þær eru nú um garð gengnar en geta því miður, engum kjósendum talist til sæmdar, því það verður þó aldrei talin sæmd að selja sín dýrustu réttindi fyrir einn matarskamt. Ýmsir hafa afsakað sig með því að kosningardagurinn væri ó- heppilega valinn, því skal^ heldur ekki neitað, að undarlegt virðist að velja kosn- ingardaginn um mestu sláttarannirnar. En — einu sinni á sex árum ættu menn þó að gefa sér tíma til að sækja kosningarn- ar, sem flestar siðaðar þjóðir telja sinn dýrasta rétt, sem þær hafa oft keypt með harðri baráttu, og jafnvel uppreist og blóði. Margir munu segja að vér konur höfum I við þetta tækifæri sannað það, sem ýmsir hafi haldið fram að konur gæfu ekkert um þessi réttindi. Nú, í fyrsta sinni sem vér hefðum getað notið þeirra hefðum vér ekki hirt um það. Flestar af oss hefðu setið heima og ekki hreyft legg eða lið. Því miður er þetta satt. Fæstar þeirra kvenna, sem kosningarrétt hafa, hafa notað hann í þetta sinn. En til þess liggja marg- ar ástæður. Fyrst hin alkunna deyfð, sem nú er yfir öllum stjórnmálum. Menn vita ekkert upp á hvað er kosið. Engin mál liggja fyrir, sem vakið geti áhuga almenn- ings. Þetta hefir sömu áhrif. á konur og karla. Þá eru annríkis ástæðunnar, þær eru enn þá ríkari fyrir konur en karla á sumrin. Auk þess má telja óvíst að verka- konur fengju leyfi húsbænda sinna til að fara á virkum heyskapardögum þótt þær vildu. Og fari húsbændurnir ekki, þá er auðvitað að aðrir á heimilunum fara held- ur ekki. í þriðja lagi héldu margar fátækar gaml- ar konur að þær hefðu ekki kosningarrétt, af því þær væru orðnar ofgamlar, eða greiddu engin sveitagjöld. Þær trúa því ekki að þær hefðu rétt til að kjósa til alþingis án þess, þegar þær hefðu það ekki til bæjarstjórna eða hreppsnefnda. Og

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.