Kvennablaðið - 31.08.1916, Blaðsíða 5

Kvennablaðið - 31.08.1916, Blaðsíða 5
KYBNNABLAÐIÐ 61 að verkum, að fleiri konur frá mentuðum heimilum taka að sér kenslustörf við al- þýðuskóla en karlmenn. Og þótt menn bæði viðurkenni og virði þá, sem sjálfir ná sömu þekkingu og þroska, þá verður hitt þó að álitast mikill ávinningur fyrir skólana. Eitt atriði í þessu efni, sem ekki verður gengið fram hjá, þegar dæma á hæíileika kvenna, bæði fyrir þessi og önnur störf utan heimilis, er það, að konur oftlega gift- ast og eignast börn, þegar þær hafa starf- að nokkur ár að einhverju. Höf. kannast við, að það geti valdið margskonár erfið- Ieikum, að hafa þannig tvöföld störf á hendi, en segir þó að lokum: Eg heíi oftsinnis furðað mig á því, að giftar kenslukonur, með stóran barnahóp á heimilinu, geta þrátt fyrir það stundað öll sín kenslustörf ágætlega. En eg hefi líka þá oft hugsað: Ætti ekki heldur öll þessi umhyggja og kensla að koma niður á þeirra eigin börnum? Þessi spurning er flókin, og þó víða viðeigandi. Hið prakt- iska lífið lætur okkur hér, sem víða ann- arstaðar, standa í óvissu. Neitað verður því ekki, að einmitt þegar konan er orðin móðir, þá er hún hæfust til uppeldisstarf- anna, sem líka er aðalverk alþýðuskólanna, miklu fremur en að veita þekkingu«. Þingkosningarnar í Finnlandi fóru fram 1.—3. júlí sl. Af hinum 200 pingm. náöu 24 konur kosningu. Af þessum 24 konum voru 3 af sænska þjóðar-flokknum, tvær af ung-finska-flokknum, tvær af gamal-finska- flokknum og 17 af jafnaaðrmanna-flokknum. Af bændaflokknum komst engin kona að. Af þessum konum eru ýmsar endurkosnar. Sumar þeirra hafa jafnvet setið altaf á þingi síðan 1907. Þektastar eru þær, dr. phil. Jenny af Forelles, dr. phil. Tekla Hulten, frk. Annie Furnhjelm, (fyrv. ritstýra Nútíðar, og 2. vara- formaður í Alþjóða-Kvenréttindafélagi kvenna), skólastýra Lucina Hagman og eftirlitsmaður atvinnumálanna frk. Vera Hjelt. Sömuleiðis er ristýra vinnukvenna-blaðsins í Helsingfors, Miina Sillanpaa, ein af þeim þingkonum, sem komst á þing 1907, og síðan hefir þar jafnan átf sæti. Hún er valin af jatnaðarm.fél. Mjög eru finskar konur leiðar yfir þvi, að ein af þeirra færustu konum, sem setið hefir á þingi siðan 1907, Dagmar Neovius, féll. Hún var á lista sænska flokksins, og er konunum, sein á Finnlandi eru, meiri hluti kjósend- anna, kent um það, þótt þær gangi að kosn- ingunum sameiginlega með karlmönnunum í pólitísku flokkunum. En í grein um kosninguna, í finska kvenna- tímaritinu »Samtid«, segir H. Westermark, að til þess, að koma konum að, verði þær að fjöl- menna, þvi konumar séu aðallega kosnar af þeira. í annari grein um kosningarnar er komist svo að orði: »Er það ráðlegt, — skoðað frá kvennanna sjónarmiði — að setja upp á lista heifa röð af kvennanöfnum, sem ekkert útlit hafa til þess, að komast að, eins og ung-finsku og gamal- finsku flokkarnir hafa nú gert? Er ekki hætt við, að þetta veiki áhugann hjá áhugasamari kven-kjósendunum þegar fram í sækir, og að það sýni áhugalausu-konunum og karlmönn- unum, að konurnar séu ekki venjulega kosnar fyrir þingmenn, hetdur hafðar að tálbeitu meðal þingmanna-efnanna«.------; — Ömmurnar. Hugleiðingar gamallar konu. Fví verður ekkí neitað, að nútíma-konurnar halda æsku-útliti, og bæði andlegu og líkam- legu fjöri talsvert lengur, en fyrri kynslóðir kvenna. Ástæða þess er áreiðanlega sú, að nú- tíðarkonurnar taka meiri þátt í öllum áhuga- málum, sem efst eru á baugi en fyrri tima konurnar, og þekkja því ekki þá dauða-mollu, sem ömmurnar okkar urðu að lifa í. Agætt dæmi um eina slíka andlega og likam- lega lifandi gamla konu, sem hefir haldið sér sí-ungri er þýzki rithöfundurinn Hedvig Dohm. Þegar hún, nú fyrir 2 árum, varð 80 ára gömul, þá ritaði hún þessar hugleiðingar sinar um ömmurnar, sem Kv.bl. tekur hér upp, sem nqkkurskonar athugasemd við afmælisdaginn. * * * »Hugmyndirnar um ömmurnar þurfa endur- skoðunar við, því nú á dögum eru margar ömmur blómlegar útlits, sem gjarna vilja njóta lífsins i fullum mæli, og með fullum lífskröftum. Hæfileikarnir til að halda sér ungum, eru

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.