Kvennablaðið - 15.07.1917, Page 1

Kvennablaðið - 15.07.1917, Page 1
Kvennabliiðið ko*t- ar 3 kr.inninlanda erlendig kr. 3 GO (90 cent vestan- hafs) ’/» verðsins borgist fyrfram, en */» fyrir 16. júli. ncu itab labib. Cpppögn skrifleg bundin við kra- mót, ógild nema komin sé til út- get. fyrir 1. okt og kaupandi hati borgað að fullu. 23. ár. Kvennafursdurinn. Að tilhlutun Kvenréttindafélags íslands var almennur kvennafundur haldinn í Bárubúð laugardaginn 7. júlí 1917. Hátt á þriðja hundrað konur sóttu fundinn. Fundarstjóri var kosin frú Guðrún Bjarna- dóttir. Skrifari Fjóla Stefáns. Frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir tók fyrst til máls og talaði uiu sldpun dýrtíðarnefnda. Aleit hún konur að minsta kosti jafnhæfar karlmönnum til að sitja í verðlagsnefnd, matarnefnd og liúsaleigunefnd. Fanst ekki að landsstjórn og l)æjarstjórn hafa gert rétt í pví, þá er hún skip- aði í pessar nefndir, að ganga algerlega fram hjá konum. í samskonar nefndum erlendis ættu konur alstaðar sæli. í*á er málið hafði verið nokkuð rætt, var svoliljóðandi tillaga borin upp frá B. Bjarn- héðinsdóttur. »Fundurinn mótmælir peirri ráðstöfun lands- stjórnar og bæjarstjórnar að ganga fram hjá konurn við skipun dýrtíðarnefnda, og skorar á pessi stjórnarvöld að bæta tveimur konum við í verðlagsnefnd, matarnefnd og húsaleigunefnd hverja fyrir sig. Sömuleiðis að verði fleiri nefndir skipaðar í dýrtíðarmálum þá verði pær hlutfallslega jafnt skipaðar konuru sem körlum«. Var tillagan samþykt með öllum greiddum atkvæðum. f*á tók til máls frú Guðrún Pétursdóttir og talaði hún aðalega um eldsneyti bæjarbúa. Fanst henni réttara að hafa tvenskonar verð á gasinu, og að bæjarbúum mundi ekki önnur dýrtíðarhjálp koma betur en að hvert heimili fengi ákveðinn skamt af gasi fyrir lægra verð, en nú hefði verið sett á pað. En pað sem eytt væri fram yfir skamtinn væri svo borgað með tvöföldu gjaldi, og mundi þetla áreiðanlega verða til þess að gasið yrði meira sparað. Frúin vildi láta borgarstjóra sjá um smíði á moðkössum af mismunandi stærð, og fá konur til að kenna fólki að nota pá og útbúa. Pótti lienni borgarstjóri ekki hafa tekið þessu með nógu mikilli alvöru. Eftir nokkrar umræður var svohljóðandi till. borin upp: »Fundurinn skorar á bæjarstjórn að breyta M 6. gasverðinu þannig, að pað verði tvenskonar. Hvert heimili fái ákveðinn teningsmetrafjölda fyrir Iægra verð en nú er, en svo verði tekið tvöfalt gjald fyrir fyrir pað sem notað er fram yfir pað. Sömuleiðis að láta smíða moðkassa af hæfilegri stærð og láta leiðbeina fólki bæði með að útbúa pá og nota. Einnig óskar fundurinn að bæjarstjórnin geri ráðstafanir til að Reykvíkingar fái sem mest af Tjörneskolunum«. Tillagan var samþykt með öllum greiddum alkvæðum. Enn fremur talaði frú Guðrún Pétursdóttir uin almennings eldhús; sagði hún að ekkert væri líklegra eftir núverandi útliti en að að því ræki að taka þyrfli upp þá sparnaðarað- ferð að elda sameiginlega. En þvi miður myndi skorta næga þekkingu í þeim efnum, og væri æskilegt að dugleg kenslukona væri send utan til að læra af reynslu nágrannaþjóðanna. Ura málið urðu miklar umræður og tóku þessar konur til máls: Frú B. Bjarnhjeðins- dóttir, frú Kr. Símonarson, frú Guðrún Lárus- dóttir, frú Jóna Sigurjónsdóttir, frú Guðrún Jóns- dóttir, frú Guðfinna Þorvaldsdóttir og frk. Hólmfríður Árnadóttir. Að endingu var borin upp svo hljóðandi tillaga og var hún samþykt en mælti þó löluverðri mótspyrnu: »Fundurinn slcorar á alþingi að fá hæfa konu, helst lærða hússtjórnarkenslukonu, til að fara til útlanda og kynna sér fyrirkomulag á sameldhúsum og öðrum dýrtíðarráðstöfunum, svo að hún gæti haldið fyrirleslra og gefið fólki leiðbeiningar og síðan staðið fyrir sameld- húsi, ef að tíminn sýndi að þörf væri á því síðar«. Guðrún Bjarnadóttir, fundarstjóri. Fjóla Stefáns, ritari. * * * * ♦ * * * * Tillögur þessar, ásamt útdrætti af fundar- gerðinni og greinagerð fyrir þessu máli, sendi stjórn K. R. F. í. stjórnarráðinu og bæjar- stjórninni ásamt áskorun um að taka þessar tillögur til greina. Ennfremur sendi stjórn K. R. F. í. bjargráðanefnd Alþingis erindi um að hlutast til um að skipuð yrði sérstök nefnd sem í ættu sæti færar húsmæður eða hússtjórn- arkenslukonur og sérfróðir karlmenn, sem stjórnarráðið og dýrtíðarnefndirnar gætu borið sig saman við um alt er heimilin snerti. Reykjavík, 15. júli 1917.

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.