Dagskrá

Eksemplar

Dagskrá - 31.08.1896, Side 1

Dagskrá - 31.08.1896, Side 1
Verð á.rg. (mimist 104 arkir) 3 kr., borgist fyrir janúarlok; erlendis 5 kr., borgist fyrirfram. Uppsögn skrifleg bundin viö 1. júli komi til útgefanda fyrir oktðberlok. D AGSKR A. I, 19. Reykjavík, ínánudaginn 31. ágúst. 1896. Forngripasafnið. Þetta aumingja safn var svo óheppið að verða fyrir lítilsháttar fjárveiting fyrir nokkrum árum. — Það kvað vera 400 kr. árlega sem það opinbera hefur látið rakna af hendi til safngæslumannsins, og 1000 kr. eru einnig veittar til þess að auka við gripina. Þegar menn koma inn á geymslulopt safnsins, þar sem sýnd eru þessi brot af leifum frá fortíð íslendinga, liggur við að manni renni til rifja að sjá, hve litlu fje vjer höfum getað varið til þess að halda inni í land- inu ýmsum dýrmætum menjum sem sölsaðar hafa verið frá oss á ýmsan hátt, fyr og síðar, og vjer söknum þess að geta ekki veitt safninu vegiegri bústað. En það sjest þó á öllu að þingið hefur viljað sýna nokkrarækt við þetta gripasafn, sem ætti að geta verið þjóð vorri til mikils gagns og sóma. Einstaka menn hafa vakist upp til þess að hlynna að þessum litla vísi, til varðveislu á því sem bjargast hefur úr rústum vorra fyrri frægðardaga. Sigurður Guð- mundsson fyrst og fremst og síðan Sigurður Yigfússon hafa báðir unnið íslandi margt þarft verk í þjónustu þessa safns. 0g nú á síðnstu árum hefur skólakennari Pálmi Pálsson gætt þess með mikilli alúð og ástundun, að því væri varið vel, sem lagt er forgripasafninu af almennings fje. En því miður virðist svo, sem þessi litla krónuupp- hæð, sem laudsjóður geldur til gæslu og aukningar safns- ins, ætH að verða því hefndargjöf. Margur mundi ætla að einar 400 krónur mætti þó borga í þær hendur sem best eru að þeim komnar. Það er allt öðru máii að gegna um feit embætti, sem geta brauðfætt heilar ættir þeirra stjórnardýrðlinga, sem standa fremstir þegar skipa skal mönnum í opinberar stöður hjer á landi. Þar væri það skiljanlegt þó veitingavaldið væri glöggskyggnara á ætterni, vinskap eða mægðir umsækjandans heldur en á verðleik þeirra, því þar er þó eptir einhverju að slægj- ast. Og það er sætt, bæði að gefa og þiggja af al- mannasjóði, sjer sjálfum kostnaðarlaust. En, 400 krónur! Hvað hossa þær hátt í vasa þess manns, sem gæti á annað borð átt von á föðurlegri umhyggjusemi vorra rjettlátu stjórnenda, á leiðinni til bytlinga og annarar umbunar upp á kostnað landsmauna. Og hver veit nema alþingi hafi með vilja bundið sig við svo lága upphæð, til þess að freista ekki vorra fengsælustu bitlingadorgara, um of. — Reynslan sýnir, að menn geta verið álitnir mjög hæfir til þess að njóta opinbers fjár, þó þeir sje ekki fornfræðingar. Og ef til vill hafa hinir framsýnu löggjafar vorir viljað vernda aumingja forngripasafnið okkar með því, að gjöra það miður útgengilegt á þeim markaði, þar sem ættingjar vinir og mágar, verða hlutskarpastir, hvað sem fornum og nýjum fræðum líður. Þingið hefur efalaust treyst þeim völdum sem nú sitja á stóli, en mennirnir hverfa þó embætti haldist, og hver getur vitað nær vjer verðum að sjá á bak þeim rjettlátu og dyggu frömuðum vísinda og velmegunar hjer á landi, sem nú halda hendi sinni yfir forngripa- safninu og öðrum stofnunum vorum. Og svo er önnur hætta enn. Það má búast við því, að þeim allra snörpustu stjórnvitringum skjátlist, og að þeir með valdsmannabænina á vörum leggi opinber störf í hendur þeim, sem aliir aðrir en stjórnskörungarnir vita að eru manna óhæfastir til þess starfa sem um er að ræða. — Sú einasta og algerða trygging sem fæst fyrir því að einhver staða sje hjer skaplega skipuð, er því að launin sjeu svo lág, að enginn bitlingadorgari vilji leggja sig að þeim. En það lítur svo út, því er ver, að þeir „fengsælu“, sje alltaf að verða natnari og natnari við smáveiði, sem áður var að mestu fyrirhuguð þeim sem höfðu eitthvert vit og tök á því að vinna fyrir laununum. Forngripa- safnsbitlingurinn sannar að vísu ekkert um þessa al- mennu útvíkkun á veiðisvæði dorgaranna, en hún minn- ir oss á, að samkeppnin um fje það sem tekið er úr vasa almennings til opinberra fyrirtækja, er að aukast og veitingavaldinu mun ekki veita af að taka á allri sinni skargskyggni til þess að velja svo um menn að við megi una. í vetur, eptir að alþingismanni Jóni Jakobssyni var veitt bókavarðarstaða við landsbókasafnið, og gengið hafði verið fram hjá Sæmundi heitnum Eyjúlfssyni, sem flestir aðrir en landsbókasafnsnefndin munu hafa álitið sjálfkjörinn til þess starfa, hugkvæmdist gæslumanni forngripasafnsins þeim sem nú er, Pálma skólakennara Pálssyni, að segja af sjer gæslu við safnið, víst helst í því skyni að Sæm. heitinn, sem honum þótti verða æði hart úti, mætti komast að. En nokkru eptir að hann hafði sagt þessu af sjer, sýktist Sæmundur og dó, og þótti þá Pálma ekki ástæða til þess að draga sig í hlje,

x

Dagskrá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.