Dagskrá - 28.06.1897, Blaðsíða 4
408
Hin yfirgirpsmesta skilningsgáfa mannsinns á heima
fremst og neðst í stórheilanum, milli augnabrúnanna
rjett uppi yfir nefinu. — Eptir því sem ennið gengur
þar lengra fram, eptir því er maðurinn skýrari og fljót-
ari að skilja allt sem fyrir hann ber og gjöra ályktanir
af því og hagnýta sjer það í lífinu. — Það er hin al-
menna þekkingargáfa.
Allt í kring liggja svo aðsetur hinna sjerstöku gáfna,
Söng-gáfan, litagáfan, o. s. frv., sem yrði hjer of langt
upp að telja. — Eru bækur til er kenna þá list full-
komlega að þekkja manninn af höfuðbeinalaginu, og
verður að vísa þeim er slíkt vilja leggja fyrir sig til
hinna nýjustu bóka um þetta efni, —
Auk þessarar aðferðar má telja margar aðrar er
fylgja má til þess að þekkja aðra menn þar á meðal
fyrst og fremst hina algengustu aðferð, að taka eptir
framkomu manna í daglegu lífi og yfirleitt athuga allt
sem lýtur að ákvörðun á upplagi þeirra og lyndisgerð
svo sem ætt þeirra, uppeldi, lífskjör o. s. frv. En
það er alþekktur málsháttur og hann sannur að það er
einkum af því »smáa« sem rjett þekking fæst af ein-
kennum manna — og þeir sem skýrir eru að bera sam-
an og draga ályktanir af því sem fyrir þá ber munu á
þennan hátt fljótt geta gjört sjer hugmynd um skap og
gáfnafar annara, fullt svo vel og fljótt ef til vill eins og
vísindamenn þeir er leggja fyrir sig að ransaka hlut-
fallið milli þessa og höfuðbeinalagsins. —
Á þingrnálafundi R.víkur 26. þ. m. var í stjórn-
arskrármálinu samþ. að skora á alþing að hafna ekki
væntanl. tilboðum »um verulegar umbætur í stjórnarskip-
un landsins«.
Örlítill meiri hluti með því að hafa holdsveikis-
spítalann við Reykjavík.
Lítið þjóðveldi. Minnsta þjóðveldi í heiminum
er Tavolara, eyja, sem er 71/2 milu frá Sardínarey. Hún
er 11/4 mílu á lengd og hetur 50 íbúa. Karl Albert
Sardínukonungur, afi Umbertos Ítalíukonungs, gaf eyna
höfðingja ættarinnar sem hjet Páll Bartóleo og
gjörði hann að einvalda yfir henni 1836, og ríkti hann
í ró 46 ár yfir þessu litla ríki og nefndist Páll konung
ur 1. Rjett fyrir dauða sinn ákvað hann, að enginn
erfingja sinna skyldi komast til valda eptir sinn dag,
heldur skyldi þar verða þjóðstjórn því hann áleit, að
þjóðin væri nægilega þroskuð til þess. Svo var gjört,
sem hann hafði ákveðið, og eptir að þjóðstjórn hafði
verið reynd þar í 4 ár var því lýst yfir, að eyjan væri
þjóðveldi. Forsetinn er valinn til sex ára. Enginn op-
inber embættismaður fær laun og konur hafa jafnt at-
kvæðisrjett og karlar. 1887 lýsti ítalastjórn því yfir, að
ejjan væri óháð, ogolli það eyjarskeggjum gleði mikillar.
Ný myndabók
handa börnum fæst hjá bókbindara Sigurði Jónssyni og
kostar 50 aupa.
Ljósmóðir
Þórunn A. Björnsdóttir
þýr í Tjarnargötu nr. 6, austurenda
hússins.
Ný verslun.
Undirskrifaður leyfir sjer hjer með að
tilkynna heiðruðum almenningi, að jeg
hef opnað nýja verslun í Hafnarstræti
nr. 8, og hef jeg þar á þoðstólum alls
konar manúfaktúrvörur, vandaðar og ódýr-
ar eptir gæðum, þarámeðal ýmislegt, sem
ekki mun vera títt hjer áður.
Jeg vona að allir muni sjá hag sinn í
því að kynna sjer varning minn, og vil jeg
gera mjer ýtrasta far um að geðjast skipta-
vinum mínum.
Virðingarfyllst
Holger Clausen & Co.
Ágæt T Ó L G fæst í verslun
SveinsJ. Einarssonar.
Steingrímur Johnsen
(GLASCOW)
hefur ætíð nægar birgðir af vínum og vindlum frá
Kjær & Sommerfeldt
Kaupmannahöfn,
svosem: Cognac 1.75—4.35, Sherry 1.85—2.70, Oporto
1.90—3-7°i Kampavín, rauðvín, hvít vín, desertvín o. fl,
með ýmsu verði og af ýmsum tegundum.
Margar tegundir af vindlum frá 5.50 til 14 kr.
pr. 100. Fastir prísar.
Ábyrgðarmaður: Einar Benediktsson.
Prentsmiðja Dagskrir.