Dagskrá - 13.07.1897, Page 1
keniur út hvem vlrican ciag.
Verð ársfjórðungs (minnst
75 arkir) kr. 1,50. í
R.vík mánaðarl. kr. 0,50.
— Arsfjórð. ejlendis 2,50.
m
Verð árgangs ,yr!r »Idri katilN
cndur innanla ''s.
4 krónur.
II, 1 1.
1— J-lu—
Reykjavík, þriðjudaginn 13. júií.
] S97.
Frá útlöndum.
Ensk blöð er borist hafa ná til g. þ. m. — Benda
fléstar fregnir fremur í þá átt að sundurlyndið milli Tyrkja á
eina hlið og stórveldanna á hina sje nú að magnast
því . meir,. sem lengra líöur. Tyrkir halda fast fram
kröfum sínum:gegn Grikklandi, en.ekkert af stórveldunum
vill fallast á þær.
Það rnun og nú vera orðin almenn trú nieðal þeirra
blaöa, er fróðust, eru um þetta austræna mál, að enda-
lokin muni verða þau, að gengið verði nú að þrotabúi
Tyrkjans —; en auðvitað er ekki lengi að snúast veðrið
í því lopti og ekki hægt að færa .nein fullnægjandi rök
fyrir jrví að s.vo niuni verða. — Það sem menn helst
byggja tilgátur sínar á, er það að Tyrkjastjórn rnun.i
ckki yegna þegna sinna þora að láta undan nieð kröfur sín-
ar, cr þeir síðast ltafa gjört gegn Grikkjum, bæði um
ákyörðun landantæra við Þessalíu og herkostnað. Og á
ljinn*bóginn .þykjast’ mcnn nú vera farnir að sjá það út
úr öllu atferli Rússans. að hann muni hafa frá byrjun
haft það fyrir augum að tefla sjer svo inn í nrálið að
hann gæti tekið Miklagarð fyrir sinn munn. Spá ensk
bíoð því, að Englendingar muni ætla að sætta sig við
þctta og taka sín laun í Afríku fyrir það scm þeir láta
Rússum eptir af búi Tyrkja.
Hraðskeyti eitt frá París á fimmtudaginn var segir
að sjóhermálaráðgjafanum sjc falið að hafa Miðjarðar-
hafsflota Frakka til reiðu cf stórveldin kynnu að álíta
það nauðsynlegt að senda sameiginlega flotadeild til
Sæviðarsunds í því skyni að ógna Tyrkjum til hlýðni.
Frá Vesturheimi frjettist að Mac Kinley forseti ef
til vill muni haG í hyggju að segja af sjer, sökum ó-
ánægju yfir ástandinu í Bandaríkjunum, einkum í toll-
og peningamálum.
í Calcutta varð afarmikið verkfall (meðal mvlnu-
verkmann.a) fyrir fám dögum síðan. 8oo manna höfðu
lag’t 'niður vinnu, og er áfitið að þetta stæði í sambandi
pólitiskay æsingar gcgn Englendingum.
Tj'ón áf'vatnaflóðiim hafa nýlega orðið afarmikil í
Suður-Frakklandi (Haute Garonne og víðar). Parísar-
blöðin segja að fjöldi eyðilagðra húsa og býla sje ótölu-
legur — og að skaðinn sje þegar metinn yfir 200 mill-
jónir franka. — 300 manns kváðu hafa týnst í flóðunum.
Fr.á alþing-i.
Efri deild.
12. jítlí: *Frv. til laga um heimild til að ferma
og afferma skip á helgidögum. Samþykkt og afgr. til
neðri deildar. — *Frv. til laga um endurgreiðslu á ept-
irlaunum frá Holmsprestakalli (flm. Guttormur Vigfús-
son). Vísað til Hóltsijrestakalls-nefndarinnar. — *Frv.
til laga um uppreist á æru án konungsúrsktirðar samþ.
(með breyt.) og afgr. til neðri deildar.
Neðri deild.
12 jíilí: PVv. til laga um kjörgengi kvenna samþ.
og afgr. til efri deildar. -- Frv. til laga um löggilding
Hjaiteyrar. Vísað til Haganesvíkur-nefndarinnar. — Frv.
til laga um breyting á lögum um vegi 13. apr. 1894.
samþ. og afgr. til e. d. — Frv. til laga um löggilding
Hailgeirseyrar. Vísað til Haganesvíkur-nefndarinanr —
Frv. til laga um breyting á 1. gr. og viðauka við lög
2. febr. 1894 um breyting á tilsk. um lausamenn og
húsmenn á Islandi 26: maí 1863. (flm. Guðjón Guðlaug-
son.) Nefnd kosin: Guðjón Guðlaugsson, Þórður Guð-
mundsson, Þorlákur Guðmundssón. — Frv. til laga um
brúargjörð á Hörgá við Staðarhyl. (flm. Klemens Jóns-
son og JónJónsson þm. Eyf.) Vísað til Lagarfljótsbrúar-
nefndarinnar. Tillaga til þingsályktunar um milliþinga-
nefnd í fátækramálum (flm. Halldór Daníelsson, Þorlák-
ur Guðmundsson, Sighvatur Arnason, Þórður Guðmunds-
son.) Vísað til síðari umræðu.
Kaupgjald.
Það er opt talað um það, hve mikill sje munur á
kaupgjaldi karla og kvenna við sömu vinnu og er það
ekki að ástæðulausu; en aldrei hef jeg heyrt eða sjeð
nokkurt orð því viðvíkjandi hve rnikill munur er á kaup-
gjaldi yfir höfuð í ýmsum hjeruðum landsins. Virðist
því hvorki vera farið eptir vinnutíma nje dugnaði manna,
heldur má heita að allir fái jafnt kaup í sama hjeraði,
hvört sem þeir eru dugandi menn eða ónytjungar.
í Borgarfirði mun karlmönnum almennt vera goldið
í kaup um vikuna 12 kr. og konum 6 kr. um sláttinn;