Dagskrá - 28.07.1897, Qupperneq 3
af honum hinumegin, hafa verið gjörð borð þannig að
X-geislaáhaldið er látið undir þnð; grmga þeir síðan í
gegn um það og sjúklinginn og til sjónaukans. Þetta
hefur orðið til þess að menn gjöra nú ýmsar tilraunir,
sem enginn hefði þorað að nefna fyrir nokkrum mánuð-
um. Til dæmis hafði nálarbrot. stungist upp í fót á
manni, sem var svo ístöðulítill að hann þorði með engu
móti að láta skera sig til þess að draga það út. Læknir
skoðaði hann með X-geislunum og sá nákvæmlega hvar
nálarbrotið vár; því næst tók hann rafsegul og dró það i
út með höiium á tveimur klukkustundum. Menn geta
sjeð alla mögulega sjúkdóma innvortis, sem enginn vissi:-j
um áður, síðan X-geislarnir fundust. Ennfremur hafa
menn fundið það að X-geislarnir hafa læknandi áhrif á :
marga sjúkdóma; þeir hafa áhrif á skinnið, líkt og plástur |
eða sterkur sólarhiti, og sömu áhrif hafa þeir á hin innri
líffæri. Þeir eyða eitrinu sem kemur úr gerlum og
veldur sjúkdómum. Það er því sama sem menn geti I
lagt plástur á lungu og hjarta með X-geislunum. Læknar
telja það einnig víst, að lækna megi tæringu með þeim.
Læknir einn komst að því, að í dimmu herbergi lýstu
allar glervörur þegar geislarnir voru þar. Hvernig á þessu
stendur vita menn ekki, en talið er víst að það.getihaft
afarmikla þýðingu.
Frá Tyrkjum. Utlend blöð scm ná til 24. þ. |
m. skýra frá að nú sjeu samþykkt ákvæði friðarsamn-
inganna milli Grikkja og Tyrkja, í orði kveðnu og er
aðeins eptir að leggja þá fram til undirskripta. — Hafa
Tyrkir þar fengið nokkuð viðurkennt af kröfum sínum
er stórveldin í fyrstu þverneituðu að taka til greina.
Svo er sagt að Þýskalandskeisari hafi í síðasta
augnabliki látið soldán skilja að honum mundi hentast
að láta nú undan, og hafi þá sendiherra soldáns komið
á fund stórveldaerindrekanna rjett áður heldur en hann
var leystur upp og höfðu þeir þá komið sjer saman um
að hætta öllum samningum við Tyrki og fela stjórnum
sínum að kúga þá til hlýðni með herafla. En úr þessu
varð ekki fyrst soldán slakaði til — og telja nú allir
víst að friður komist á milli Grikkja og Tyrkja hvað
sem öðru líður.
Krít á að standa undir yfirhátign soldáns að nafn-
inu til, en fá þó sjerstakan stjórnara, sem stórveldin
velja fyrir eyna, og allt herlið Tyrkja á að vera burt
af landi þar, innan tiltekins tíma.
Frá Kuba Grimmdarverk Spánverja eru litlu
minni þar, en Tyrkja í Armeníu eða Þessalíu.
Það hafa verið hlaðnar herkvíar og reknir þangað
margir. tugir þúsunda af saklausu fólki. Þar er því
haldið skýlislausu og bjargarlausu; það verður að liggja
úti hvernig sem viðrar. Það fær ekki einn \-atnsdropa
til að svala þorsta sínum, ekki einn munnbita til áð
slökkva hungur sitt í rrlarga daga. Það er beitt allri
grimmd og öllum pyntingu n, sem mögulegt er að upp-
hugsa. Evrópuþjóðirnar sem þykjast vera siðaðar, sem
þykjast vera kristnar, láta þetta viðgangast. Stjórnvitr-
ingarnir sitja rólegir heitna og ræða um frið og sam-
komulag; en ef einhver er svo göfuglyndur að vilja
hjálpá þeim sem. þannig eru píndir með húngri, þörsta,
kulda og klæðleysi, sárum og öllum hugsanlegum < pynt-
ingum og kvölum, þá rísa þeir upp :og banna alla hjálp
og alla miskun.
Svona eru kristnir menn í Evrópu, þeir gefa lítið
eftir Hund-Tyrkjanum.
(Eftir Kringsjá).
Enginn íslendingur fórst eða merddist viö járn-
brautarslysið í Gjentofte. Skáldið S. Michaleis og kona
hans, sem talin voru meðal hinna látnu í enskum blöð-
um, komust bæði lífs af én lágu í meiðslum þegar
síðast frjettist.
Veðrið hefur mjög mikil áhrif á menn að ýntsu
leyti. Þegar veður er siæmt og þungt lopt, þá eru þeir
ver skapi farnir, þeir eru ónýtari til Vinnu og þeint er
ósýnna um allt.
Fólkstala a Rússlandi eykst um helming á 50
árum, á Englandi á 55 árum og eins á Þýskalándi, í
Belgíu á 79 árum, á Ítalíu á 84 árum og á Frakkiandi
á 83 árum. Á árunum frá'1882 —1890 jókst fólkstala
í öllum heitninum um 88,000,000 eða meira cn 6 pct.
Stærðfræðing'ur einn reiknaði það út 1893 að
árlega væru i Lundúnaborg drukknir 180,000,000 pott-
ar af maltdrykk, 32,000,000 pottar af víni, og 18,000,000
pottar af öðru áfengi. íbúar í Lundúnaborg voru þá
6,000,000, þar af Voru 2,000,000 börn sem ekkert
drukku og 2,000,000 bindindismenn, drakk því hver
maður 90 potta af maltdrykk árlega, 16 ‘potta af vini
og 9 potta af öðru áfengi.
Hr. L. Lövenskjöld
Fellum — Fellum pr. Skien, lætur kaupmönnum
og kauptjelögum í tje allskonar timbur, einnig tekur nefnt
fjelag að sjer að reisa hús, t. a. m. kirkjur o. s. frv.—
Semja tná við umboðsmann hans.
Pjetur Bjarnason, ísafirði.