Dagskrá - 05.08.1897, Side 3
123
sitja 6 tímá í kennslustunckim, verða að minnsta kosti
að lesa undir þær 4 stundir og kenna svo 2—3, held
jeg að ekki sje hægt að segja annað, ef talað er af
sanngirni og rjettlæti, en að það sje nægilega langur
vinnutími. Það dugar hvorki fyrir höf. nje nokkurn
annan að dæma námsmenn almennt eptir einstöku slæp-
ingum og telja það aðalreglu sem einungis er undan-
tekning. Þar sem höf. dregur þá ályktun — ja, jeg
veit ekki út af hverju, að áður hafi piltar verið miklu
starfsamari og duglegri, og færir þar til það að Jón
gamli Hallsson hafi verið í kaupavinnu, þá skal jeg fræða
hann á því, ef hann veit það ekki áður, að meginþorri
pilta er nú við heyannir eða vegabætur í sumarfríinu og
meira að segja, sumir eru farnir að vinna áður en skóla
er sagt upp.
Þetta dæmi höf. sannar það því ekki að áður hafi
piltar verið starfsamari, heldur þvert á móti; það sannar
það einmitt að sögunni um Jón Hallsson hefur verið
haldið á lopt lionum til hróss sökum þess að það hefur
þótt sjaldgæft. Nú dettur eiigum lifandi manni í hug
að tala eitt orð um það »með mikilli virðingu«(!) þótt
piltar sjeu við heyannir; með öðrum orðum, það er orðið
langt um algengara. »Þjer finnst allt best sem fjærst er«,
segir orðtakið og þannig er það með höf.; hann er eins
og sumir aðrir með því marki brenndur að hefja það
til skýjanna sem liðið er, en niðra því um of sem yfir
stendur. Jeg vil ráðleggja honum að lesa betur sögur
embættis- og námsmenna fyr á dögum og bera þá saman
við þá sem hann þekkir nú áður en hann fellir slíkan
dóm í næsta skipti, sem hann hefur gjört í grein sinni.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Heilinn og minnið.
Hverju líkist heilinn, þegar litið er á hann sem
forðabúr eða geymsluhús ? Hvers mundum vjer verða
vísari ef vjer gætum gjört oss sjálfa svo óendanlega
smávaxna að vjer_ gætum ferðast gegnum leynigöng
heilans? — »Mundum vjer«, spyr rithöfundur einn í
Cassell’s Magazine, »sjá málverk og myndir hanga þar
á veggjunum ? Mundum vjer sjá hyllur og hylki þar
sem skipað væri niður og geymdar í allskyns frásagnir
og endurminningar ? Það er ómögulegt að hugsa sjer
hvernig það geymsluhús er útbúið sem á að varðveita
myndir og hljóð, og allar hinar aðrar skynjanir frá öll-
um skilningarvitum mannsins. Vjer getum heldur ekki
orðið þess varir, þó vjer beitum sjónaukanum, að neitt
vjelasmíði sje á heilanum, því þetta gráleita efni sem
hann er gjörður af er svo smágert að engin gler geta
greint það. Það eina sem vjer getum fundið er sam-
afn af heilaögnum (Cells).
Menn hafa reiknað út r.iergð þessara agna, og
menn álíta aö hver einasta hugsun eða skynjan sje
nokkurskonar íbúi í heilanum sem krefst síns sjerstaka
herbergis en herbergin eru hcilaagnirnar: þessar agnir eru
mjög misstórar sumar '/300 úr þumlungi að þvermæli en
aðrar einungis ^liooo. Stærðfræðingurinn dr. Hookc seg-
ir að þær sjeu 3,15 5-7^0,000 að tölu, en eptir reikningi
Magnerts eru þær aðeins 600,000,000.
Menn halda að hugsunm sje að eins í nokkrum
hluta heilans, sem er svo stór að ef hann væri flattur
út svo að hann yrði 1 þumlungur á þykkt, þá væri
hann 12 þumlungar á lengd og 11 á breidd eða 132
teningsþumlungar. Ef allar agnirnar væru V300 þuml-
ungs að þvermæli, þá rúmuðust 27,000,000 þeirra í
hverjum teningsþumlungi eða þær hlytu að vera 3,618,-
000,000 í allt, en sökum þess að margar eru minni,
hljóta þær að vera enn fleiri.
Til þess að gjöra oss grein fyrir þessari háu tölu,
skulum vjer geta þess að í biblíunni allri eru taldir 3V2
miljón stafir, og þyrfti því eins stóra bók og 1,113
biblíur til þess að hún hefði eins marga stafi og heila-
agnirnar eru margar.
(Þýtt úr ensku).
Atkvæðagreiðslu um fjárlögin (2. umr. í n.d.),
á að verða lokið í kvöld. — Þetta eru lengstu um-
ræður um einstakar greinir fjárlaganna er menn muna.
Póstskipið „Thyra“ kom í dag og með því
nokkrir farþegar; þar á meðal Lárus sýslumaður
Bjarnason og frú hans, Páll sýslumaður Einarsson og
fröken Helga systir hans, Arni kaupmaður Sveinsson frá
Isafirði, Björn Olafsson augnalæknir, Möller apótekari
með tveim dætrum, frú þóruun Scheving, Eggert Claes-
sen með unnustu sína, Tómas læknir Helgason, þýskur
doktor, 4 Englendingar og ein ensk kona. Óþurkar
sagðir nyrðra og hafís ekki langt undan landi.
í París var slátrað 11,862 hestum til manneldis
árið 1893; á Islandi skammast menn sín fyrir að borða
hrossakjöt.
í Alpafjöllunum eru 180 tindar frá 4000 til
1 5,732 feta háir.
Kolanámur á Indlandi ná yfir 35,000 ferhyrn-
ingsmílur.
Frakkar eyddu 13,914,000,000 kr. í herkostnað
árið 1893.