Dagskrá

Eksemplar

Dagskrá - 18.12.1897, Side 4

Dagskrá - 18.12.1897, Side 4
344 Hann. spiiiir fyrir konunni sinni! »sjer grefur gröf þótt grafi« Það stóð nýlega í Fjallkonunni að »Æskan« væri dýrasta blað landsins Auð- vitað datt engum rjettsýnum manni í hug að trúa því, og meira að segja, jeg lield að ritstjórinn hafi engan vegin getað trúað því sjálfur; að minnsta kosti hefur hann þá hvorki gætt þess að blaðjð konunnar hans, sem er nákvæmlega jafnstórt og Æskan (það keinur sinu sinni í mánuði tvöfalt en Æskan tvisvar einföld í samabroti) er mikiu dýrara\ það er kr. 1,50 úti um land en Æskan 1,20, það er því fimmta parti dýrara en hún þar. í Reykjavík kostar það líka 1,50 en Æskan 1,00, það cr þvi þriðjungi dýrara í Rvík enÆskan. Og heldur hefur ritstj. ekki gætt þess, að sam- kvæmt nýgefinni játningu eins heista biaö- stjórans hjer á landi, borga auglýsingarnar stórann part af vcrði hinna blaðanna. En látum nú þetta vera hvorttveggia, þóít ritstjóri Fjallk. hefði sjeð ofsjónum yfir útbreiöslu Æskunnar og ekki getað vitað það, að ef hún gjörði meira en að borga sig, þá gengi afgangurinn tii þess málefnis, sem öllum sönn- •um mannvinum er annast utn og í það fje- lag, sem að því starfar, en hatin (ritstj.) bar ekki gæfu til að vera í nema stutta stund, þótt. þetta hefði nú verið þannig, segi ieg, þá var það . afsakanlegt í mínum augum, þegar þess er gætt, hvernig ntaðurinn er; en það verð jeg að jata að jeg varð alveg hissa þegar konan hans sendi frá sjer ann- að blað skömmu síðar, miklu dýrara en Æskan er, með þeim fyrirmælum, að það sje gjört af löngun til þess að láta börnin hafa éitthvað skemmtilegt(?) að lesa fyrir iítið verðiI. Til þess að menn sjái að það er ekki gripið úr lausu lopti; að þ?tta nýja (nafnlausa) blað sje dýrara en barnablaðið Æskan, skal jeg leyfa mjer að bera þau saman eins og Kvennabl. og Æskauna. Æsk- an kostar kr,i,20 úti um land en Bríetar blað kr. 075; það er nákvæmlega helmingi minna en Æskan; hún ætti því að kosta úti um land 1,50 í samanburði við það, Bríet- arblað kostar í Rvík 60 aura og eptir því ætti Æskan að kosta þar 1,20. þetta er svo auðreiknað að alfir, sem komnir eru til vits og ára, geta það, nema ef vera skyldi ritstj. Fjallk. Hann hefur annars gjört konunni sinr.i ljótar. ógreiða með því, maðurinn, að auglýsa þetta. Það gat vel verið að fáir hefðu veitt því eptirtekt að blöðin hennar hvort í sínu lagi eru langdýrustu blöð lands- ins, ef hann hefði ekki gefið tilefni ti! þess að benda á það. Mjer dettur ósjálfrátt' í hug kötturinn sem ætlaði að snúa sjer. við og bíta barn er stóð fyrir aptan hann, en beit í þess stað í rófima á sjálfum sjer. — Þó kastar fyrst tólfunum þegar ritstýra aýra-blaðsins kveðst ekki hafa getað fengið það af sjer að gefa það út í fyrra, af því að blöðin hafi þá verið svo mörg! en nú þegar þau eru orðin enn þá fleiri, þá vílar hún það ekki fyrir sjer. Þetta bersorglegan vott um hnignandi brjóstgæði hjá henni, blessaðri frúnni. Að endingu skal jeg hugga ritstýru dýra- blaðsins með því, að barnablaðið Æskan hefur þegar fengið mjög góðar undertektir og mikla útbreiðslu; henni er annt um börnin(r) og þess vegna hlýtur hún að gleðj- ast af því. Sig. jfúL Jóhannesson. Fiski mærin. Eptir Björ?istie?'ne Björnso??. (Framh.). Loksins hóf kona ein umræðu, hún var fölleit í andliti, hjer um bil fertug að aldri. Hún var ennislítil, augun stór og flóttaleg og eins og þau ekki gætu haldizt föst á nokkr- um hlut augnabliki lengur. »Það var góð ræða hjá prestinum í dag« sagðihún; »hún var alveg i samræmi við það, sem við vorum að hugsa um, — því við höfum talað mikið um freist- ingu undanfarna daga. — Hún varp öndinni mæðilega. Einn af gestunum andvarpaði einn- ig; hann var einkennilegur útlits; niðurandlit- ið var svo nauðalítið en uppandlitið stórt og barþaðalgjörlegaofurliði: »Drottinn, vertu leið- togi minn! snúðu augum mínum frá hjegóma!«, sagði hann. Konan sem fyrst hóf máls — hún hjet Elsa — andvarpaði aptur og mæiti »Drott- inn, hvernig á æskúmaðurinn að fara að því að forðast.vegu hinna illu og breyta eptir boðum. þínum ?«. — Það Ijet eitthvað undar- lega í eyrum að hún skyldi mæla þannig, því ekki var hún ung. — Miðaldra maður sem hallaði undir flatt og ruggaði sjer í stólnum, muldraði vísu þessa í hálfum hljóðum, rjett eins og hann væri að tala upp úr svefni. Það er hlutur hvers þess manns, er hefur drottinn kæran, að undan freisting andskotans aldrei sloppið fær hann. Prófasturinn þekkti fólkið svo vel að þetta var byrjun lengra samtals. Nú þögnuðu allir stundarkorn. Loksins heyrðist „Hum, hum?“ til stúlku einnar. Hún var ákafíega lág vexti og vatð enn þá lægri fyrir það að hún laut áfram. Hún var svo margvafin í sjölum og klútum, að hún leit út rjett eins og stór fatastrangi. Það, mótaði ekki fyrir höfð- inu á henni, heldur en það væri ekki til. Þá var eins og kona sú er áður hafði taiað, hrykki upp af svefni og mælti:. Það »er ekkert gam- an á ferðum þarna út frá hjá okkur um þess- ar mundir — en«. — — — Hún þagnaði aptur, en Lars — svo hjet hann, maður- inn með stóra uppandlitið — hjelt áfram. —- »Enþarermaður,sem getur haldið uppi skemmt- unum og gjörir það víst líka, — Það er hann Hans spilari«. Það var eins og hann væri að hugsa sig um, hverju hann ætti að bæta við, en ungi maðurinn tók framm í fyrir honum ogsagði „Hann veit það tíðkast á prestsetrinu". — »Það hneykslar smælingjana og það síendur skrifað, að þeim sem hneykslar einn afþessum smælingjum væri betraað miinusteinn væri fest- urumháls honumoghonum svo sökkt í sjávar- djúpi«,sagði konan. Larstók framm í fyrirhenni ogsagði: »Vjer kretjurnst þess því að þú eyði- leggir hljóðfæri þitt, helst brennir það, svo að það sje ekki til hneyxlunar«. „ Fyrir sóknar- börnin þín“ sagði ungi maðurinn. Prófastur- inn bljes út úr sjer reykjarstroku og mælti sfðan — Það var auðheyrt að hann hafði mikið fyrir að dylja gremju sína — »Hljóð- færi þetta er ekki til þess að freista mín; Það er til þess að lypta upp sál minni og fjörga hana. Þjer vitið að alit, sem getur fjörgað og skerpt andann, gjörir menn færari til þess að skilja, hugsa og álykta. Jeg er því ekki í nokkrum efa um það að hljóðfærið sje mjer til góðs en ekki til ills. Þá mælti ungi mað- urinn: „Það er eins og Páll postuli segir, að fáir prestar sjeu til sem láti að vilja safnaða sinna“. »Það er fyrirgefanlegt þótt menn láti ept- ir sjer að einhverju leyti; en það dug- ar ekki að vera of einstrengrngslegur eða hjegómagjarn; ef jeg væri það, þá breytti jeg ekki einungis illa gagnvart sjálfum mjer held- ur einnig gagnvart þeim, sem jeg á að vera til fyrirmyndar; þá gæfi jeg þeim illt eptir- dæmi og það væri sönnun þess að jeg kenndi þvert á móti móti því semjeg gjprði«. Prófastur- inn var ekki vanur að gefa svona langar skýringar þegar hann var ekki í ræðustóln- um: „Jeg vil ekki og læt ekki af hendi hljóð- færið mitt; jeg vil heyra til þess optar; jeg hef svo mikla unun af því og jeg vildi óska að þjer hrestuð yður öðruhvoru með saklausum skemtunum t. d. söng og hljóðfæra- slætti: Það er svo langt frá að jeg álíti það syndsamlegt, jeg skoða það miklu fremur gott og sjálfssagt". Ungi maðurinn haJlaði undir flatt; hann spýtti um tönn og ruggaði sjer 1 stólnnm. Prófasturinn varð eldrauður í andliti; og nú varð dauðaþögn í herberginu nokkra stund, þangað til ungi maðurinn allt í einu söng eptirfarandi vísu með hárri röddu: „0, drottinn minn guð, það glöggt jeg finn, að gleðilegt þykir það eigi, að kveljast og bera krossinn þinn og klöngrast um þrönga vegi, því hjegómlegra holdið er en hörmung þola megi“. „Já, þú segir að það sje rjett og guði þóknanlegt, að spila, dansa og syngjá!“ mælíi Lars, rólegur: „Jú, það var nú það, ojæja, já, það cr rjett og gott að æsa djöfulinn með skilningarvitunum; en þetta kennir presturinn okkar, nú jæja, við vitum hvað við megum bjóða okkur eptir þessa upplýsingu! — Já, presturinn, sjálfur guðsmaðurinn segir að allt þess konar, allt iðjuleysi sje til frelsis og bless- unar — að það sem hefur freistingar í för með sjer, sje gott og guði þóknanlegt!« Nú var Odegaard fljótur til máls; hann horfði á prófastinn og sá það glöggt að farið var að síga í hann og óttaðist að eitthvað mundi illt hljótast af þessum ræðum. Hann tók því til máls og sagði: »Segið mjer, góði maður, hvað það er. sem ekki getur haft freisting í för með sjer?“ Allir störðu a hann og undruðust það, hversu hann talaði alvarlega og áhrifamikið. Spurning þessi kom svo fiatt upp á Lars, að hann gat alls ekki áttað sig í fljótu bragði og svaraði því engu. Allir þögðu. Allt í einu heyrðist rödd, sem var líkust því að hún kæmi ueðan úr kjallara eða brunni. Það var kona, Radí að nafni, sem var á meðal gestanna, og var svo margvafin í klútum, að hún var al- veg eins og fatastrangi: »Það er vinna!« mælti hún. Gieðibros ljek um andlit Lars og föl- leita konan leit á Radí og jafnvel ungi mað- urinn, sem stóð upp við dyrastafinn, hætti rjett í svip að vera háðslegur. Odegaard þóttist þess sannfærður að þessi mundi geta svarað fyrir sig orði betur en allir hinir, þótt tæpast væri hægt að trúa því. Hann sneri sjer því til hennar og mælti: „Hvernig þarf vinna að vera tii þess að hún geti ekki haft freisting í för með sjer?« Hún svaraði engu, en ungimaðurinn tók framm í og sagði: „Þegar guð lýsti bölvun sinni yfir mönn- unum eptir syndafallið, sagði hann: »ísveita þíns andlits skalltu þíns brauðs neyta!“ Vinn- an verður því að hafa í för með sjer svita og erfiði:« »0g ekkert annað en svita og erfiði?“ mælti Odegaard: «ekki t. d. hagnað ?« Ungi maðurinn svaraði engu, en þá tók maðurinn með litla niðurandlitið til máls og sagði. »Jú svo mikinn hagnað, sem nauðsynlegur er«.— „En þá hlýtur einnig vinnan að geta haft freist- ing í för með sjer“ mælti Ödegaard »til dæmis freisting til of mikils hagnaðar?« Þá kom hljóð úr fatastranganum: »Já þá er það hagnaðurinn, sem freistar, en ekki \ inn- an«. »En þegar vinnan keirir fram úr hófi sakir hagnaðarins ?•« Prótasturinn þagði en Lars svaraði: »Hvað þýðir það að vinna gangi fram úr hófi ?« Að menn verða þrælar hennar". »Það er skárri þrældómurinn?« svaraði ungi maðurinn. »Þegarhúngjörir menn- ina að þrælum, getur hún þá leitt til guðs?« spurði Odegaard. » Vinnan er guði þóknanleg? < svaraði Lars. »Dirfist þú að segja það um öll þín störf og allar þínar athafnir?" mælti Öde- gaard. Lars þagnaði. — »Nei vertu nú sann- gjarn og játaðu það að vinnan getur gengið fram úr hófi ef hún er einungis fyrir hagnað- /

x

Dagskrá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.