Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 12.02.1898, Blaðsíða 1

Dagskrá - 12.02.1898, Blaðsíða 1
II, 89. Reykjavík, Iaugardaginn 12. febrúar. 1898. Sk:rifstofa Dagskpár er í jVinaminni’ (stofan til vinstri). - NÆRSVEITAMENN verða að vitja blaðeins eða láta vitja þess þegar ferðír falla. Úr brjefi frá bónda. . . Eruð þið blaðamennirnir hættir að trúa á það, að landbúnaður vor íslend- inga geti þrifist? Jeg heyri og sje ekki annað en eilífar lofklausur yfir þorskalóðum og lúðuvörpum. En fáir hreyfa penna, eða láta orð heyrast í þá átt að góður gróðavegur sje að hleypa fje upp á heiðarnar okkar á vorin. „ Dagskrá “ á að sönnu þakkir skildar fyrir það, að hún hefur þó getið um land- búnaðarmálið og það til góðs, — en jeg vildi óska að þetta blað ræddi mikið ýtar- legar hinar ýmsu leiðir, er finna mætti til þess að halda landbúnaðinum í horfi — því á þessum atvinnuvegi veltur framtíð þjóð- ernis vors fyrst og fremst. — Þið skulið sjá það allir saman, hvort heldur þið lifið af sjófangi, iðnaði, ritstörfum eða embættum, að velferð bóndans er velferð ykkar — því hann er „bústólpi« en bú er »landstólpi“. Lausamennskan er búnaðinum til yfir- vofandi hættu, mannfæðin í landinu drepur þrótt og kjark úr hverri viðleitni til endur- bótar, sjómannalífið ginnir margan mann úr vist, sem þykir það girnilegra til fróðleiks, en dauft og leiðinlegt í sveitinni. Þingið er máttlaus, úrræðalaus áhorfandi þeirra breyt- inga, sem eru að verða, hvar sem litið er. landbúnaðinum til óhags. En hvað á að gjöra? Vafalaust er það hið fyrsta og besta ráð, að láta ekkert færi ónotað til þess að sýna fram á hiS sanna og rjetta í þessu rnáli, en það er að landbúnaður vor er arðmeiri og vissari gróðavegur heldur en sjávarútveg- urinn. Þið blaðamennirnir eigið að leiða rök að þessu og tala hug í bændurna, sem nú eru að yfirgefa afbragðs jarðir úti um allar sveitir yfir endilangt land, til þess að sækja í óvissar verstöðvar niðri við sjó, eða jafn- vel leita bæjarleyfis í Reykjavík til þess að gjörast daglaunamenn. Hve nær hefur nokkur maður lagt ann- að eins fje í jarðabætur í einhverri einni jörð eins og menn leggja í eitt einasta þil- skip og útgerð þess? En það virðist þó anðsætt að menn verða að gjöra ráð fyrir því að fje sje lagt í hvorntveggja atvinnu- veginn af menn vilja bera þá rjettlátlega saman. Og hvað halda menn að yrði úr gróða- von útvegsbóndans á borð við gróðavon landbóndans ef báðir leggðu jafnmikið stofn- fje í fyrirtæki sitt? Það mundi t. a. m. ekki þykja nein ó- sköp þó lagðar væru 10 þúsund krónur í eina þilskipsútgerð. En ef menn legðu io þúsundir í einhverja jörð, þó góð væri, vel sett og undir góðri afrjett mundi mönnum blöskra og hafa það í frásögnum eins og Fróðárundur. Það sanna er vafalaust, að oss vantar að útlendingar sýni oss, hvað í landinu ligg- ur, alveg eins og þeir hafa sýnt hvað sjór- inn hefur í skauti sínu.' Vantrúin á öllum möguleikum liggur enn eins og martröð yfir framtakssemi landbónd- ans, en doðinn og dofinn, sem áður rjeði í fiskiverunum, er farinn að sleppa tökum af fólkinu. — Við höfum nóga peninga til þess að leggja í landbúnaðinn. Stórríkir bændur og hálaunaðir emþættismenn eru til fjöl- margir í landinu, sem gætu lagt þilskipsverð í jarðir sínar í einu. En þeir bara gera það ekki af því að þeir liggja undir dáleiðslu gamals kúgunaranda og framtaksleysis. Og þó getur enginn maður, sem þekkir þorsk frá sauðkind, verið svo sljór, að hann geti ekki skilið, hve miklu vissari arðurinn er af landbúnaðinum, og um leið meiri held- ur en hinn, þó sjávarútvegurinn sje síst last- andi. Jeg fellst alveg á það sem Dagskrá sagði einu sinni, að menn einblíndu á brutto- tekjurnar af þilskipunum, en gættu þess ekki — er þeir bera saman landbúnað og sjávar- útveg, —að enginn arður er nrður, nema hann sje netto •— að öllum kostnaði frádregnum. Og þegar menn reikna fyrir fram hver gróði muni hafast af einhverri atvinnu, verður á- hœttan að teljast til útgjalda í hundraðs- brotum . . . .“ Listamenn og dómar um þá. (Niðurl.). Það er ekki síður nauðsynlegt, að hafa góða þekking á list til þess að geta dæmt rjettlátlega og að gagni um tilraunir til lista (dilettantisme), heldur en til þess, að dæma um það, sem fullkomnara er af þessu tagi. Menn verða að vita vel, hve mikiðkrefst af æfing og lærdómi til þess, að geta sagt eitt orð, eða sungið eina hending eins og á að vera, ef menn ætla sjer að vinna gagn með dómum sínum um viðleitni þeirra, sem ekki eru fullkomnir í þessu. Og þess ber líka vel að gæta, að meira verður að krefj- ast af þeim, sem gjöra sig að dómurum, heldur en af hinum, sem álitið skal sagt um. — Því þó menn kunni alls ekkert til listar, hafa þeir ef svo mætti að orði komast — náttúrunnar rjett til þess, hvort heldur að yrkja, mála, syngja eða leika, og hvar sem litið er, sjest lífið allt, manns og manns í milli, fullt af ósjálfráðum tilraunum til listar í öllum hennar mörgu greinum. En menn hafa engan slíkan rjett til þess, að setja sig í dómarasæti yfir því, sem heyrist eða sjest í þessa átt — nema því aðeins, að þeir beri skyn á list og verk listamanna. Menn geta sagt hvað þeim líkar ver eða betur, — en menn geta ekki sagt: Þetta er svo og svo, ef þeir eru vitanlega sneyddir hinum fyrstu grundvallarskilyrðum til þess að geta sagt eitt orð með ástæðum, um það sem dæma á. Slíkt ríður í bága við góða umgengni og mannasiði. Að temja sjer kennaratón, setja á sig spekingssvip og halda langa lestra um list, fer þeim mönnum afarilla, er skortir bæði alla þekking á því máli og þar að aukinátt- úrlega smekkvísi. En því miður er þessu einmitt svo varið um fjölmarga lista- og rit- dómara vora. Að vísu skara þeir ef til vill ekki fram úr að vöntun á þekking — en af því að þá vantar næma tilfinning fyrir því, sem fer vel, taka þeir sig einmitt út úr öðr- um og gerast dómendur, þar sem aðrir láta sjer nægja að segja álit sitt sín á milli, eða gefa lítið út á það, hvert gildi það hafi, er þeir heyra eða sjá. Á dönsku er til orð, sem heitir „dum- kritik", — og það þykir, hvar sem er, mið- ur heppilegt að verðskulda nafnið „dumkrit- ikus“. En er ekki betra að vera heimskur og þekkja þó hvað list er, heldur en að vita alls ekki hið allra minnsta um list og „pat- entera" sig samt sem áður til þess, að dæma um hana? Annað má kallast einfeldni, en hitt glópsháttur — og er hvorugt gott. En órækari vott ber það þó um lága menning að vera glópurinn. — Hitt er manninum ó- sjálfrátt og fyrirgefst fremur, alstaðar þar sem mannnúð og menntun ræður. Mönnum kann ef til vill, að þykja það hart, að ekki skuli meiga dæma listir og til- raunir til lista af hverjum sem er, og f fljótu bragði mætti svo virðast, að engum listum gæti nokkurn tíma farið fram hjá oss, ef bíða ætti eptir þeim dómum, er standa yfir list- inni sjálfri. En menn verða að gæta þess, að kjör vor og hagir allir eru svo, að þess- ar fáu listir, sem sýndar eru hjá oss, lifa á straumum erlendrar menningar sem ná hing- að út og berast með þeim, er kynna sjer líf- ið og listirnar í öðrum löndum. — Hjá oss er engin þjóðleg list til nema skáld- skapurinn einn, og þó er lítið af alíslenskri rnennt jafnvel í kveðskapnum sjálfum hjá nú- tíma-skáldum vorum. Vjer þurfum ekki að halda á framhleypn- um, ómildum og vankunnandi „gagnrýnend- um“ — því af þeim kerist ekkert nema al- gerð fyrirlitning vorra fáu listnemanda fyrir dómi áhorfenda og áhlýðenda. Þeir verða að vera sparari á spekingsdómunum, sem ekkert haía gott eða gagnlegt að segja. Listamennirnir hafa fyrst um sinn miklu heilnæmari lærdóm af því að lesa sjálfirþað, sem að hendi berst af fræðandi ritum eptir þá sem vita hvað list er og að öðru leyti að taka þeim fáu góðu bendingum, sem ó- neitanlega koma hér fram frá einstökum mönnum, sem bæði hafa þekkingu á þvísem þeir tala um og góðvilja til þess, að dæma vægilega svo sem vera á um þá, sem ekki Koma fram sem fullnuma listamenn, og verða menn að láta sjer skiljast að undantekning- ar, góðar og vel kunnar, finnast frá sem hjer hefur verið sagt, um listadómara yfirleitt. — Stundum sjást hógværlegir og vinsamlegir dómar um tilraunir söngvara og leikara í blöðum hjer, og getur slíkt umtal verið til uppörfunar fyrir byrjendur, en skaðlaust að öðru leyti þó þeir fái hreinskilnar bendingar sem eru alveg ómögulegri til slíkra hluta. Og mörg dæmi finnast þess að svo gersneydd allri listagáfu er frammistaða sumra hjer, að engin voú er þess að þeir verði nokkurn- tíma neitt í neinu. Það er ástæða til þessað taka það fram, sem hjer er sagt. Vegurinn til lífs og list- ar fyrir oss byrjar þar, sem vjer játum sjálf- ir og viðurkennum hve skammt vjer erum komnir á leið. Meðan vjer höldum, að stað- laus þvættingur og bernskuhjal sje vísindiog

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.