Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 12.02.1898, Blaðsíða 2

Dagskrá - 12.02.1898, Blaðsíða 2
listafræðsla, villumst vjer fram hjá og ef til vill langt úr vegi. En svo sorglegt sefn það er, að sjá hversu lítils hin nýíslenska þjóð megnar enn í sönnum listaverkum eða framleiðslu listar, þá er þó enn leiðara að heyra þá dóma, flesta hverja, sem birtast frá vorum sjálf- sköpuðu Mæcenum listarinnar. — Listnem- endur eru á framfaraleið, en gífurlegir van- þekkingardómar hvort heldur er til lasts eða lofs, bæla niður og leiða til apturfarar. K. Kærleikssambandið. „Með guðs hjálp lofa jeg að drekka ekki á- fengi, neyta ekki tóbaks, bölva ekki nje heldur spila áhættuspil, dufla ekki, heldur sýna ráðvendni og gott viðmót í allri minni framgöngu og lesa bænir mínar kvölds og morgna". — Þessu líkur er sá eiðstafur, sem meðlimir „kær- eiksambandsins" hafa undirskrifað. — Það er ekki smávegis loforð fyrir hálfgerða óvita að gefa en það var ekki annað að sjá en að þessi 100 börn, sem voru saman komin í „Kastalanum" hafi góða samvisku. — Þau sátu öll glöð og kát við vinnu sína, stúlkurnar við sauma og hekl, drengirnir við tijeskurð, teikningar o fl. Börnin komasaman undir stjórn oggæslu »hers- ins« tvisvar í viku i »Kastalanum« á mánudögum og fimmtudögum til vinnu og bænahalds. Það sem unnið er, er eign fjelagsins og þess aðaltekjur að undanteknu 15 aura inntökugjaldi og 10 aura mán- aðar tillagi. Mörg af þessum ungu andlitum koma kunnuglega fyrir sjónir; á strætum og torgum eru þau opt á ferð fáklædd í frostum með einkenni fátæktarinnar í andliti. Stundum bregður fyrir í salnum snáða og snáða, sem borið hefur við að sjest hefur hjer á götunum gánga með hendurnar djúpt niðri í vösum, húfuna aptur á hnakka og úf- ið hárið fram undan, blístrandi og æpandi, ogjafn- vel stundum í ósáluhjálparlegum herferðum með fleirum drengjum af líku tagi í hendur lítilsigldu fólki, sem fyrir bar. En viðkomandi hefur vafalaust ekki verið kominn í „kærleiks- sambandið", að minnsta kosti þorir enginn að láta á sjer bæra innan þessara vjebanda, þar sem hver krókur og kimi geymir stunur og andvörp hinna herleiddu. I fyllingu tímans skipar dróttstjórinn að vinn- an skuli lögð til hliðar og drottni gefin dýrðin. Með lófaklappi eru sungnir nokkrir hersöngv- ar. — Það fór vel og virðulega úr hendi. — Einn ungur meðlimur af karla kyni fór þó út af laginu og leitaði lags á þeffærum heiðraðs fjelagsbróður, sem hjá honum stóð. Eitthvað í líkingu við org heyrðist í svip, en rann bráðlega saman við hið voðalega heróp drótt- stjórans. . Að loknum sálmasöng var borinn inn heitur drykkur (cacao) og kökur handa börnunum. Eins og hungruðum hermönnum sæmir luku þau á ótrú- lega stuttum tíma við það sem fram var borið, og horfðu síðan þungt hugsandi um sinn hag ofan í hinar tómu krukkur, og á diskana, sem einu sinni voru kúfaðir með brauð. Frá heilsusamlegu sjónarmiði á dróttstjórinn þakkir fyrir að hann annaðist um að salurinn kæm- ist í nánara samband við andrúmsloptið utan »hers« áður en hann raðaði börnunum í hringi á gólfinu og „dansinn", sem þau svo kölluðu, byrjaði. Það var þó víst ekki dans af vanalegu tagi, enda heyrðust ýmsar raddir meðal hinna ungu her- manna, sem sögðu: „Við viljum glíma", í nokkuð hærri tónum en bráðnauðsynlegt virtist vera. Það er ætlun sáluhjálparhersins að gera hina uppvaxandi kynslóð sjer vinveitta og herskáa í stríðinu við hið illa í heiminum, og það er ómögu- legt að neita honum um það, að hann fer hyggi- lega að ráði sínu til þess að safna fólki undir sitt merki: „blóð og eld“. — Það lítur svd ; »fallega út« að taka börnin af götunni, setja þau niður við vinnu og saklausa skemmtun, en það er vafainál hversú höll hin iestu trúarorð og aðfarir stríðsmanna eru 'börnum, sem ekki eru komin til vits . og ára. j , - . Þetta er fjölménnt'útboðslið af svo' ‘fámennu bæjarfólki,! og hvað sem paenn kunna að segja hern- um til ágætis, er það þó víst ekki vilji Reykvík- inga að gjöra meginþorra hinnar yngri kynslóðar vorrar að æpandi og syngjandi liðsmönnum í her Booths hins breska. Eða er það syo — þið sem eigið börnin í Kastalanum ? J. J. 372 Patrik frændi. Eptir « Stephán G. Stephánsson. Hann Patrik var írskur og katólskur karl, Og kofinn hans gisinn og siginn Stóð lágt, inn í rjóðri, í raklendum skóg, Með risatrjen, mosann og dýin; Úr jörð hans var seinlegt að sópa upp auð og svitaverk árlangt ið daglega brauð. En hringinn í kring voru húsin öll stór Og hálendar ekrur og frjóar, Þá sveit byggðu lúterskir, sannkristnir menn—- Það sást á að Guðsfólkið bjó þar! I blessun hans, sáðlöndin ágætu, einn Varð aumingja hjátrúar-Patrik of seinn. Og það var nú ugglaust hans ógæfa fyrst, Að ei gat hann stjórnmálum varist En þaut út í orustur, þegar að var Um þrælahald suðurfrá barist. — Hann sagði það auðvitað efunarmál Hvort ódæðis blökkumenn hefðu nú sál. En hitt kvað hann öldungis ómögulegt Að Irinn það stjórnfrelsi skildi: Ef mannsmyndin ein væri ákvæði það, Sem atkvæðisrjetturinn fylgdi, — Að þrælka einn mann þó hans skinn hefði skekkst I sköpunarverkinu’ og dálítið blekkst. Svo berjast til frelsis þeim vildi hann víst — Þó væri’ í sjer hvumleiður þjóstur, Þeir bökuðu erfiði öðrum og sjer Og ónot^og bálfgildings róstur. En það sagði' hann nurlara hugsunarhátt, Að hjálpa’ ekki Surt þegar ætti hann bágt. Hann sjálfboði allt af í strfðinu stóð Uns styrjöldin loksins var búin; Svo flæktist hann víða, en festulaus var, Varð fjölskyldumaður ogþlúinn, Og land nam hann seinast í þjettbýli, þar Sem þjóðsagan einasta’ um landgæði var. Og því hreppti’ hann úrganginn: frumskóg og fen — Oft fannst mjer samt gaman að karli Er hveitiverð leiddist og messurnar mjer, Og mas út af kaupum og bralli, Og embættissníkjanna ryskingarík In rægjandi, gortandi pólitík. Því hann átti öra og lífsglaða lund, Og ljetta og orðhaga tungu, Og hjá honum sjaldan á svarinu stóð Nje sögu frá dögum hans ungu. Og fangamark Patriks var orðunum á Þó ei væru málefnin stór eða há. Eg uppnefndi karlinn, að íslenskum sið, Og auknefndi' hann frœnda. Og þanninn Mun Frónbúinn sverja sig einatt í ætt! Og enn er mjer þelgott við manninn; —Um skyldleikann veit jeg — hvort orsökin er Nú Irinn til þess, eða skáldið í mjer. Og það var einn dag, þegar samtal í sveit Mjer sýndist þó venjunni grynnra, Og pólitík geggjaðri’ og gruggugri’ en fyr, Og guðsorðið væmnara og þynnra. Að drungi og leiðindi lögðust mig á; Jeg labb'aði’ að hitta hann frœnda minn þá. ' t • • Jeg fann hann.Hann hjekk út’við húsgarðsínsdyr, Þar hliðið við þjóðveginn stendur, Og'skyrtán úf ljerefti-flakti’;honum frá Utn freknótta brjósfið ög hen’d'Ur, Og beltið var stór þörf að strengja á ný, Svo strigábuxurnar hjengju’ í því. Og dautt var í kolsvörtum krítpípustúf, Sem hvervetna rjúkandi bar hann, Og hakan hans breiða var hornhvöss og bein Og harðleitur ásýndum var hann, Og hofmannavikin sem hrísrunni smár, Þau huldi’ ið ókembda, rauðbirkna hár. Jeg fyr hafði’ hann aldrei svo fálátan sjeð, Því fýla var honum ei lagin ; Jeg gekk til hans beinlfnis, brosti’ upp á hann Og bauð honum hátt: góðan daginn. En ertu’ nú Patrik inn írski’, eða hinn Sá eldri og lakari bróðirinn þinn? Hann kipptist þá við,sem hann vaknaði’ af blund. Um varir hans kveinstafir byltust Og sæbláu augun hans urðu svo dökk Og einhverri móðu þau fylltust — »Það reskir loks svipinn, jeg segja það kann, Að sjá upp á vonirnar smákveðja mann !“ „I skóginn þar uppi er úthöggið skarð Og alfaraveginn það sýnir, Af brekkunni þaðan sjest húsið mitt hinnst, Þar hurfu þeir drengirnir mínir! Mjer sýndist þeir staldra og horfa þar heim, Er hjeðan með augunum fylgdi jeg þeim“. »En drengi jeg veit ekki vænni’ en þá tvo Og von er þó sýnist mjer fækki’ um — En foreldrahúsin vor fátæk og smá Opt finnast oss þröng er við stækkum, Og ofaukið finnst oss þar okkar um munn, Sem opt skortir brauðið, og súpan er þunn«. »Og nú verður æfin mjer einmanaleg, Að erja og ryðja um skóginn. — Já, spurðu’ að því hestinn, sem fargað var frá Hans fjelaga tömdum við plóginn, Sem át við hans jötu og opt hefur sveittst Á ækinu sama og með honum þreyttst". »En það er nú smáræði. Þyngra er hitt, Jeg þekki hvað flestra vor bíður Er gæfuna höfum við æfilangt elt Sem undan í flæmingi ríður 1 Og úrslitin, þau hafa bakið mitt beygt Og bilað mitt glaðlyndi-, kjarkinn minn veikt". „Þó sýnist í æskunni veröldin víð Er vonunum móti þú keppir, Hún þrengist með árunum optast nær samt, Að ellinni fastast hún kreppir. Að berjast um hamingju, hafa loks ver, Jú, höndin sú arna veit glöggt hvað það er !“ „Þó innbyrðis meðal mannanna hjer Sje misskipt ið illa og góða, Mjer sýnist að auðnunni ójafnar deilt Sje alstaðar samt milli þjóða. En hvar helst í veröld sem volæðið hlóð Sinn valköst, finnst leyfin af írlenskri þjóð! \ »Og sárast þó bíti þig landsmanna last Er lof þeirra hlýast og sætast, Og sorgin manns hvergi jafn angurvær er Nje eiginlegt sálinni’ að kætast; Því frjálsust er öndin á föðurlands strönd, Þó framkvæmd og höndin sje rekin í bönd“. „Og okið er ljettast á Irlandi þó, Og allsleysið býtur þar sljófast — Þó vonunum hnignaði, hefur þó samt Mín heimfýsn með aldrinum þróast, Jeg bjóst við að flytja heim erlendan arð, I önd eða hönd, þegar kveðja það varð“. „En þegar það brást, fyrir börnunum samt Jeg bjóst við sú heill mundi liggja — Sem konungur Davíð dróg efnið það að Sem úr skyldi sonurinn byggja — Mitt erfðaland fær ekki fje eða son, Hún fjell' nú í dag þessi seinasta von“. »Og þannig á æskunnar oftrausti loks Sín ellinnar, vanipáttur hefndi — Mjer miklaðist land þetta —; mjer er það nú Sá Mólokk, sem börnin mín hremmdi I I dag er jeg, þegar við drengina skil, Svo dapur að jeg á ei spaugsyrði til«.

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.