Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 13.07.1898, Blaðsíða 2

Dagskrá - 13.07.1898, Blaðsíða 2
2 Til lesenda ,Dagskrár‘. Um leið og þetta blað byrjar nú hinn þriðja árgang sinn, mikið aukið að efni og stækkað að formi, þykir rjett að ávarpa með fám orðum hina heiðruðu lesendur blaðsins, með kærum þökkum fyrir þá velvild, sem „Dagskrá" hefur notið meðal landsmanna.— B!að þetta vill enn sem fyrri halda allri hinni sömu stefnu í helstu þjóðarmálum, sem vjer höfum við og við haft tækifæri til þess að láta uppi og mun yfirleitt heldur ekki breyta háttum sínum, að því er snertir rithátt nje meðferð þeirra málefna, sem tekin verða hjer upp. — Það er enn eins og að undan- förnu meginskoðun Dagskrár á hlutverki sínu að hún eigi að hvetja til og efla samtök Is- lendinga í því að fylgja fram hagsmunum þjóðarinnar allrar í heild sinni, hvort heldur er á móti útlendingum á aðra hlið eða á móti einstaklingum innan þjóðfjelagsins sjálfs, eða slíkir hagsmunir eiga að vinnast í viðureign við náttúruna, sjó eða land, eða afurðir þeirra. —Vjer erum enn sem fyr á þeirri skoðun, að íslendingar eigi að gæta alls þess, sem þeir hafa nú, sleppa engu af því nema á móti arðsömum skiptum í aðra hönd, en að þeir eigi jafnframt að seilast eptir öllu því.sem unnið verður með rjettu í viðbót, hvort heldur er frá útlendingi, einslaklingi eða frá náttúrunni sjálfri — án þess að leggja fjötra á vöxt og viðgang þjóðlífs vors rneð barnalegum tilvitnunum í alheimsborgaraskap eða per- sónuleg rjettindi, sem ekki er kominn tími til að fylgja hjer fram einhliða, eða í hina austurheimsku nægjusemi með þau kjör sem þjóðin býr við, hvernig svo sem þau kunna að vera. Með öðrum orðum, Dagskrá vill fylgja fram þjbðarhagsmumtm íslendinga, í öllum málum, sem þá varða, beinlínis eða óbein- línis, þannig að efling þjóðernisins íslenska sje látin sitja í fyrirrúmi fyrir 'óllu öðru, inn- an þeirra takmarka sem heimilt er. Og það er sannfæring vor, að nú sjeu einmitt þeir tímar, eða rjettara sagt, að nú fari í hönd tímabil, sem muni reyna til þrautar á alla hæfileika þessarar smáþjóðar íþví að varðveita sig ogeinkenni sín—og að ekkert nema ný, öflug og einbeitt pjóðleg stefna nýrra manna geti bjargað Islandi úr hættunni. — Vjer sjáum að útlendingar eru nú ekki einungis farnir að fá bragð og þef af þeim auðæfum sjáfarins, sem íslendingar hafa bú- ið yfir í fátækt svo herfilega langan aldur — eptir að nágrannaþjóðirnar námu þá list að auðgast af sínum eigin efnum, heldur hafa útlendingar einnig komist að raun um, að hjer sje einnig gott til veiða um sjálf rjett- indi íslendinga til landsins, sem sjá má af sendimennsku dr. Valtýs á síðasta þingi, og ýmsu því, er heyrst hefur af ráðagerð stjórn- arinnar í Höfn um stefnu hennar framvegis í stjórnarmálinu, er má b":ntínis þakka festu- leysi alþingis í því máli að undanförnu. Og þótt lítið sje enn orðið af því, má búast við því, að útlendingar nái hjer föstum tökum á ýmsum eignum og atvinnugreinum, í næstu framtíð, — í stað þess, að innflutningur út- lendinga ætti einungis að veita íslendingum sjálfum aukið vinnuafl þannig, að þeir rjeðu eptir sem áður yfir öllu saman og he0u bróðurhluta alls arðsins af starfi aðkomend- anna. — Og svo eru allar horfur á því, að hjer komist rót á allt innan skamms, staf- andi af breyttum verslunarkjörum landsmanna, ofvexti, ti'tölulegum, í aðsókn sveitafólksins að sjónum, langvarandi vöntun málmpeninga ílandinu, o s. frv. Og þó útflutningarnir hafi um tíma stöðvast við brjefafregnir lands- manna um atvinnubrest í Ameríku og þá al- mennu uppgötvun, að mest af gyllingum Vest- uragentanna hefur verið vísvitandi lygi í egin- hagsmunaskýni, — þá má búast við því, að ástandið hjer geti knúð þann straum aptur inn í sinn fyrri farveg vestur til frænda og vina, undir vinnuánauðina amerisku, burt frá öllu óyrktu og ónotuðu hjer, til ómetanlegs tjóns fyrir þá, sem eptir eru heima, Og til þess að þjóðerni íslendinga hrcppi ekki tjón af þeim breytingum, sem fara í hönd, vetður löggjafarvaldið og hin innlenda stjórn að starfa að því í sameining og í tæka tíð, að hlaupa þar undir bagga, sem mester þörfin á. — Það er landbúnaðurinn íslenski, sem mest ríður á eins og nú stendur að reisa við með peningum, — ekki einungis með tugum held- ur með mörgum hundruðum þúsunda. — Og Dagskrá vill um fram allt á þessu næsta ári, fyrir hið komandi þing, leggja á- herslu á að ræða petta málefni. Hvort á- rangurinn verður nokkur eða enginn af til- lögum eins eða annars um landbúnaðarmálið er auðvitað ósjeð og óreynt, — en það sem einu sinni er sagt verður þó aldrei ótalað — og sje bent á þá rjettu leið, er það á þeirra ábyrgð, sem eiga að fara hana, efþeir gjöra það ekki. — í flestum öðrum helstu landsmálum hef- ur þetta blað þegar áður látið uppi ákveðn- ar skoðanir, svo sem í samgöngu- fiskiveiða- og verslunarmálum. — Og vjer erum eins og fyr á því, að reynslan muni sýna fram á það, að tillögur þessa blaðs í þeim málum hafa verið hollar. Gagnger aðskilnaður millilandaferða — og strandferða, þannig, að einstakir menn eða fjelög sjeu látnir annast samgöngurnar milli landa aðallega á eigin kostnað, en að strand- ferðirnar sjeu gjörðar að meiru eða minna leyti á landssjóðs kostnað, og að Reykjavík (og aðrar hafnir, sem geta borið beinar eim- skipsferðir frá útlöndum), skuii á þann hátt njóta þess arðs af stórskiptum við hina ein- stöku verslunarstaði, sem rennur nú að mestu í vasa erlendra kaupmanna, það er enn sem fyr aðalstefna þessa blaðs, að því er snertir samgöngurnar á sjó. — Um fiskivtiðarnar verður ekki annað rjettara sagt, en að þær sjeu okkur til niðurdreps — svo lengi, sem þær eru reknar til eyðileggingar fyrir land- búnaðinn. Því hvað er stopull og vafasam- ur arður af útvegi nokkurra þilskipa á móti stöðugri og tryggri efling landbúnaðarins? Og því nnin þetta b!að eins og áður halda því fram, að greitt sje scm allra mest fyrir notk- un Islendinga á erlendum starfskróptum og erlevdu auðmagni við fiskiveiðarnar, þannig að beitt sje til þessa því sem vjer hófum, en það eru sjerrjettindi vor yfir miðunum — heirnild hins íslenska löggjafarvalds til þess að skipa eins og það vill fyrir um veiðiskap innan þess svæðis, sem er háð yfirráðum Is- lendinga einna. Aptur á móti álítum vjer það mjög varúðarvert eins og nú stendur, að leggja mikið fje af opinberum sjóði til sjáf- arútvegs og láta landbúnaðinn um leið vanta nauðsynlegt styrktarfje. Það er í rauninni ekki annað en að blása enn betur að eyðing þess meginatvinnuvegs, scm á að halda þjóðinni uppi, og sem öll framtíð henn- ar byggist á. — Arðurinn af útvegnumkem- ur svo fljótt í aðra hönd, að par er auðvelld- ara fyrir menn, að njóta lánsfjár frá einstök- um mönnum, og á hinn bóginn er þessi arð- ur svo tvísýnn og stopull, að hann getur alls ekki jafnast við hagnaðinn af ræktaðri jörð. Ástæðan til þess að svo mörgum sýnist nú sjórinn vera hin einasta náma, sem nokkurs sje verð, er sú aðaldreihafa verið lagðir pen- ingar í fullkominn, reglubundinn búnað á einni einustu jörð í landinu. ■— Hefði það verið gjört á lfkan hátt, sem átt hefur sjer stað um skipaútveginn þá mundu landsmenn nú líta með öðrum augum á búskap og fiskiveiðar, heldur en þeir gjöra almennt. En, til þess að nokkur dugur geti orðið í hinni nýju, væntanlegu hjálp hins opinbera í þessa átt, veitir ekki af því að nota láns- traust landssjóðs til þess að útvega fje í stað þess, að láta þennan sjóð sitja yfir stórupp- hæðum af gangeyri almennings í þessu pen- ingalausa landi, — sem þyrstir eptir því að fá afl þeirra hluta sem gjöra skal — þó gjalda þyrfti okurvexti fyrir það. Það gæti verið til ómetanlegs hags fyr- ir íslendinga ef hingað vildi koma okrari, sem lánaði þeim einar tvær, þrjár milljónir á móti, segjum io°/o vöxtum. Svo mikil ekla er hjer á stofnunum, er gætu lánaðfje—gegn vissri tryggingu. Og hvað gæti þá landssjóður gjört með lánstrausti sínu og því fje, sem hann gæti dreift út til landsmanna mcti hæfilegri rentu — ef hann vildi nota þetta traust á sama hátt, sem svo að segja allir ríkissjóðir um allan hcim nota það? — Það er pessi ráð. stöfun sem almenningsálitið í íslandi á að knýja löggjöf og stjórn til að snúa sjer að, til bjargar landbúnaðinum og framtíð íslancls og á petta mál vill Dagskrá um fram allt reyna að koma málsmetandi bændum. — Að því er snertir verslunarmálið höfum vjer aldrei fremur en nú verið sannfærðir um, aðrjettsje kenning Dagskrárum nauðsyn kaupfjelaga, sem skipti við innlendar versl- anir meðan óháð, íslensk kaupmannastjett er að myndast, enda hafa ýmsir atburðir orðið á síðustu árum innan kaupfjelaga þeirra, sem nú eru, er benda til þess, að þessi breyting fari í hönd. — Fyr eða síðar hljóta fjelögin að draga markaði sína að sjer. Að því er kemur til annara helstu lands- mála, þá mætti fyrst geta þess, að Dagskrá hefur hingað til látið eitt slíkt aðalmál svo að segja afskiptalaust, það er deilan um hlut- fallið eða sambandið milli ríkis og kirkju og allt, sem þar að lýtur, en að öðru leyti hef- ur þelta blað sýnt ákveðnar stefnur í flest- um menntamálum, sem efst hafa staðið í op- inberum umræðum utan oginnan þings og vjer hyggj um að allt það.sem blaðið hefur lagt til þeirra miði að því sama: að efla samvinnu og sam- eining allra hinna einstöku til þess að starfa sem best að velmegun og fullkomnunhinnar ís- lensku þjóðar í heild sinni — ekki einungis í verklegum efnum, heldur engu síður íþeim andlegu og frá þvf sama sjónarmiði mundum vjer nú cinnig leggja til um kirkjumál- ið á þann hátt, að sem minnst sje rætt um sjálft innihald eða kenningar þess trúarlær- dóms, sem íslendingar játast undir opinber- lega, heldur hitt hver áhrif hið núverandi fyrir- komulag kirkjunnar hefur á menning þjóðar- innar — hvort kirkja og klerkastjett fullnægi hæfilega þeim kröfum, sem gjörðar verða eptir öllum atvikum í því efni, að leiða starfskrapta safnaðanna inn á heppilegar leið- ir til einingar og framtakssemi, hver áhrif gjaldheimta presta hefur í þessu efni — o. s. frv. — — Það sem hjer er sagt mun nægja tilþess að sýna fram á, hver stefna Dagskrár er og á að verða og vjer skulum svo í fám orð- um gjöra grein fyrir því af hverjum ástæð- um álitist hefur rjett að breyta til um efnis- val og skipun á innihaldi blaðsins. — í raun rjettri eru dagblöð í eiginlegum skilningi ómöguleg á íslandi. — Eiginleg dagblöð geta ekki átt sjer stað nema þar sem viðskiptum og samgöngum er svo kom- ið, að nýjungar blaðanna geta haft áhrif á aðgjörðir manna til eða frá, menn geta hag- að sjer eptir þeim í daglegu Iffi og haft gagn af þeim. En þessu er ekki svo háttað hjer. — Frjettir blaðanna hjer á landi geta ekki haft slíka þýðingu. Þær koma allflestar of seint út og ná ekki nógu snemma í þá sem eiga að haga sjer eptir þeim. — í raun- inni eru því blaðafrjettir vorar hjer, að mestu leyti, nokkurskonar annnálar — og blöð vor eiginiega nokkurskonar tímarit.—■ Menn verða sjaldnast fræddir hjer á tíðindum, sem flestir hafa ekki heyrt áður berast mann frá manni — en þrátt fyrir þetta sýnir reynslan, að menn vílja hjer láta skýra jafnt frá þvf sem þeir þegar vissu, eins og hinu, sem varþeim ókunnugt og er enginn vafi á því, að hin eldri blöð eru miklu betur gerð við hæfi og eptir óskum almennra lesenda hjer, heldur en þau nýrri blöð, scm reynt hafa á ýmsan hátt að breyta til um þetta og ganga inn á nýjar leiðir. íslendingar vilja hafa þessi tímarit, sem kalla sig blöð, sniðin á líkan hátt og eiginleg dagblöð þó þau sjeu það alls ekki — og það sem almenningur vill í þessu efni, það eiga allir blaðanrenn að vilja með. -— Þess vegna bieytir Dagskrá að miklu leyti um efni sitt og form á þessu þriðja ári — og mun jafnframt hafa góðar gætur á því hvað menn vilja helst lesa úr því að hún sneri á annað borð inn á hina gömlu, góðu vegi. En hitt er annað mál, að Dagskrá rnun reyna að þekkjast frá öðrum af fleiru en nafninu einu, ekki síður eptir en áður, og aldrei reyna að afla sjer neins kaupanda með því að víkja frá sannfæringu sinni, enda mun það, sem nýtt er og sjálfstætt verða flutt óhilcað eins og fyr, þó þar með sjeu ekki þræddar allar almannaleiðir, — hvort sem slíkt kemur frá starfsmönnum blaðsins eða öðrum, og ekki sneitt úr vegi fyrir neinu ný- mæli innan þeirra takmárka, sem stuttlega hef- ur verið drepið á hjer. Dagskrá mun eins og á öðrum árgangi sfnum svara á þann hátt, sem þurfa þykir hverjum sem yrðir á hana, og gjöra sjer engan mannamun, — enda hefur reynslan sýnt að ekki dugar hjer, að láta hvert orð hlutlaust, sem annarsstaðar mundi álitið ekki svaravert. -— Dagskrá ritaði kurteislegar og hógværar fyrsta árgang sinn, en nokkurt ann- að blað hefur gjört á íslandi, — en á öðru árinu líkar því, sem ber að gjöra meðal þeirra ritsmiða, sem ekki verða sannfærðir með röksemdum. Vjer endum svo þessa kveðju vora með alls góðs óskum til þeirra sem unna Dagskrá vel og því sem hún vill mæla með — og felum lesendum vorum, að öðru leyti sjálfum að meta það, hvað og hvernig hún leggur til mála. „Með Hólar“. —„FráSkálhoIt”. .... „Jeg kom með Hólar" — „jó, það held jeg kannske" — „En þessi kassi er frá Skálholt. Jeg fer apt- ur um borð í Hólar". — Hefurðu spurt kaptein- inn á Skálbolt hvenær hann fer — ? o. s frv. o. s. frv. — Vesalings Danir. Þeir voru að reyna að láta okkurskilja að þeir vildu láta strandferðaskipin halda slnum gömlu íslensku nöfnum, ogvoruíþví skyni að bera sig að setja brodda yfir <?ið og aið utan á sjálfum byrðingunum, þar sem allirgeta lesiðþað. — Kommurnar urðu reyndar nokkuð litlar og ekkí vel líkar því sem gjörist í frónsku letri —- en hvað um það. Viljinn var samt auðsær. Þeir kunnu ekki við það að bjóða okkur „Skalholt" og »Holar« — því þeir hafa sjálfsagt haldið að okkur mundi þykja miður, að láta baunska nöfn hinna gömlu biskupsstaða, eins og svo margt annað hefur verið baunskað hjer úti á gamla Fróni frá hvirflinum sem er klæddur þrl »uppsettum« dönskum flóka og til iljanna, sem troða danskt, vjelasaumað sútaskinn. En þeir gleymdu því úr reikningnum að setja falllendingarnar fyrir aptan — fóru alveg fram hjá því að vitna í málfræðina hans Halldórs „floti, hestur, dalur,vinur, -— auga, skip, trje". Hól- ar« beygjasteins og„hestar",Skálholt eins og »skip«. — Jeg hitti á dögunum ungmey eina, nýkomna langt austan af fjörðum með mjóan, gamlan silfur- hólk á skúfnum og rammíslenskt orðfæri. Hún sagðist hafa komið með Hólar og mjer heyrðist ekki betur, meira að segja, heldur en að »r«ið vildi verða dálítið lint — ekki beint „gor" — en svo sem svo. Hún minnti mig á kunningja einn sem jeg átti í sveitinni fyrir nokkrum árum. — Þegar hann kom úr kaupstaðnum vanrækti hann aldrei neitt tækifæri, sem bauðst til þess að koma þvíað í samræðunni að hann hefði heyrt þetta og þetta eptir farþegum á „Thyra" að hann hefði komið um borð »á Thyra« „til Thyra" — »frá Thyra« o. s. frv. eða ef svo stóð á, þá var það „Laura" sem hann gamnaði sjer ’úð að láta koma á eptir allskonar forsetningum, óhncigjanlega að dönskum sið — og óptast leit hann út undan sjer um leið til þess að sjá hvort jeg tæki eptir því hvað hann talaði hárrjett eptir flatlenskunni. En svo mætti jeg áðurnefndri fegurð austari að nokkru síðar og átti aptur tal við hana. Þá gekk hún hreinlega fram at mjer — því þá var ekki nóg að hún spurði um „Hólar" — djúpt aptur í kverkum með sama lina tungutakinu, heldur ljet hún sig hafa það að segja blátt áfram: „Hve- nær fer Hólum"? og svo lygndi hún augunum um leið, og dró seiminn, eins og hún væri að borða brjóstsykur. - Vesalings Baunverjinn, að vera að dekra við okkur með kommur og krábull yfir hljóðstöfunum f hinum fornu biskupsstaðanöfnum, til þess að þóknast okkur, og svo erum við hjerna heima a.ð reyna að baunska okkur allt hvað við getum „gorróma,, okkur þar sem við náum okkur niðri á »r«inu og tylla með tæpitungu fyrir framan hinar ,fornhelgustöðvar‘ allskonar forsetningum sem ým- ist stjórna þolfalli, þágufalli eða eignarfalli, til þess aðláta það heyrast að við kunnum að hneigja — eða rjettara sagt hneigja ekki — eins og fíni danskurinn. Jeminí. — Þunnur er orðinn mjöðurinn hjá mörlanda. — O ... ptro. . — Hrappur. Takmörkunar-'lögmálið. (Eptir •.Kringsjá*’.) Það er nauðsynlegt að þekkja þetta lögmál, skilja það og beygja sig undir það, hverjum þeim, sem varðveita vill hugarró sína í heimi þessum. Það er nauðsynlegt til þess að geta hugsað frjálst og óhindrað, án þess að láta gátnatjöldann og torráðning þeirra rugla sig, án þess að missa hugs- unarþróttinn — þróttinn til þess að halda áfram að hugsa um hlutina og traustið á nytsemd slíkra hugleiðinga. Takmörkunar-lögmálið innir þá sannreynd, að vjer sjeum takmarkaðar verur í takmarkalaus- um heimi, takmarkaðir á eigin efnum í þeim efn- um, í þeim heimi, scm cngin takmörk eru sett. Sannreyndin sýnir þegar að vjer getum ekki skil- ið allt. Skilningur vor er bundinn við ákvarðað svið, hann er ekki takmarkalaus vísdómur; hann getur ekki haft allan heiminn undir, nje skýrt frumrætur hans. Vjer erum takmarkaðar verur. Vísindi vorra tíma hjálpaoss til þess aðskilja það skýrt og greinilega. Annars er það afarcrfitt hverjum manni og hinni mannlegu skynscmi, sem getur flogið víðsvegar á vængjum hugsjónarinnar að skilja það, að til sjeu takmörk, sem ekki má yfir komast þverfótar, nje grilla í gegnum, enda þótt þar liggi ráðning gátnanna og ókunn- ir heimar.

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.